Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Afgreiðslu starfsleyfa flýtt um allt að fjórar vikur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.7.2026 | 11:53 Afgreiðslu starfsleyfa flýtt um allt að fjórar vikur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnartíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en breytingin leiðir af frumvarpi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem samþykkt var á Alþingi í liðnum mánuði. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú fylgt lagabreytingunni eftir með breytingu á reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirliti og reglugerð um hollustuhætti. Heilbrigðisnefndum strax heimilt að breyta starfsleyfum „Aflétting auglýsingaskyldunnar nær til ólíkra flokka atvinnustarfsemi á borð við gististaði, brugghús, skólahúsnæði, sund- og baðstaði, dvalarheimili, æfingasvæði slökkviliðs, sjúkrastofnanir, þvottahús og framleiðslu af ýmsu tagi,“ segir í tilkynningunni. Með reglugerðarbreytingunni sem ráðherra undirritaði í dag er hnykkt á því, í samræmi við umræddar lagabreytingar, að þrátt fyrir að breytingarnar á framkvæmd eftirlits taki gildi 1. janúar 2027 sé heilbrigðisnefndum strax heimilt að gefa út eða breyta starfsleyfum fyrir atvinnurekstur sem fellur undir viðauka IV við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir án þess að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda. Verður heilbrigðisnefndum þó heimilt að viðhafa slíka málsmeðferð ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif, svo sem ef starfsemi fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. „Þetta skiptir máli“ „Þetta er enn eitt skrefið sem núverandi ríkisstjórn tekur til þess að vinda ofan af íþyngjandi kröfum sem lagðar voru á fólk og fyrirtæki á undanförnum árum, og margt smátt gerir eitt stórt. Einhvern veginn virtist það hafa gleymst að þegar settar eru kvaðir á atvinnulíf þá verður slíkt að vera stutt málefnalegum rökum – og sönnunarbyrðin liggur alltaf hjá stjórnvöldum. Með þessum laga- og reglugerðarbreytingum eyðum við óþarfa töfum og sköpum sveigjanlegra umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki sem eru að hefja nýja starfsemi eða færa út kvíarnar. Þetta skiptir máli,“ er haft eftir Jóhanni Páli í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Afgreiðslu starfsleyfa flýtt um allt að fjórar vikur Stjarnan fær stóran bita Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Gunnlaugur Árni heiðraður í Bandaríkjunum Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Kerfi sem skapar biðlista Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sveitarfélögin fá bílhræin til úrvinnslu Vísar hagsmunaárekstrum á bug Sogaðist nærri því út um glugga í miðju flugi Skipti úr já-i í nei Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Engin fordæmi um undanþágur Andlát: Bragi Hannesson Vísar hagsmunaárekstrum á bug Varað við öflugum vindhviðum og sandfoki Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Dregur úr vætunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Afgreiðslu starfsleyfa flýtt um allt að fjórar vikur Stjarnan fær stóran bita Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Gunnlaugur Árni heiðraður í Bandaríkjunum Umræðan Ábyrgð og árangur í ríkisrekstri Kerfi sem skapar biðlista Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgarbúar hvattir til að halda sig heima „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Fyrir hverja er kerfið? Innleiða þarf allt reglusafn ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Engin fordæmi um undanþágur Andlát: Bragi Hannesson Vísar hagsmunaárekstrum á bug Varað við öflugum vindhviðum og sandfoki Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Samskipti Þorgerðar og Jettens ekki í yfirlitinu Dregur úr vætunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“

Share this article