Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skýr stefna í erlendum rekstri Eimskips

Read Full Article →

Eimskip hefur víðtækan rekstur erlendis með 39 starfsstöðvum í 19 löndum. Á dögunum var tilkynnt um nýja siglingaleið sem styrkir heimamarkaði okkar í Norður-Evrópu enn frekar. Stefna Eimskips í erlendum rekstri hefur verið skýr þar sem lagt er áherslu á að bjóða víðtæka þjónustu í tengslum við siglingakerfi félagsins en einnig í alþjóðlegri flutningsmiðlum um allan heim. Alls starfa hjá Eimskip nærri 800 starfsmenn erlendis og er flutningsmiðlunin okkar einnig tækifæri til vaxtar. Ný siglingaleið gefur fjölmörg tækifæri Eimskip mun hefja nýja siglingaleið frá Færeyjum til Rotterdam í byrjun ágúst og nokkrum vikum seinna munum við tengja þessa nýju leið við Álasund í Noregi. Þessi nýja vikulega þjónusta mun skapa fjölmörg tækifæri til vaxtar og auka þjónustu við okkar viðskiptavini. Þessi þróun styður beint við nýja framtíðarsýn Eimskips um að tengja samfélög og skapa hagsæld. Stöðugur vöxtur hefur verið í útflutningi á ferskum laxi frá Færeyjum og mun þessi þjónusta styðja vel við þá þróun. Einnig eru fjölmörg tækifæri til vaxtar í Noregi, til dæmis að bjóða þaðan gámaþjónustu til meginlands Evrópu og áfram víða um allan heim í gegnum stærstu höfn í Evrópu, Rotterdam. Hér mun einnig myndast nýr tengipunktur á milli frystiskipaþjónustu Eimskip í Noregi og nýju gámalínunnar. Þannig munu við geta boðið okkar viðskiptavinum í Noregi víðtækari þjónustu, bæði með tengingu við áætlunarsiglingakerfi félagsins en einnig í gegnum stóru skipafélögin til að dreifa til fjarlægari landa. Alþjóðleg flutningsmiðlun Sérstaða Eimskips í flutningsmiðlun á frystum og kældum afurðum hefur skapað sterkan grunn fyrir uppbygginu á alþjóðlegri flutningsmiðlun félagsins. Eimskip tók stefnumarkandi ákvörðun árið 2004 að byggja þessa þjónustu kerfisbundið upp sem hefur styrkst og verið í stöðugum vexti, bæði í magni og fjölgun starfsstöðva víða um heim. Mikilvægustu flutningaleiðir eru á milli Evrópu og Asíu, en um þessar mundir hefur verið góður vöxtur í Afríkulöndum. Eimskip er bæði að flytja ýmsar kjötvörur inn til Afríku en jafnframt hefur útflutningur á sjávarafurðum frá Afríku aukist til Asíu. Einnig hafa byggst upp flutningar milli Afríkulanda og erum við sjá svipaða þróun og við uppbyggingu flutninga innan Asíu. Þetta er áhugavert svæði sem við sjáum fyrir okkur verulegan vöxt á, á komandi árum. Nýjar starfsstöðvar í Kína og Tyrklandi Mikilvægur þáttur í uppbyggingu á þjónustu félagsins er að stækka þjónustunetið og hluti af því er að opna starfsstöðvar á nýjum markaðssvæðum eða löndum. Nýjustu starfsstöðvar félagsins eru tvær nýjar skrifstofur í Kína, í Shanghai og Tianjin og er Eimskip komið nú með sex skrifstofur þar í landi. Einnig er stutt síðan að Eimskip opnaði skrifstofu í Izmir í Tyrklandi en þar höfum við vaxið mikið í útflutningi á kjúklingum og eggjum einkum til Miðausturlanda, Afríku og Asíu. Tyrkland er mikilvægur tengipunktur milli Evrópu og Asíu og mikil vaxtartækifæri þar í landi. Fleiri markaðir og aukið þjónustuframboð Eimskip hefur einkum lagt áherslu á innri vöxt og framúrskarandi þjónustu í erlendu starfseminni sem er byggt á framtíðarsýn félagsins. Framtíð flutninga snýst ekki aðeins um að flytja vörur á milli staða heldur að skapa verðmæti með tengingum, tækni og nýjum leiðum. Með skýra stefnu og metnaðarfulla framtíðarsýn stendur Eimskip á spennandi tímamótum. Við sjáum fram á enn frekari stækkun á komandi misserum, bæði á núverandi starfsstöðvum og einnig að koma okkur fyrir í nýjum löndum og auka þannig þjónustuframboð okkar inn á ný markaðssvæði. Höfundur er framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Eimskips Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article