Innlent | mbl | 12.7.2026 | 12:52 Myndir: Úrslit Landsmóts hestamanna gerð upp Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson eru sigurvegarar Landsmótsins í ár. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Stofna rannsóknarsetur um íslenska hestinn Myndir: Glæsileg setning landsmóts „Dómararnir gera mig hálfblankan“ Konráð og Kjarkur sigruðu 150 metra skeiðið Myndir: Góð stemning á Hólum » Fleiri tengdar fréttir Sigurvegarar Landsmóts hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal í vikunni eru þeir Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson með hvorki meira né minna en 9,13 í aðaleinkunn. Á eftir þeim félögum komu þeir Askur frá Holtsmúla 1 og Ásmundur Ernir Snorrason með einkunnina 9,07 og í því þriðja Gandi frá Rauðalæk og Guðmundur Björgvinsson með 8,84. Þessi fína mynd var tekin við komu forsetahjónanna á Landsmót. Ljósmynd/Malen Áskelsdóttir Halla Tómasdóttir forseti Íslands heiðraði gesti jafnframt með nærveru sinni og veitti verðlaun á lokadegi mótsins. Með þessari stórglæsilegu sýningu í örlítið krefjandi vindi lauk Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2026 . Ásmundur og Hlökk voru stórglæsileg. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Sló heimsmet í töltinu Ásmundur Ernir sló einnig heimsmet ásamt merinni Hlökk frá Strandarhöfða, en þau fengu hvorki meira né minna en 9,78 í aðaleinkunn fyrir tölt í A úrslitum og hafa aldrei áður verið gefnar fjórar 10 fyrir sama atriðið. Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni vörðu titil sinn og unnu A úrslit í Barnaflokki á Landsmóti Hestamanna með aðaleinkunn 9,06, en í flokki unglinga sigruðu Gabríel Liljendal Friðfinnsson og Ólsen frá Egilsá með aðaleinkunn 8,80. Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur taka við verðlaununum. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Ungmennin til prýði Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Kalsi frá Þúfum gerðu sér einnig lítuð fyrir og sigruðu A flokk Ungmenna með aðaleinkunn 8,71, Guðmar fékk líka afhentan Öderinn í framhaldi verðlauna fyrir A flokk Ungmenna Jóhanna Margrét Snorradóttir hlaut einnig Gregersen-styttuna, en hún sýndi fjölda hrossa á mótinu og þótti skara fram úr fyrir framúrskarandi reiðmennsku, snyrtimennsku og fagmennsku í umgengni við hross sín. Þá stóð Þráinn frá Flagbjarnarholti efstur stóðhesta með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og hlaut þar með hinn eftirsótta Sleipnisbikar, og stóðhesturinn Hannibal frá Þúfum hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Jafnframt varði Íbishóll titilinn sem sigurvegari ræktunarbúa. Íbishóll varð aftur sigurvegari ræktunarbúa, og tóku Magnús og María á móti verðlaunum. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Gabríel Liljendal Friðfinnsson og Ólsen frá Egilsá eru Landsmótssigurvegarar í unglingaflokki. Ljósmynd/Kolla Gr. Gísli Gíslason og Mette Mannseth taka við Orrabikarnum frá Önnu Berglindi Indriðadóttur fyrir frammistöðu Hannibals frá Þúfum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal með Öder bikarinn. Ljósmynd/Kolla Gr. Þórarinn Eymundsson situr Þráinn og við hlið hans eru ræktendur, eigendur, Frú Halla Tómasdóttir Forseti Íslands, Ólafur Þórisson formaður deildar hrossabænda og Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands. Jóhanna Margrét Snorradóttir hlýtur Gregersen styttuna. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Stofna rannsóknarsetur um íslenska hestinn Myndir: Glæsileg setning landsmóts „Dómararnir gera mig hálfblankan“ Konráð og Kjarkur sigruðu 150 metra skeiðið Myndir: Góð stemning á Hólum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Barðist við tárin eftir leik Smart að kaupa notaðar vörur Neyddist til að fara í felur eftir klúður á HM Myndir: Úrslit Landsmóts hestamanna gerð upp 23 bjargað og eins saknað eftir árás á skip nálægt Óman Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland græði ekkert á aðild að ESB Tvær hindranir í vegi orkuskipta Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Á þyrlu um landið þvert og endilagt Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna Varað við sterkum hviðum og sandfoki Tvær hindranir í vegi orkuskipta Með tilfinningu fyrir tölum Sýndarmyndböndin eins og lyklar Sundlaugagarður í Laugardalnum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Nýjast á mbl.is » Barðist við tárin eftir leik Smart að kaupa notaðar vörur Neyddist til að fara í felur eftir klúður á HM Myndir: Úrslit Landsmóts hestamanna gerð upp 23 bjargað og eins saknað eftir árás á skip nálægt Óman Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tvær hindranir í vegi orkuskipta Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Smart að kaupa notaðar vörur Hitinn gæti náð 25 stigum Mest lesið Í gær Í vikunni Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Á þyrlu um landið þvert og endilagt Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna Varað við sterkum hviðum og sandfoki Tvær hindranir í vegi orkuskipta Með tilfinningu fyrir tölum Sýndarmyndböndin eins og lyklar Sundlaugagarður í Laugardalnum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima