Hagnaður IS Haf fjárfestinga, fjárfestingarsjóðs í eigu Íslandssjóða, nam 349 milljónum króna árið 2025, samanborið við 28 milljóna króna tap árið áður. Fjármunatekjur að frádregnum fjármagnsgjöldum námu 456 milljónum króna og jukust um 361 milljón króna milli ára. Þar vega gangvirðisbreytingar fjárfestinga félagsins mest, um 434 milljónir króna. Rekstrargjöld námu 107 milljónum króna á síðasta ári, samanborið við 124 milljónir árið áður. Fjárfestingar ársins námu 3,3 milljörðum króna sem er aukning um 2 milljarða frá fyrra ári. Á árinu lauk félagið fjárfestingu í NP innovation, sem framleiðir búnað notaðan í landeldi, og fjárfesti í breytanlegu skuldabréfi í Zym Ice hf., sem framleiðir vörur undir Unbroken-vörumerkinu. Þá tók félagið þátt í hlutafjáraukningum í Kapp ehf. og Thor landeldi. Einnig styrkti félagið stöðu sína í norska líftæknifyrirtækinu Regenics AS. Í árslok hafði félagið fjárfest fyrir 54% af heildarhlutafjárloforðum sínum. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar árið 2023 og sérhæfir sig í fjárfestingum í haftengdri starfsemi. Fjárfestingarstefna sjóðsins nær yfir virðiskeðju eldis- og sjávarafurða, allt frá hráefni til tæknifyrirtækja, innviða, líftækni og markaðssetningar. Kristrún Auður Viðarsdóttir er framkvæmdastjóri sjóðsins. Sjá einnig IS Haf kaupir meirihluta í NP Innovation Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 7. júlí.