Innlent | Spursmál | mbl | 13.7.2026 | 12:40 Hvert var Ólafur að vísa með „Evru-Ísland, óskalandið“? Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hélt ávarp á fundi Áfram Ísland-samtakanna. mbl.is/Karítas Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Spursmál Gefur Kristrún þjóðarleiðtogunum sleggju? Engu hægt að þoka gagnvart Evrópusambandinu Ísland græði ekkert á aðild að ESB Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB Halla Hrund skín skært á skjánum og Þorgerður þreifar fyrir sér » Fleiri tengdar fréttir Ólafur Ragnar Grímsson spurði í háðuglegum tón, í ræðu sem hann flutti á upphafsfundi Áfram Ísland-samtakanna gegn aðildarviðræðum Íslands við ESB, hvenær óskalandið, Evru-Ísland yrði að veruleika. Ekki er víst að allir hafi skilið hvað forsetinn fyrrverandi var að fara með þessum orðum þótt fundarmenn hafi tekið undir með hlátrasköllum. Allt að einu er vísunin hárbeitt og vísar í sögulega atburði hér á landi. Bent var á vísunina í inngangsorðum Spursmála síðastliðinn föstudag. Spurningin sem Ólafur varpaði fram er nefnilega einskonar tilbrigði við upphafsorð frægs baráttuljóðs Jóhannes úr Kötlum sem birt var í tímaritinu Sovét-vinurinn árið 1935 og prentað síðar sama ár í ljóðabókinni Samt mun ég vaka sem kom út hjá Bókaforlaginu Heimskringlu. Í ljóðinu lætur Jóhannes sig dreyma um það hvenær Ísland verði hluti af Sovétríkjum Stalíns þar sem „hækkandi menning“ og „samnautn“ og „samönn“ lýðsins fær að njóta sín. Forsíða Sovét-vinarins sem kom út um mitt ár 1935. Dásömuðu fyrirheitna landið Ljóðið var ort og gefið út á þeim tíma þegar íslenski kommúnistar sáu Sovétríkin sem fyrirheitna landið, lokamarkið sem skila myndi íslenskri alþýðu réttlæti og gulli og grænum skógum. Frægt varð þegar Halldór Kiljan laxness ritaði bækurnar Í Austurvegi árið 1933 og Gerska ævintýrið árið 1938. Þar lýsir hann af mikilli hrifningu sem fyrir augu bar í heimsóknum sínum til Sovétaríkjanna. Þessi skrif, og einkum síðari bókin, urðu mjög umdeild þegar í ljós kom hvernig í pottinn var búið í Sovétríkjunum og hverskonar hörmungar kommúnisminn hafði leitt yfir fólkið innan þeirra. Ritaði Halldór meðal annars bókina Skáldatími árið 1968 í uppgjöri við þessi fyrri skrif sín. Jóhannes úr Kötlum var fæddur árið 1899 og lést árið 1972. Hann var rithöfundur, ljóðskáld, farkennari, þýðandi og alþingismaður. Hvert var Ólafur að fara? Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvað Ólafur var að fara með vísun sinni en gera má því skóna að hann telji stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar Íslands slegna blindu gagnvart veruleikanum sem þar blasir við, ekki síst þegar horft er til gjaldmiðilsins evrunnar. Það gerði Ólafur raunar að sérstöku umtalsefni í ræðu sinni og benti á að Finnar eru eina ríki Norðurlanda sem bæði er með evru og aðili að Evrópusambandinu um leið. Þar er atvinnuleysi meðal ungs fólks vaxandi og um þessar mundir er ríflega helmingur vinnufærra og vinnufúsra einstaklinga á aldrinum 15-25 ára án atvinnu þar í landi. Hér að neðan má sjá ljóð Jóhannesar í heild sinni eins og það birtist í fyrrnefndu tímariti árið 1935: SOVÉT-ÍSLAND Sovét-Ísland, óskalandið, — hvenær kemur þú? Er nóttin ekki orðin nógu löng, þögnin nógu þung, þorstinn nógu sár, hungrið nógu hræðilegt, hatrið nógu grimmt? Hvenær .....? Hvenær kemurðu, lýðviljans land, með ljóma strætanna, hljómfall vélanna, blóm og söng? Hvenær kemurðu með kraft vitsins, eld áhugans, innileik bróðurþelsins? Hvenær? Hvenær? Vér þráum þig í einrúmi á andvökunóttum, þegar blóð vort rennur hægt, hægt, út í yztu myrkur, og allt er orðið hljótt, — svo dauðahljótt, að hvísl vorrar þjáningar bergmálar sem harmþrungin hljómkviða: Hvenær? Hvenær? Vér þráum þig, land lífsins, — ljósblik hækkandi menningar, samönn sólskinsdagsins, samnautn lognmildra tunglskinskvelda. — Vér þráum að skapa skip þín, borgir þínar, list þína .... Vér þráum starfið, þráum hvíldina, í þakklátum, öruggum faðmi þínum. Eldgamla Ísafold! Ung varstu forðum, fjallkonan fríð! Viltu ekki offra þínum ellibelg á altari framtíðarinnar? Viltu ekki umbreyta í æsku öllu hinu þreytta og sjúka og vonlausa? Viltu ekki nýtt fólk, nýtt líf, nýtt vor um strendur þínar, dali þína? Viltu ekki að vargöldin harða, vindöldin kalda, þokist fjær og fjær? .... En hvort sem þú vilt eða ekki, kemur það nær og nær, þetta, sem grætur blóði, þangað til upp úr rauðum sporunum grær líf, sem ljómar og hlær. — Þó það kæmi ekki í gær, þó það komi ekki í dag, það kemur — — — Á morgun? Hvenær? Hvenær? Tengdar fréttir Spursmál Gefur Kristrún þjóðarleiðtogunum sleggju? Engu hægt að þoka gagnvart Evrópusambandinu Ísland græði ekkert á aðild að ESB Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB Halla Hrund skín skært á skjánum og Þorgerður þreifar fyrir sér » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breiðablik fær lykilmann frá Þrótti Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Hvert var Ólafur að vísa með „Evru-Ísland, óskalandið“? Iraola: Við þurfum fleiri leikmenn Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Smart að kaupa notaðar vörur Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum „Ansi gott álag þessa helgina“ Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Bláblómstrandi og rótsterk Innkalla kjötrétt vegna óvissu um öryggi kjöts Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Breiðablik fær lykilmann frá Þrótti Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Hvert var Ólafur að vísa með „Evru-Ísland, óskalandið“? Iraola: Við þurfum fleiri leikmenn Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Hitinn gæti náð 25 stigum Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Branson staddur á Íslandi Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum „Ansi gott álag þessa helgina“ Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Bláblómstrandi og rótsterk Innkalla kjötrétt vegna óvissu um öryggi kjöts Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“