Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandero siglir frá Íslandi til Írlands

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Band­ero siglir frá Ís­landi til Ír­lands Iðunn Andrésdóttir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, siglir nú til Írlands til að koma slösuðum skipverja undir læknishendur. Frá þessu greinir Paul Watson sjálfur á Facebook-reikningi sínum. Hann segir öryggi áhafnar Bandero ávallt í öndvegi. Skipið stoppi þó aðeins stutt á Írlandi og snúi brátt við aftur til Íslands og muni áfram reyna að koma í veg fyrir hvalveiðar Hvals hf. Paul Watson og Bandero. Samsett Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf „Við höfum áhyggj­ur en við erum ekki að pan­ikka“ Formaður Samtaka arkitektastofa segir svo virðast sem hönnunarverkefnum fari fækkandi og að hægt hafi á íbúðaruppbyggingu. Það sé áhyggjuefni. Hann viti til þess að einhverjar uppsagnir hafi átt sér stað. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Ætla í allar sund­laug­ar lands­ins: „Þetta er skemmti­legt feðga­verk­efni“ Feðgarnir Friðrik Þórðarson og Leó Friðriksson ætla að fara í allar sundlaugar landsins. Þeir hafa nú þegar heimsótt 92 af 127 en geta ekki nefnt neinar sem standa upp úr. Allar hafi laugarnar sinn sjarma. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Mark­mið Ís­lands ýfa fjaðr­ir í Evrópu Framkvæmdastjóri SFS segir andstöðu evrópskra þingmanna við kröfur Íslands um undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB vekja upp spurningar um hvort það sé yfirhöfuð raunhæft að hefja aðildarviðræður. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Belgar fyrst­ir til að skora hjá Spán­verj­um - allt jafnt Staðan er 1-1 hjá Spáni gegn Belgíu í 8-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Leikurinn hófst klukkan 19:00 á RÚV. Spánverjar höfðu ekki fengið mark á sig þar til í dag. Markvörðurinn Unai Simon á HM metið yfir flestar mínútur án þess að fá á sig mark. Tielemans fyrirliði Belga meiddist í upphitun. Hér fylgjumst við með gangi mála í Los Angeles á lifandi leikdagsvakt og birtum helstu atvik. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Þeirra ævi fór bara á pásu allan þennan tíma“ Verjandi sakbornings í hryðjuverkamálinu segir það blasa við að umbjóðandi sinn sæki skaðabætur til ríkisins vegna meðferðar málsins sem tekið hafi of langan tíma. Hann segir það fagnaðarefni að niðurstöðu Landsréttar hafi ekki verið áfrýjað. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump sam­þykk­ir frek­ari við­ræð­ur við Írana Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur samþykkt beiðni Írana um viðræður en ítrekar að vopnahléinu þar sé lokið. Stjórnvöld í Katar og Egyptalandi hafa óskað eftir því að viðræður um frið hefjist sem fyrst. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Hestar Skeið­kóng­ur­inn samur við sig Knapinn knái, Konráð Valur Sveinsson, var samur við sig í skeiðkappreiðum Landsmóts hestamanna og tryggði sér gull bæði í 150 og 250 metra skeiði. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Þús­und­ir fögn­uðu Salah og fé­lög­um Þúsundir aðdáenda tóku á móti egypska landsliðinu í fótbolta þegar það kom heim til Egyptalands í dag. Fólk hópaðist saman við El-Alamein alþjóðaflugvöllinn, spilaði tónlist og veifaði myndum - ekki síst skærustu stjörnunni Mohammed Salah. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Skamm­byss­an óvana­leg gjöf en áhuga­verð Forsætisráðherra hyggst ekki nota skammbyssuna sem hún fékk að gjöf frá Tyrklandsforseta. Byssan verður gerð óvirk í sendiráði Íslands í Noregi. Fylgjendafjöldi forsætisráðherrans á Instagram hefur þrefaldast á síðustu dögum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Neitar að hafa stung­ið mann í bíla­kjall­ara og segist hafa haldið á afr­ísk­um tann­bursta Manni sem er gefið að sök að hafa reynt að ráða öðrum manni bana í bílastæðakjallara í Borgartúni neitar sök. Hann segist ekki hafa stungið manninn og segist halda á afrískum tannbursta í myndbandsupptöku af árásinni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hryðju­verka­mál­inu lokið — Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­ar ekki Ríkissaksóknari ætlar ekki að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í hryðjuverkamálinu. Með dóminum voru tveir menn sýknaðir af tilraun til hryðjuverka. Þeir voru hins vegar sakfelldir fyrir stórfelld vopnalagabrot. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Inga Sæland þver­tek­ur fyrir að hafa farið í áfeng­is­með­ferð Mennta- og barnamálaráðherra blæs á sögusagnir um að hún eigi við áfengisvandamál að stríða og hafi leitað sér aðstoðar á meðferðarheimilinu Vogi. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Ég klár­aði bara mán­að­ar­laun­in mín og borð­aði svo hafra­graut“ Sara Björk Gunnarsdóttir bíður spennt eftir að fá að klæðast Haukatreyjunni á ný. Hún hefur komið víða við í atvinnumennskunni. Hér rifjar hún upp hark í Svíþjóð, brautryðjandi réttindabaráttu og ævintýrin sem Sádí-Arabía bauð upp á. