Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Sprengingar heyrðust í Kænugarði

The article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing a Russian missile attack on Kyiv, Ukraine. The attack vector involves cruise and hypersonic missiles targeting the capital city, overwhelming existing air defense systems. No technical vulnerability details, CVSS scores, affected software versions, patches, or workarounds are provided, as the context is physical warfare and geopolitical response.
Read Full Article →

Sprengingar heyrðust í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, skömmu eftir að úkraínski flugherinn varaði við því að eldflaugar væru á leið í átt að borginni. Loftvarnakerfi voru virkjuð til að reyna að verjast árásinni sem er ein af mörgum sem Rússar hafa gert á höfuðborgina á undanförnum vikum. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, greindi frá því á samfélagsmiðlinum Telegram að rússneski herinn hefði ráðist á borgina með eldflaugum og hvatti íbúa til að halda sig í loftvarnabyrgjum meðan hættan stæði yfir. Eldar kviknuðu í Holosiivsky-hverfinu í suðurhluta Kænugarðs eftir sprenginguna. Ekki hefur verið greint frá mannfalli eða umfangi tjónsins. Loftvarnaflautur höfðu farið í gang skömmu áður en röð sprenginga heyrðist víðs vegar um borgina. Fyrr í dag funduðu þjóðarleiðtogar í bandalagi hinna viljugu- þjóðabandalagi til stuðnings Úkraínu í stríðinu við Rússa, í París um aukinn stuðning við Úkraínu og leiðir til að beita þrýstingi til að koma á vopnahléi og nýjum viðræðum. Fyrir fundinn tilkynntu tíu ríki um stofnun nýs samstarfs til að þróa eldflaugavarnakerfi í Evrópu. Í yfirlýsingunni kemur fram að það sé trú þessara þjóða að verndun Evrópu þurfi samstarf á heimsvísu um samhæft eldflaugavarnakerfi til að draga úr þeirri hættu sem stafi af eldflaugum. Löndin sem eru í þessu bandalagi eru Bretland, Danmörk, Frakkland, Holland, Ítalía, Noregur, Spánn, Svíþjóð, Úkraína og Þýskaland. Volodímír Selenskí Úkraínuforseti fagnaði ákvörðuninni og sagði hana marka tímamót í varnarsamstarfi Evrópuríkja. Hann hefur ítrekað hvatt vestræn ríki til að afhenda Úkraínu öflugri loftvarnakerfi þar sem Rússar hafa að undanförnu beint ofurhraðskreiðum skotflaugum í átt að úkraínsku höfuðborginni sem loftvarnarkerfi Úkraínumanna ráða illa við. Rússneski herinn hefur ítrekað gert loftárásir á Kænugarð undanfarnar vikur. Ein mannskæðasta árásin átti sér stað aðfaranótt 2. júlí þegar loftárás Rússa varð að minnsta kosti 30 manns að bana.

Share this article