Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óánægja með álagningu kílómetragjaldsins

  • What: Public dissatisfaction with the kilometer tax system
  • Impact: Many Icelanders are unhappy with the new tax on vehicles
Read Full Article →

Álagning kílómetragjalds hófst þann 1. janúar. Gjaldið er skattur og eigendur fólksbíla og jeppa sem eru undir 3,5 tonnun að þyngd greiða 6,95 krónur á hvern ekinn kílómetra. Mikil óánægja virðist vera með kerfið. Tæplega 42.000 manns skrifuðu undir undirskriftalista þar sem krafist er afnáms kílómetragjaldsins. Listinn var afhentur Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra í lok maí. Kerfið við innheimtu gjaldsins virðist einnig gallað. Fyrir um tveimur vikum bárust mörgum rukkunanir vegna gjaldsins á bílum sem voru ekki í þeirra eigu, heldur höfðu verið seldir. Mbl.is birti í morgun frétt um að þeir sem eiga tvo bíla fái of háar rukkanir vegna þess að tölvukerfi Skattsins leggur ekki rétt saman. Í fréttinni sagði starfsmaður Skattsins að ekki standi til að skipta um tölvukerfi heldur standi til að laga núverandi kerfi. Hann sagði fá vinna við kerfið en fleiri tækju við kvörtunum. Innan við þriðjungur ánægður með gjaldið Gallup kannaði fyrir Viðskiptablaðið í mars hug fólks til kílómetragjaldsins og kom þar fram mikil óánægja með upptöku þessa nýja skatts. Alls voru 51,7% óánægð með fyrirkomulag um innheimtu kílómetragjalds, þar af 34,8% mjög óánægð og 16,9% frekar óánægð. Alls voru 19,7% ánægð, þar af 12,6% frekar ánægð en einungis 7,1% frekar ánægð. 28,6% svöruðu hvorki né. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 72,4% óánægð en 27,6% ánægð.

Share this article