Innlent | mbl | 13.7.2026 | 10:35 | Uppfært 10:50 Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Rauður kamburinn tekur sig vel út á viðartittlingnum. Ljósmynd/Sverrir Þór Sigurðarson Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Viðartittlingur heldur nú til í Kjósinni. Fuglinn hefur ekki sést áður á Íslandi og aðeins einu sinni áður í Evrópu. Það var á Skáni í Svíþjóð fyrir um það bil áratug. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur staðfestir það í samtali við mbl.is. Hann fór í Miðdal í Kjósinni til að sjá fuglinn eins og tugir fuglaáhugamanna hafa gert. Heimkynni viðartittlingsins eru í Norður-Ameríku, þar sem tegundin kallast American Tree Sparrow á ensku. Latneskt heiti hans er Spizelloides arborea. Fuglinn fjölgar sér í norðanverðu Kanada og í Alaska. Sverrir Þór Sigurðarson fuglaljósmyndari náði þessum myndum af fuglinum í Kjósinni. Fleiri fuglamyndir eftir Sverri má finna á síðu hans hér . Viðartittlingur. Fuglinn sást í fyrsta sinn á Íslandi á dögunum. Ljósmynd/Sverrir Þór Sigurðarson Tugir fuglaáhugamanna í heimsókn Hafþór Finnbogason bóndi var sá sem sá fuglinn fyrstur fyrir utan heimili sitt í Miðdal í Kjósinni í fyrradag. Hann segir um 50 fuglaáhugamenn og -ljósmyndara hafa komið til að berja hann augum í gær og í dag. Bóndinn segist aðspurður ekki kippa sér upp við þær heimsóknir svo lengi sem þær séu ekki mjög snemma að morgni til eða seint á kvöldin og fólk fari gætilega í kringum dýrin. Þegar hann sá fuglinn fyrst vissi hann ekki hvaða tegund væri um að ræða. Rauður kambur og svartur blettur á bringu komu honum hins vegar á sporið og hann leitaði svara á netinu. Þá setti hann sig í samband við fuglafræðinga sem tjáðu honum að fuglinn hefði ekki sést áður á Íslandi og aðeins einu sinni í Evrópu. Hafþór segir fuglinn líklega enn halda til á svæðinu. Hann hafi síðast séð hann síðdegis í dag. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir langsótt að fuglinn hafi borist hingað með skipi. Ljósmynd/Sverrir Þór Sigurðarson Hvernig komst hann hingað? Umræða hefur skapast um komu fuglsins í Facebook-hópi fuglaáhugamanna á Íslandi. Þar segist einn hafa séð viðartittling um borð í skemmtiferðaskipinu Celebrity Silhouette í byrjun júlí. Sá birti myndband af fuglinum um borð í skipinu í Ísafjarðarhöfn, að því er virðist, þar sem skipið hafði viðkomu á leið til Reykjavíkur. Annar kveðst hafa séð viðartittling í lok júní um borð í skemmtiferðaskipi á leið til Íslands frá Nýfundnalandi með stoppi í Grænlandi. Jóhann Óli Hilmarsson, fyrrnefndur fuglafræðingur, gefur lítið fyrir þá skýringu að fuglinn hafi borist hingað með skipi. „Það er ekki hægt að útiloka það og ekkert hægt að fullyrða um það. En hvað er fugl að gera uppi í Kjós, hinum megin við Esjuna, sem tekur land í Reykjavík þar sem er nóg af görðum? Þetta er mjög, mjög langsótt skýring.“ Lægðagangur frá Ameríku Jóhann segir ekki útilokað að fuglinn hafi borist fljúgandi með vindáttinni frá Norður-Ameríku. „Það hefur verið alveg stöðugur lægðagangur frá Ameríku núna undanfarið. Þannig að það er alls ekkert útilokað. Og ef hann hefur komið með skipi þá er líklegra að hann hafi komið til Grundartanga, því að það er skammt undan.“ „Við erum þannig staðsett að við fáum fugla bæði vestan og austan megin hérna úti í miðju Atlantshafi. Við höfum fengið nokkrar tegundir sem eru að sjást í fyrsta skipti fyrir Evrópu.“ „En menn munu aldrei geta kveðið á um þetta. Ég held að hann verði alveg fullgildur sem tegund sem hefur komið til Íslands,“ segir Jóhann um fuglinn sem hann telur að hafi það fínt þrátt fyrir að vera dálítið styggur. Nóg sé fyrir hann að éta. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þjófur stal gítar úr Fíladelfíu Gagnrýna Haaland fyrir ummælin Þrjú kynferðisbrot svartur blettur Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Hætt við malbikun í Reykjanesbæ vegna veðurs Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Dularfullir kalkþörungar fegra Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Vilja vekja umræðu um jökulinn Engar framkvæmdir á Grindvíkurvegi í dag Smart að kaupa notaðar vörur Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Þjófur stal gítar úr Fíladelfíu Gagnrýna Haaland fyrir ummælin Þrjú kynferðisbrot svartur blettur Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Hætt við malbikun í Reykjanesbæ vegna veðurs Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Dularfullir kalkþörungar fegra Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Vilja vekja umræðu um jökulinn Engar framkvæmdir á Grindvíkurvegi í dag Smart að kaupa notaðar vörur Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“