Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Út í Rósagarð á kolmunna

  • What: Icelandic fishing company NK plans to hunt whales in July.
  • Impact: The company plans to resume whale hunting after a long hiatus.
Read Full Article →

Börkur NK hélt til kolmunnaveiða í íslenskri lögsögu í gær og ráðgert er að Beitir NK haldi einnig fljótlega til veiða í kjölfar hans. „Við höldum beinustu leið út í Rósagarð og munum byrja að leita þar og á Verkamannabankanum. Einu sinni var kolmunni veiddur á þessum slóðum í júlímánuði en það var áður en menn hófu makrílveiðar af krafti,“ segir Herbert Jónsson, skipstjóri á Berki, við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Á Stóra Berki var farið þarna í júlí fyrir tuttugu árum eða svo og þá var kolmunni þarna á ferðinni. Það tók okkur þá yfirleitt nokkra daga að fá í skipið, gjarnan 5 til 7 daga. Þá vorum við auðvitað með minni skip og minni veiðarfæri en nú tíðkast.“ „Það verður spennandi að prófa þetta núna í júlímánuði en á undanförnum árum hefur oft verið þokkalegasta kolmunnaveiði á þessum slóðum á haustin. Vegna þess hve makrílkvótinn er lítill þetta árið gefst okkur ráðrúm til að kanna hvort kolmunni heldur sig á þessum miðum í júlí eins og hann gerði á fyrri tíð. Væntanlega verður ekki farið að hyggja að makrílnum fyrr en komið verður fram í ágúst,” sagði Herbert.

Share this article