Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul viðvörun víða um landið á morgun Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun vegna hvassra vindstrengja. Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og varir fram yfir miðnætti. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við 13 til 20 metrum á sekúndu og hviðum í kringum 30 metra á sekúndu við fjöll. Vindurinn er einkum varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Skjáskot / Veðurstofa Íslands Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Líklega of ódýrt að kæra Fjármálaráðherra segir óviðunandi að stórar opinberar framkvæmdir tefjist vegna kærumála. Hann boðar frumvarp í haust um opinberar framkvæmdir sem tekur meðal annars á kærum vegna útboða. Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Friða fiskihjalla í Fjallabyggð Fiskihjallar sem standa við Kleifarhorn og Ósbrekkusand í Ólafsfirði verða friðaðir. Bæjarráð Fjallabyggðar hefur líka ákveðið að reisa nýjan hjall í gamaldags stíl. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fyrrverandi ráðherra myrtur í Bretlandi Fyrrverandi ráðherrann og sjónvarpsstjarnan Ann Widdecombe fannst látin á heimili sínu með alvarlega áverka. Lögregla í Bretlandi rannsakar dauða hennar sem morð en segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Segir hagsmunum íslenskra heimila betur borgið innan ESB Varaformaður Evrópuhreyfingarinnar segir í þættinum Sama viðtalið um ESB að innganga í sambandið hjálpi íslenskum heimilum og þá sérstaklega þeim sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið. Lægri vextir séu þar lykilatriði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi í síðustu viku er látin. Þessu greinir Lögreglan á Suðurlandi frá. Konan fannst ásamt manni sínum í tjaldi í uppsveitum Árnessýslu þann 4. júlí. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi en konan var flutt á gjörgæslu þungt haldin. Lögreglu grunar að hitari, sem var inni í tjaldinu, hafi verið orsök gaseitrunar. Pexels / Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hljóðfráar eldflaugar skullu á Kænugarði Loftvarnarflautur gullu við í Kænugarði í nótt þegar Rússar gerðu enn eina árásina á borgina. Rússar beittu meðal annars hljóðfráum flaugum sem hæfðu skotmörk sín áður en borgarbúar fengu viðvörun. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjarasamningar smábátasjómanna: „Það er reikningsdæmi fram undan“ Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir „Viðræður eru í góðum farvegi og næsti fundur verður í ágúst,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Sjómenn á smábátum hafa upp á síðkastið fundað um kjaramál en síðustu tólf ár hafa þeir verið án samnings. Valmundur segir kröfur hafa verið kynntar og sumarið fara í útreikninga. „Það er reikningsdæmi fram undan.“ Viðræður um samninga smábátasjómanna fóru af stað árið 2024 eftir að samningur náðist við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um stærri skipin en runnu svo í sandinn. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. RÚV / Skjámynd Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Enn varasamir vindar á Norðvesturlandi – mjög hlýtt norðaustan- og austanlands Hæð vestur af Írlandi og lágur þrýstingur við suðurströnd Grænlands stýra veðrinu um helgina. Enn er hvasst á Norðurvesturlandi og mjög hlýtt norðaustan- og austanlands. Í næstu viku verður vætusamt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fötufés greifi: Alvöru stjórnmálamaður eða pólitískur grínari? Stjórnmálamaðurinn með ruslatunnu á höfðinu hefur verið mikið í umræðunni eftir að hann lýsti því yfir að hann ætlaði að bjóða sig fram gegn Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins, í aukakosningum. En hver er þetta í raun og veru? Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Hundruð þúsunda flutt á brott fyrir komu fellibyljarins Bavi Fellibylurinn Bavi fikrar sig nú í átt að austurströnd Kína. Tré rifnuðu upp með rótum í Taípei þó svo að fellibylurinn hefði ekki náð landi á Taívan. Á einni af syðstu eyjum Japans var stöðugur vindhraði 40 metrar á sekúndu þegar Bavi gekk þar yfir. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Hvað gerir Haaland gegn Englandi? Lokadagur 8-liða úrslitanna er í dag. Enska liðið, sem hefur orðið fyrir nokkrum skakkaföllum, mætir Erling Braut Haaland og félögum í Noregi. Ríkjandi heimsmeistararnir berjast við Sviss um sæti í undanúrslitum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Japanar gera árangursríka tilraun með endurnýtanlega eldflaug Tilraunaflugið varði aðeins í um 40 sekúndur. Flaugin náði um 10 metra hæð áður en hún lenti aftur, heilu og höldnu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump segir herinn tilbúinn til að útrýma Íran ef honum verður sýnt banatilræði Bandaríkjaforseti hótar Írönum öllu illu ef þeir gera tilraun til að ráða sig af dögum. Yfirvöld í Ísrael deildu í vikunni leyniþjónustugögnum með Bandaríkjamönnum sem sýna að Íranar hafi lagt á ráðin um að myrða forsetann. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Náttúra Kattarminta álíka áhrifarík til að fæla burt moskítóflugur og DEET Rannsóknir vísindamanna á áhrifum kattarmintu gætu leitt til þess að til verði ódýrari moskítófæla. Áhyggjur hafa auk þess vaknað af auknu þoli flugnanna gegn því eitri sem nú þegar er í notkun. 11. júlí 2026 kl. 1:55ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússlandsher gerir flugskeytaárás á Kænugarð Rússar hafa að undanförnu beint ofurhraðskreiðum skotflaugum í átt að úkraínsku höfuðborginni sem loftvarnarkerfi Úkraínumanna ráða illa við. 11. júlí 2026 kl. 0:43ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Apple sakar OpenAI um að stela viðskiptaleyndarmálum Einn af stjórnendum OpenAI, sem áður vann hjá Apple, er sakaður um að nýta atvinnuviðtöl til þess að fá viðkvæmar upplýsingar frá umsækjendum. Apple fullyrðir að OpenAI hafi ráðið til sín starfsfólk sem síðan ljóstraði upp um viðskiptaleyndarmál. 10. júlí 2026 kl. 23:58ÍÞRÓTTIR Handbolti Raðsigurvegarinn Róbert Aron gerir upp ferilinn: „Ég væri nú að ljúga því“ Róbert Aron Hostert vann sjö Íslandsmeistaratitla í handbolta á afar færsælum ferli. En hvort er hann meira Framari eða Valsari? Af hverju var ömurlegt að vera í Eyjum eitt sumarið? 10. júlí 2026 kl. 23:39ÍÞRÓTTIR Frjálsar Bætti 27 ára gamalt heimsmet Keníski hlauparinn Emmanuel Wanyonyi bætti í kvöld 27 ára gamalt heimsmet í 1000 m hlaupi. Þetta var hans fyrsta 1000 m hlaup á ævinni. 10. júlí 2026 kl. 23:36INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Aðstoðuðu dreng sem festi fótinn í trjágróðri Grétar Þór Sigurðsson Slökkviliðsmaður úr slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þórgunnur Oddsdóttir Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning upp úr klukkan tíu í kvöld um reyk á Hólmsheiði. Í ljós kom að reykurinn stafaði af varðeldi við sumarhús og því var óþarfi fyrir slökkviliðsmenn að aðhafast að sögn varðstjóra. Síðdegis í dag barst tilkynning um fjögurra ára gamlan dreng sem hafði fest fótinn í trjágróðri við leik í Garðabæ. Hann var losaður eftir að aðstoð barst. Þá voru slökkviliðsmenn kallaðir út í efri byggðir Reykjavíkur um klukkan níu vegna vatnstjóns í heimahúsi. 10. júlí 2026 kl. 22:35ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Spánn — Belgía Spánn vann Belgíu 2-1 í 8-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Þeir mæta Frökkum í undanúrslitum. Spánverjar höfðu ekki fengið mark á sig á HM þar til í dag. Markvörðurinn Unai Simon á HM metið yfir flestar mínútur án þess að fá á sig mark, 650 alls. 10. júlí 2026 kl. 22:32INNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Gestir tjaldsvæða ekki meðvitaðir um brunahættu Gestir eru almennt ekki meðvitað um brunahættur á tjaldsvæðum. Eldfimur útilegubúnaður og þéttsetin tjaldsvæði geta skapað miklar hættur. 10. júlí 2026 kl. 22:31ÍÞRÓTTIR Fótbolti Valur og Stjarnan gerðu jafntefli Jóhann Páll Ástvaldsson Nadía Atladóttir. Mummi Lú Stjarnan og Valur gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild kvenna í fótbolta. Þóra María Hjaltadóttir kom Stjörnunni yfir á Hlíðarenda á þriðju mínútu og Stjarnan leiddi 0-1 í hálfleik. Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði metin á 67. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki. Stjarnan er sem fyrr í 3. sætinu en nú með átján stig. Valur er í 7. sæti með 10 stig, einu stigi frá fallsæti. 10. júlí 2026 kl. 20:34ÍÞRÓTTIR Golf Ragnhildur í þriðja sæti á English Open Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í þriðja sæti á Women's English Open sem er hluti af LET Access mótaröðinni. 10. júlí 2026 kl. 20:34INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Munum ekki hafa um annað að ræða en að ráðast að lífskjörum alþýðufólks“ verði evran tekin upp Formaður Eflingar segir að þegar óhjákvæmilegt efnahagsáfall ríði yfir muni Ísland ekki hafa annað val en að ráðast að lífskjörum alþýðufólks, verði evran tekin upp. Sveinn Andri Sveinsson gagnrýnir „auðvaldið“ fyrir eiginhagsmunagæslu. 10. júlí 2026 kl. 20:29ERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Karl Bretakonungur hitti barnabörnin í fyrsta sinn í fjögur ár Harry Bretaprins, eiginkona hans Meghan og börn þeirra heimsóttu bresku konungshjónin í dag. Þetta er fyrsta heimsókn fjölskyldunnar til Bretlands síðan að þau sögðu sig frá konunglegum skyldum sínum. 10. júlí 2026 kl. 20:13ÍÞRÓTTIR Tennis Sinner henti Djokovic heim annað árið í röð Jannik Sinner vann Novak Djokovic 3-0 í undanúrslitum Wimbledon mótsins í tennis. Alexander Zverev verður mótherji hans í úrslitum eftir sigur gegn heimamanninum Arthur Fery. 10. júlí 2026 kl. 19:54INNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Bandero siglir frá Íslandi til Írlands Iðunn Andrésdóttir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, siglir nú til Írlands til að koma slösuðum skipverja undir læknishendur. Frá þessu greinir Paul Watson sjálfur á Facebook-reikningi sínum. Hann segir öryggi áhafnar Bandero ávallt í öndvegi. Skipið stoppi þó aðeins s