Íþróttir | Hestar | Morgunblaðið | 11.7.2026 | 13:48 | Uppfært 19:50 Er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar Hestamannafélagið Skagfirðingur var gestgjafi og það var tignarlegt að fylgjast með fánareið hestamannafélaganna á setningarhátíðinni. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Setningarathöfn Landsmóts hestamanna hófst með glæsilegri hópreið fulltrúa hestamannafélaganna inn á mótssvæðið en Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, setti mótið. Einnig ávörpuðu Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum, og Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar fjölmarga landsmótsgesti. Við þetta tilefni kynnti ráðherrann að á Hólum í Hjaltadal yrði starfrækt rannsóknasetur íslenska hestsins, en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð eftir setningarathöfn landsmótsins. Eitt af rannsóknasetrum HÍ Viljayfirlýsinguna undirrituðu Logi Már Einarsson, Silja Bára Ómarsdóttir rektor HÍ, Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, og Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar. Á setningarhátíðinni sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, að íslenski hesturinn væri hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferðaþjónustu, íþróttum, sögu og menningu. „Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknasetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag. Þannig verður sérstaða svæðisins að uppsprettu nýrrar þekkingar fyrir samfélagið allt og út í heim,“ sagði ráðherrann. Rannsóknasetrið verður hluti af Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands sem samkvæmt stofnsamningi nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands mun flytjast til HÍ á Hólum. Með stofnun þess verður rannsóknasetrið það fjórtánda í röðinni. Jafnframt er stefnt að því að innan fárra ára starfi tveir fastir starfsmenn við hvert rannsóknasetur víða um land. Sigurvegarar í B-úrslitum Eftir setningarathöfn á fimmtudagskvöld var keppt í B-úrslitum í tölti þar sem þær Sara Sigurbjörnsdóttir og Dísa frá Syðra-Holti sigruðu og unnu sér sæti í A-úrslitum með því að tryggja sér sjötta sætið. Hinrik Bragason og Hugur frá Hólabaki urðu í sjöunda sæti með 7,67 og í því áttunda varð Hermann Arason á Náttrúnu Ýri frá Herríðarhóli. Elva Rún Jónsdóttir og Björt frá Feti unnu B-úrslitin í ungmennaflokki og mæta því í A-úrslitin á morgun. Á eftir henni kom Fanndís Helgadóttir á Hraunhamri frá Ragnheiðarstöðum með 8,75 í einkunn og Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal með 8,70 í einkunn. Ráðherra setti mótið og tilkynnti stofnun rannsóknaseturs. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Róbert Darri Edwardsson og Rökkvi frá Hólaborg unnu B-úrslitin í unglingaflokki með 8,77 í einkunn og mæta þeir því galvaskir í A-úrslitin á sunnudag. Á eftir þeim urðu Unnur Rós Ármannsdóttir á Glóa frá Brjánsstöðum með 8,70 í einkunn og á eftir þeim Eyvör Vaka Guðmundsdóttir á Birtu frá Bakkakoti með 8,68 í einkunn. Kynbótahross verðlaunuð Efst í flokki fjögra vetra hryssna er Tíbrá frá Eystri-Hól og Ævar Örn Guðjónsson, í öðru sæti er Hrefna frá Hemlu II með 8,47 í aðaleinkunn, sýnd af Vigni Siggeirssyni, og í þriðja sæti var Happadís frá Brekku með 8,41. Efst í flokki fimm vetra hryssna er Glíma frá Grund, sýnd af Daníel Jónssyni, með 8,65 í einkunn, í öðru sæti var Fljóð frá Syðri-Gegnishólum og Bergur Jónsson með 8,62 og í þriðja sæti var Þórkatla frá Feti, sýnd af Viðari Ingólfssyni, með 8,37 í aðaleinkunn. Í sex vetra flokknum stendur Hugsýn frá Ketilsstöðum efst með 8,91, sýnd af Elínu Holst og á eftir henni er Melrós frá Hemlu II með 8,77 og Helga Una Björnsdóttir og sú þriðja er Brynja frá Nýja-Bæ með 8,75 í aðaleinkunn, sem Brynja Kristinsdóttir sýndi. Sparta frá Eystra-Fróðholti er efst í flokki sjö