Innlent | mbl | 13.7.2026 | 12:05 Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Eldurinn kviknaði í vélarrúmi bátsins en slökkvistarf gekk greiðlega og fyrstu upplýsingar benda til þess að tjón sé ekki mikið. Ljósmynd/Eyjafréttir Ómar Óskarsson skrifar frá Vestmannaeyjum Setja bókamerki Allt slökkvi- og sjúkraflutningalið Vestmannaeyja var kallað út á ellefta tímanum í morgun þegar eldur kviknaði í vélarrúmi Maggýjar VE 108 þegar unnið var við bátinn. Eldurinn kviknaði í vélarrúmi bátsins en slökkvistarf gekk greiðlega og fyrstu upplýsingar benda til þess að tjón sé ekki mikið, að því er Eyjafréttir greina frá. Lögreglan hefur hafið rannsókn á eldsupptökum. Ljósmynd/Eyjafréttir Búa sig ávallt undir það versta Tilkynning barst slökkviliði um eld í vélbátnum Maggý VE 108, þar sem hann lá við bryggju Skipalyftunnar, á ellefta tímanum. „Við fengum tilkynningu um eld í báti og í ljós kom að um smávægilegan eld var að ræða í vélarrúminu. Búið er að slökkva eldinn og nú er verið að reykræsta,“ segir Gústaf Adolf Gústafsson, varaslökkviliðsstjóri, við Eyjafréttir . „Tjón af völdum eldsins er væntanlega ekki mikið en erfitt er að meta tjón af reyk á þessu stigi. Hjá okkur gekk allt samkvæmt áætlun, en við verðum alltaf að búa okkur undir það versta þegar eldur kemur upp í bátum og skipum.“ Lögregla rannsakar eldsupptök Lögreglan hefur hafið rannsókn á eldsupptökum. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var verið að ljúka framkvæmdum eftir vélaskipti og stóðu yfir suðuvinna á millivegg milli lestar og vélarrúms þegar eldur kviknaði í olíu í vélarrúminu. Enginn var í hættu og ekki urðu slys á fólki. Maggý VE 108 er 113 brúttótonna stálskip, smíðað í Gdansk í Póllandi árið 1988 hjá Wisla Yard. Skipið er 25,94 metrar að lengd, sex metrar á breidd, og er gert út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum. Það hét áður Ósk og hefur um árabil verið gert út til dragnóta- og humarveiða. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Iraola: Við þurfum fleiri leikmenn Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Fádæma jákvæðni og gleði á HM Gefur Kristrún þjóðarleiðtogunum sleggju? Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Ísland græði ekkert á aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Innkalla kjötrétt vegna óvissu um öryggi kjöts Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Iraola: Við þurfum fleiri leikmenn Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Fádæma jákvæðni og gleði á HM Gefur Kristrún þjóðarleiðtogunum sleggju? Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Ísland græði ekkert á aðild að ESB Smart að kaupa notaðar vörur Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Bláblómstrandi og rótsterk Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Innkalla kjötrétt vegna óvissu um öryggi kjöts Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“