Innlent | Morgunblaðið | 13.7.2026 | 8:15 Skólahald snýr aftur til Grindavíkur Bæjarstjórn segir þetta stórt skref í að ná samfélaginu aftur heim til Grindavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ » Fleiri tengdar fréttir Alls hafa 43 börn verið skráð í grunnskóla í Grindavík í haust. Bæjarstjórn segir þetta stórt skref í að ná samfélaginu aftur heim til Grindavíkur. „Fyrri bæjarstjórn tók ákvörðun um að hefja skólahald núna í haust og við í nýkjörinni bæjarstjórn höldum þeirri ákvörðun til streitu. Við ætlum ekkert að hverfa frá því enda teljum við kominn tíma til,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. Í næstu viku verður eitt ár frá upphafi síðasta eldgoss á Reykjanesskaga og telur Guðbjörg að í ljósi þess að mikið hefur verið unnið að vörnum og varúðarráðstöfunum sé næsta skref að koma skólakerfinu aftur til starfa í bænum. Skólastjóri hefur verið ráðinn og 43 börn hafa verið skráð í grunnskólann í haust. Í samvinnu við menntamálaráðuneytið hefur verið gengið úr skugga um að allur aðbúnaður bæjarins er snertir skólastarf sé í lagi og því lítið því til fyrirstöðu að skólastarf hefjist í haust. Frétt af mbl.is Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Edurspeglar raunveruleikann Í haust verða þrjú ár liðin síðan Grindavíkurbær var rýmdur með tilheyrandi áhrifum og óvissu fyrir bæjarbúa, sem margir hverjir vilja nú fá að snúa aftur til sinna heimakynna. Útlit er fyrir að frá og með 1. september verði Grindvíkingum óheimilt að gista fleiri en 12 nætur í mánuði á sínum eigin heimilum samkvæmt uppfærðum samningum Fasteignafélagsins Þórkötlu við íbúa bæjarins. Þau áform hafa fallið í grýttan jarðveg síðan þau voru tilkynnt. „Okkur finnst þetta vera gríðarlega stórt skref í þá átt að ná samfélaginu aftur heim,“ segir Guðbjörg. „Við erum að vinna í húsnæðismálunum okkar og endurbættu áhættumati sem á að endurspegla raunveruleikann eins og hann er í Grindavík í dag.“ Bæjarstjórn og íbúar séu bjartsýn og jákvæð. „Hér vinna allt að 1.400 manns á hverjum einasta degi og nú vantar okkur bara íbúana í meira mæli heim,“ segir hún og ítrekar tröllatrú sína á því að afar bjart sé fram undan í endurreisn bæjarins. Fisktækniskólinn mun einnig snúa aftur til Grindavíkur í haust og þar koma tugir ungmenna til með að sækja nám. Þetta segir Guðbjörg mikil tímamót en eftirsókn eftir námi sem skólinn býður upp á hefur stóraukist á síðustu misserum. Frétt af mbl.is Aðsend grein: Kerfið sem át börnin sín Mikil tímamót Ráðið hefur verið í 5,4 stöðugildi í grunnskólann í Grindavík og þrjú og hálft stöðugildi í leikskólann í þokkabót. „Þannig að þetta eru mikil tímamót fyrir okkur Grindvíkinga og við erum að vinna í ýmsum spennandi verkefnum núna sem snerta endurreisn bæjarins og nýta okkur það sem við höfum upp á að bjóða eftir þessar hamfarir sem við gengum í gegnum.“ Guðbjörg er viss um að Grindavík og sveitarfélagið í kring verði vinsæll áfangastaður til að heimsækja í framtíðinni, þá sérstaklega í ljósi atburða síðustu ára. Þess vegna sé mikilvægt að afmá ekki öll ummerki þess sem raunverulega gerðist í Grindavík. Ríkisstjórnin og Grindavíkurnefnd hafa hingað til staðið gegn því að skólahald verði hafið að nýju í bænum þar sem ekki sé talið öruggt að stuðla að aukinni búsetu barna í bænum. Það hefur þó verið ljóst í umræðunni upp á síðkastið að mörgum íbúum Grindavíkur finnist þau rök sem færð eru fyrir óöryggi í bænum ekki endilega eiga sér stoð í raunveruleikanum. Guðbjörg Eyjólfsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. Hún segir endurkomu skólahalds til Grindavíkur mikil tímamót fyrir bæinn. mbl.is/María Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skólahald snýr aftur til Grindavíkur Besti árangur Haralds á tímabilinu Engar framkvæmdir á Grindvíkurvegi í dag Enginn dagur eins Leikarinn Sam Neill látinn Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Gæslumenn auðlindanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Evrópu vaxandi vandi á höndum Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Dularfullir kalkþörungar fegra Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi „Ansi gott álag þessa helgina“ Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Vilja vekja umræðu um jökulinn Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Smart að kaupa notaðar vörur Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Skólahald snýr aftur til Grindavíkur Besti árangur Haralds á tímabilinu Engar framkvæmdir á Grindvíkurvegi í dag Enginn dagur eins Leikarinn Sam Neill látinn Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Gæslumenn auðlindanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Evrópu vaxandi vandi á höndum Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi „Ansi gott álag þessa helgina“ Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Vilja vekja umræðu um jökulinn Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Smart að kaupa notaðar vörur Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“