Einn áhafnarmeðlimur lést og átta aðrir særðust þegar Íransher skaut eldflaugum á tvö olíuskip frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Hormússundi. Varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir á X að árásin hafi átt sér stað á suðurleið Hormuzsunds, innan landhelgi Óman. Sá sem lést var indverskur ríkisborgari og fjórir þeirra sem særðust eru sagðir alvarlega slasaðir. Eldar kviknuðu um borð í báðum skipunum eftir árásina en yfirvöld segja að tekist hafi að ná tökum á þeim. Ráðuneytið sakar Íran um árásina og segir hana alvarlegt brot á alþjóðalögum. Það segir að Sameinuðu arabísku furstadæmin áskilji sér rétt til að bregðast við og grípa til nauðsynlegra aðgerða til að verja fullveldi sitt og öryggi.
This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability, and therefore contains no information about a CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds. The incident involved an Iranian missile strike on two commercial oil tankers in the Strait of Hormuz, resulting in casualties and fires. The attack vector was a direct military engagement using missile weaponry.