Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

Innkölluð vegna asbests, bensens og köfnunarhættu

  • What: Several toys are recalled due to hazards like asbestos, benzene, and choking risks.
  • Impact: Parents are advised to check and remove unsafe toys.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.7.2026 | 15:30 Innkölluð vegna asbests, bensens og köfnunarhættu Leikföngin sem innkölluð eru. Samsett mynd Setja bókamerki Fjórar leikfangategundir hafa verið innkallaðar hér á landi það sem af er mánuðinum. Leikföngin sem um ræðir eru Babyshake rattle toy frá framleiðandanum Abirdon, Sandlímmiðar frá framleiðandandum Galt, Squeezy Dumplings frá óþekktum framleiðanda og Happy Baby Pull String Activity Toy frá AMO Toys. Innkallanirnar eru af ýmsum ástæðum, s.s. hættu á asbesti og benseni í leikföngunum eða köfnunarhættu. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Hættulegt magn af benseni Í tilkynningu vöruvaktarinnar vegna leikfangsins Squeezy Dumplings segir að um sé að ræða mjúkt plastleikfang sem innkallað sé vegna efnahættu. „Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi,“ segir í tilkynningu á vef vöruvaktarinnar. „Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer, en ekki er vitað til þess að varan hafi verið seld hér á landi.“ Ljósmynd/Aðsend Asbest í límmiðar seldir í A4 Í tilkynningu vöruvaktarinnar vegna sandlímmiða frá Galt er vakin athygli á því að varan geti verið heilsuspillandi þar sem að sandurinn geti verið mengaður af asbesti. Heiti vörunnar er Galt Sand Stickers Craft Kit. Um er að ræða föndursett með 6 dýralímmiðum og 4 pokum af lituðum sandi. Varan var seld í A4 hérlendis og alls hafa 90 eintök hafa verið seld frá árinu 2023 til apríl 2026. „Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að taka vöruna strax úr umferð, farga vörunni eða skila til söluaðila. Ef sandurinn er enn í umbúðunum skal setja hann í plastpoka, loka vel með límbandi og farga vörunni með öruggum hætti. Þrífa skal svæði þar sem sandurinn hefur verið notaður með blautum klút til að forðast rykmyndun. Nota skal hanska og grímu við þrif,“ segir í tilkynningu vöruvaktarinnar. Ljósmynd/Aðsend Köfnunarhætta á barnaleikfangi Neytendavaktin vekur einnig athygli á því að AMO Toys AB hafi innkallað leikfangið Happy Baby Pull String Activity Toy. Ástæða innköllunarinnar er að smáir hlutar geta losnað af togörmum vörunnar. Ef barn setur slíka smáhluti upp í sig getur það skapað köfnunarhættu. Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að hætta notkun hennar þegar í stað og farga vörunni. Gott er að klippa togarma vörunnar til að koma í veg fyrir endurnýtingu. Varan var meðal annars seld hjá KidsCoolshop hérlendis og hugsanlega á öðrum stöðum. Hægt er að hafa samband við söluaðila varðandi skil og endurgreiðslu á vörunni. Ljósmynd/Aðsend Hættulegt nagleikfang Þá er einnig vakin athygli á því að leikfangið, Baby Shake Rattle Toy, frá ABirdon, geti valdið köfnunarhættu þar sem handfangið sé of langt og geti þannig komist of langt inn í munn barns. Varan uppfyllir því ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga. Leikfangið var meðal annars selt í gegnum Amazon og hugsanlega á fleiri stöðum. Talið er að varan kunni að vera í umferð á Íslandi. Eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins þegar í stað, taka það úr umferð og farga því á öruggan hátt. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mesta álagið á leikmönnum City og Arsenal Aldrei upplifað annan eins hraða Innkölluð vegna asbests, bensens og köfnunarhættu Framlengir í höfuðborginni Staðfestir áhuga á Argentínumanninum Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Himnastiginn málaður blár „Ansi gott álag þessa helgina“ Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Mesta álagið á leikmönnum City og Arsenal Aldrei upplifað annan eins hraða Innkölluð vegna asbests, bensens og köfnunarhættu Framlengir í höfuðborginni Staðfestir áhuga á Argentínumanninum Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smart að kaupa notaðar vörur Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Innflutningur háður leyfi lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Himnastiginn málaður blár „Ansi gott álag þessa helgina“ Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi

Share this article