- What: Change in captain of a fishing vessel
- Impact: No impact on security or regular users
Síldarvinnslan er að útbúa Bjarna Ólafsson AK til kolmunnaveiða en hann mun halda til veiðanna í stað Barða NK. Eins og greint hefur verið frá kom upp eldur í vélarrúmi Barða þann 12. júní sl. og verður unnið að viðgerðum í skipinu fram á haust. Bjarni Ólafsson hefur hins vegar ekki verið að veiðum síðan á loðnuvertíð 2024 en hefur legið í höfn í Neskaupstað og verið á söluskrá að undanförnu. Skipstjóri á Bjarna Ólafssyni nú við upphaf kolmunnaveiðanna verður Þorkell Pétursson. „Mér líst bara vel á það. Við eigum að þekkja skipið ágætlega en auðvitað þarf að rifja ýmislegt upp eins og gerist og gengur,“ segir Þorkell í samtali við tíðindamanna heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Skipið hefur legið í tvö ár og það þarf að klappa ýmsu eftir svo langan tíma. Við munum taka víra í dag og síðan veiðarfærin í kjölfarið. Það er ekki alveg ljóst hvenær haldið verður til veiða en það verður núna seinna í vikunni. Áhöfnin er virkilega ánægð með að komast til veiða og ég held að menn séu mjög sáttir við að unnt sé að taka Bjarna Ólafsson í notkun við þessar aðstæður,” sagði Þorkell.