vetra og eldri, sýnd af Jóni Ársæli Bergmann, með 8,94, í öðru sæti eru Blíða frá Bergi og Þorgeir Ólafsson með 9,92 og í þriðja sæti var Hetja frá Ragnheiðarstöðum, einnig sýnd af Þorgeiri. Í flokki fjögra vetra stóðhesta eru efstir þeir Sigur frá Leirulæk með 8,51, sýndur af Þorgeiri Ólafssyni. Þokki frá Skipaskaga og Árni Björn Pálsson eru í öðru sæti með 8,49 og í þriðja sæti er Kjarval frá Hafnarfirði með 8,46, sem Þorgeir sýndi líka. Tinni frá Árdal er efstur í fimm vetra flokknum með 9,10, sýndur af Árna Birni Pálssyni, og í öðru til þriðja sæti sýndi Þórarinn Eymundsson þá Þrótt frá Hæli með 8,77 og Hengil frá Hestkletti með 8,76 í aðaleinkunn. Í sex vetra flokknum eru efstir þeir Dalvar frá Efsta-Seli og Daníel Jónsson með 9,01 aðaleinkunn og á eftir þeim er Miðill frá Hrafnagili og Árni Björn með 8,75. Í þriðja sæti er Víkingur frá Hofi I með 8,72 í aðaleinkunn, sýndur af Teiti Árnasyni. Það er svo Safír frá Laugardælum sem leiðir elsta flokkinn með nýju heimsmeti, 9,13 í aðaleinkunn, sýndur af Jakobi Svavari og í öðru sæti er Agnar frá Margrétarhofi með 8,81, sýndur af Þorgeiri Ólafssyni. Í þriðja sæti í þessum flokki var svo Gauti frá Vöðlum með 8,79 í aðaleinkunn, sýndur af Teiti Árnasyni. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Laugavegshlaupið 2026 Lést aðeins nokkrum vikum eftir HM Fyrrverandi leikmaður Þórs og Hamars var myrtur Messi: Ég brást liðinu Harry Kane hrósaði Trump Eiga Norðmenn raunhæfan möguleika? Fyrrverandi leikmaður Arsenal og City handtekinn Spáir evrópskum úrslitaleik á HM Ungstirnið mun þéna meira en Mbappé Tveggja leikja bann og engin skýring Einkaþota og lúxusmatur dugðu ekki til Íslendingurinn óvænt orðaður við West Ham Spánn í undanúrslit eftir dramatískan sigur „Margir sem halda að ég sé orðin klikkuð“ Lætur leikmenn og þjálfarann fá það óþvegið Aðeins eitt lið sem getur stöðvað Frakka Gríðarlegt högg fyrir Víkinga Öll pressan á Englandi Óvæntustu úrslit sumarsins í Úlfarsárdal Gunnlaugur Árni heiðraður í Bandaríkjunum Englendingar áfram eftir lygilegan leik Mbappé: „Þú ert fyrirlitleg kona“ Neymar í sárum og hættir Egyptar gjörsamlega brjálaðir: „Við vorum dæmdir úr leik“ Svona líta átta liða úrslitin á HM út Yfirlýsing frá forseta FIFA Belgar fóru illa með gestgjafana Myndskeið: Gekk hrærður úr miðju viðtali Norðmenn flýja í Miami Ronaldo slær á sögusagnirnar Fleira áhugavert Telja eldinn slokknaðan: Talsvert tjón á einni íbúð Rannsókn á upptökum brunans lokið: Meta tjónið Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Laugavegshlaupið 2026 Lést aðeins nokkrum vikum eftir HM Fyrrverandi leikmaður Þórs og Hamars var myrtur Messi: Ég brást liðinu Harry Kane hrósaði Trump Eiga Norðmenn raunhæfan möguleika? Fyrrverandi leikmaður Arsenal og City handtekinn Spáir evrópskum úrslitaleik á HM Ungstirnið mun þéna meira en Mbappé Tveggja leikja bann og engin skýring Einkaþota og lúxusmatur dugðu ekki til Íslendingurinn óvænt orðaður við West Ham Spánn í undanúrslit eftir dramatískan sigur „Margir sem halda að ég sé orðin klikkuð“ Lætur leikmenn og þjálfarann fá það óþvegið Aðeins eitt lið sem getur stöðvað Frakka Gríðarlegt högg fyrir Víkinga Öll pressan á Englandi Óvæntustu úrslit sumarsins í Úlfarsárdal Gunnlaugur Árni heiðraður í Bandaríkjunum Englendingar áfram eftir lygilegan leik Mbappé: „Þú ert fyrirlitleg kona“ Neymar í sárum og hættir Egyptar gjörsamlega brjálaðir: „Við vorum dæmdir úr leik“ Svona líta átta liða úrslitin á HM út Yfirlýsing frá forseta FIFA Belgar fóru illa með gestgjafana Myndskeið: Gekk hrærður úr miðju viðtali Norðmenn flýja í Miami Ronaldo slær á sögusagnirnar Fleira áhugavert Hitinn gæti náð 25 stigum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Spurningin kom Ingu rosalega á óvart Telja eldinn slokknaðan: Talsvert tjón á einni íbúð