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Þrýsti á Trump að stöðva átökin í Íran Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa komið skýrum skilaboðum til Bandaríkjaforseta um að átökunum í Íran þurfi að linna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Fjölga greiðslu­leið­um til að mæta nýjum ógnum Innleiðing netlausra greiðslna er hafin og á næsta ári verður hægt að greiða í verslunum með millifærslum. Breytingarnar eru liður í því að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins á Íslandi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yf­ir­mað­ur úkra­ínska hers­ins: „Langt í vendi­punkt í stríð­inu“ Yfirmaður úkraínska hersins segir að það sé langt í einhvern vendipunkt í stríðinu þrátt fyrir að Úkraínumönnum hafi vaxið ásmegin síðustu vikur. Úkraínumenn réðust áfram á rússneskar olíuhreinsistöðvar í morgun. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Vilja stofna rann­sókna­set­ur um ís­lenska hest­inn Viljayfirlýsing um stofnun rannsóknarseturs um íslenska hestinn var undirrituð á Landsmóti hestamanna. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Fær viku­frí frá HM stof­unni til þess að þjálfa krakka á Spáni Eiður Smári Guðjohnsen hefur slegið í gegn í HM stofunni upp á síðkastið og heillað áhorfendur með sérfræðikunnáttu sinni og sýn á leiki mótsins. Eiður verður frá í viku en kemur síðan ferskur í úrslitaleikinn. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf At­vinnu­vega­ráð­herra um Elkem: „Lyk­ilmark­mið­ið okkar allra að verja al­þjóð­lega sam­keppn­is­hæfni“ Atvinnuvegaráðherra segir yfirvöld halda áfram að sinna hagsmunagæslu til að auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði. Elkem á Íslandi hefur verið skilgreint sem aflögð starfsemi af móðurfélaginu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Við­gerð í Búr­fells­virkj­un á loka­metr­un­um – orku­skerð­ing­um aflétt Búið er að aflétta raforkuskerðingum sem var gripið til á miðvikudag vegna bilana í spenni í Búrfellsvirkjun. Viðgerð á spenninum er á lokametrunum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Áfram­hald­andi vanda­mál með Neyð­ar­línu­sím­töl – Ástr­al­ir við­ur­kenna mistök Enn berast fregnir af að Íslendingar nái ekki í gegn til Neyðarlínunnar. Eins árs gamall sími frá Google náði ekki í gegn þegar á þurfti að halda. „Veldur mér miklu óöryggi“ segir Bjarnheiður Kristinsdóttir. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Eldur í þaki fjög­urra hæða blokk­ar í Bryggju­hverfi Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum vegna elds í þaki blokkar í Bryggjuhverfi í Reykjavík. Verið var að bræða þakpappa og eldurinn breiddist um allt þakið, sem er gjörónýtt. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Með mann­skæð­ustu gróð­ur­eld­um síðari ára á Spáni Gróðureldarnir á Suður-Spáni stefna í að verða meðal þeirra mannskæðustu nokkru sinni í landinu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru 11 látnir og 19 saknað. Talið er líklegt að mun fleiri eigi eftir að farast í eldunum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Sog­að­ist næstum út um glugga flug­vél­ar Farþegi sogaðist næstum út um glugga flugvélar á leið til Grikklands í morgun. Glugginn hrökk úr þegar brak úr hreyflinum lenti á honum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Telur In­sta­gram og Fac­e­book stuðla að net­fíkn Hönnun Instagram og Facebook samfélagsmiðlanna stuðlar að netfíkn, að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem birti í morgun frumniðurstöður rannsóknar á miðlunum. Rannsóknin gæti á endanum leitt til himinhárra sekta. 10. júlí 2026 kl. 9:46ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Bayeux-ref­ill­inn flutt­ur til Bret­lands í skjóli nætur Bayeux-refillinn var fluttur frá Frakklandi til Bretlands í nótt. Þetta er í fyrsta sinn í nærri þúsöld sem þetta merka listaverk snýr aftur á breska grund. 10. júlí 2026 kl. 9:42INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Kröfu um aug­lýs­ingu og um­sagn­ar­frest starfs­leyfa aflétt Umhverfisráðherra hefur með reglugerð aflétt kröfu um auglýsingu starfsleyfa og fjögurra vikna umsagnarfrest. 10. júlí 2026 kl. 9:39INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Horfðu beint í augun á máv­un­um og ekki gefa þeim fransk­ar Heimtufrekir hettumávar hafa látið til sín taka á ráðhústorgi á Akureyri í sumar. Gestir eru beðnir að kasta ekki til þeirra matarbita, svo þeim fjölgi ekki enn frekar. 10. júlí 2026 kl. 9:02INNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Skoða fram­tíð Elkem á Ís­landi Elkem hefur skilgreint Elkem á Íslandi sem aflagða starfsemi og tekið eignir til hliðar til sölu. Forstjóri Elkem á Íslandi segir ekki standa til að selja fyrirtækið. 10. júlí 2026 kl. 8:47INNLENDAR FRÉTTIR Veður Hviður að 35 m/s á Norð­vest­ur­landi Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við hvössum og byljóttum vindi á landinu norðvestanverðu frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður geta farið í 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar. Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls í ábendingu veðurfræðings til vegfarenda. RÚV / Bjarni Rúnarsson 10. júlí 2026 kl. 8:14ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Ung­lings­stúlka lést í fagn­að­ar­lát­um eftir leik­inn Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Frönsk unglingsstúlka lést

Share this article