Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Elliðaárnar krauma hreinlega af göngulaxi

  • What: Fish migration in Elliðaá river
  • Impact: Natural fish movement observed
Read Full Article →

Elliðárnar eru „bakkafullar af göngulaxi“ að sögn Jóhannesar Sturlaugssonar fiskifræðings. Þetta kemur fram í færslu Jóhannesar á Facebook. Hann hefur lengi stundað mælingar og rannssóknur á Elliðaánum. Einn lax á mínútu Mynd/Jóhannes Sturlaugsson „Á 12 klst kafla frá því kl. 17:00 í gær þar til kl. 4:59 í morgun gengu 572 laxar þannig að nánast 1 lax að meðaltali gekk upp um fiskteljarann í Elliðaárdalnum á hverri mínútu þann hálfa sólarhring. Í gær féll sólarhringsmetið frá 2024 þegar 466 laxar gengu upp fiskteljarann í Elliðaánum. Rétt er að nefna að þessu til viðbótar þá gengu 8 sjóbirtingar upp teljarann í gær og 4 til viðbótar í nótt,“ skrifar Jóhannes. Líkur á ný meti í lok dagsins í dag „Elliðaárnar krauma því hreinlega af laxi sem nýgenginn úr sjó er á leið sinni upp árnar. Líkt og tölurnar sýna þá fór fjöldi þessara göngulaxa í hæstu hæðir í gær og enn bætti í fjöldann í nótt. Lætin í göngunni í nótt voru slík að ef áframhald laxgengdarinnar þennan sólarhring verður í þeim takti þá er líklegt að nýtt sólarhringsgöngumet skili sér í lok dags,“ segir í færslu Jóhannesar frá því nú í morgun. Tvær lykilákvarðanir að baki Í viðtali í Fiskifréttum í maí síðasliðnum sagði Guðni Guðbergsson hjá Hafrannsóknastofnun að metgöngur í Elliðaárnar í fyrra tengdust bæði því að Elliðaárvirkjun hafi verið lokað þannig að rennsli ánna sé orðið býsna stöðugt og að stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur hafi ákveðið að frá árinu 2020 yrði öllum veiddum laxi í ánum sleppt.

Share this article