Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óttast að nýr Landspítali gleypi stóran hluta fjármagns

Read Full Article →

Ágúst Birgisson lýtalæknir telur Ísland að einhverju leyti hafa orðið erfiðari vettvang fyrir fjárfestingar í heilbrigðisþjónustu og óttast að aukinn rekstrarkostnaður nýs Landspítala geti haft áhrif á aðra þætti heilbrigðiskerfisins til lengri tíma. „Þennan spítala verður aldrei hægt að reka á góðan hátt, eins og fyrirtæki ætti að reka. Allar deildir þessa spítala verða fjársveltar. Þær munu aldrei fá nóg, vegna þess að reksturinn verður svo dýr. Við höfum ekki efni á að reka þetta,“ segir Ágúst. Hann segist hafa áhyggjur af því að stór hluti fjármagns til heilbrigðismála á komandi árum, muni renna í rekstur spítalans. „Ég hef áhyggjur af því að rekstur spítalans muni gleypa stóran hluta fjármagns til heilbrigðismála á komandi árum, sem deilist milli annarra og að minna svigrúm verði þá til annarrar þjónustu innan kerfisins.“ segir Ágúst. Að hans mati verður áframhaldandi samvinna milli opinberra stofnana og einkarekinna stofa lykilatriði, ef mæta eigi vaxandi þjónustuþörf í samfélaginu. „Við þurfum bæði kerfin. Ég held að það sé einfaldlega hagkvæmasta leiðin til að reka gott heilbrigðiskerfi fyrir íslenskt samfélag.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article