Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Stór áfangi í stóru verki“

Read Full Article →

Opnað var fyrir bílaumferð yfir nýju brúna yfir Breiðholtsbraut snemma í gærmorgun. Tafir geta orðið á umferð næstu vikur þar sem framkvæmdir standa enn. Brúin liggur yfir Breiðholtsbraut milli Jaðarsels í Reykjavík og Vatnsendahvarfs í Kópavogi. Vegurinn var lokaður frá ellefu á fimmtudagskvöld meðan færsla umferðar var undirbúin. „Þetta er stór áfangi í mjög stóru verki. Við erum búin að vera með framkvæmdir í gangi síðan í september 2023 og verkið gengur út á að tengja Arnarnesveginn frá Breiðholtsbraut og inn á Austurkór og Rjúpnaveg í Kópavogi,“ segir Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.

Share this article