Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH tók fram úr ÍR yfir flesta sigra á bikarmótum í frjálsum

Read Full Article →

Bikarmóti Frjálsíþróttasambands Íslands lauk á ÍR-svæðinu í Breiðholti í dag. Aðstæður í Skógarseli voru krefjandi því það blés hressilega á keppendur. Meðal þeirra voru nokkur sem undirbúa sig undir EM í Birmingham sem fram fer í ágúst. Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir hafa barist um Íslandsmetið í sleggjukasti að undanförnu. Það er nú í höndum Guðrúnar og stendur í 73,88 metrum. Það var ekki beint veður til bætinga í dag enda nokkuð hvasst. Guðrún Karítas vann sleggjuna með með kasti upp á 71,06 metra og Elísabet Rut kastaði 67,23 metra. FH varð í dag þrefaldur bikarmeistari í frjálsum íþróttum og tók þar með fram úr ÍR yfir flesta sigra á bikarmótum. Þetta var 26. bikarmeistaratitill FH. Erfiðar veðuraðstæður voru á á keppnissvæðinu. Þær stefna báðar á EM eins og spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson. Hann hefur lengst kastað 82,55 metra en í dag vann hann spjótkastið með kasti upp á 76,99 metra. Hann segir aðtstæðurnar vitanlega hafa verið krefjandi. Í heildarkeppninni voru sex lið skráð til leiks. FH leiddi eftir gærdaginn og hélt forystunni í dag. FH lauk keppni með 183 stig í heildarkeppninni, 12,5 stigum á undan ÍR sem fékk 170,5 stig. Fjölnir varð í þriðja sæti með 129 stig. FH varð þrefaldur meistari en liðið varð bikarmeistari í heildarkeppninni ásamt því að vinna bæði karla- og kvennakeppnina. FH vann kvennakeppnina með 95 stig gegn 88 stigum ÍR og karlakeppnina með 88 stig, 5,5 stigum á undan ÍR. FH 26 titlar - ÍR 25 titlar FH tekur nú fram úr ÍR í sigrum á bikarmótinu því bæði lið höfðu til þessa unnið 25 sinnum en nú hefur FH unnið það 26 sinnum. Nánar er fjallað um mótið á vef Frjálsíþróttasambandsins .

Share this article