Greiningarfyrirtækið Akkur gerir ráð fyrir að Icelandair hafi skilað 11,2 milljóna dala tapi á öðrum ársfjórðungi ársins, jafnvirði um 1,4 milljarða króna. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist félagið um 12,9 milljónir dala. Þetta kemur fram í afkomuspá Akkurs fyrir uppgjör Icelandair á öðrum ársfjórðungi, en félagið birtir uppgjör sitt 21. júlí. Greiningarfyrirtækið er eina félagið sem birtir opinbert afkomumat fyrir Icelandair, þótt óbirtar spár kunni að vera til. Akkur spáir því að tekjur Icelandair hafi numið 486,2 milljónum dala á fjórðungnum og aukist um 5,1% frá sama tíma í fyrra. Þá er gert ráð fyrir að framboð félagsins, mælt í framboðnum sætiskílómetrum, hafi dregist saman um 1,3% milli ára en að sætanýting hafi hækkað í 84%, samanborið við 82,2% á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Greiningarfyrirtækið telur að einingatekjur hafi hækkað um 5,3% milli ára. Sterkari sætanýting og hækkandi einingatekjur skýri þannig tekjuvöxtinn þrátt fyrir minna framboð. Eldsneytisverð hefur áhrif Afkoman er engu að síður talin hafa versnað verulega. Akkur spáir því að EBITDA hafi numið 37,7 milljónum dala á fjórðungnum, samanborið við 44,2 milljónir dala á sama tíma í fyrra. EBITDA-framlegð er metin 7,8%, en var 9,6% í fyrra. Akkur gerir jafnframt ráð fyrir að rekstrartap Icelandair, mælt á EBIT-grunni, hafi numið 10,3 milljónum dala á öðrum ársfjórðungi. Það er veruleg breyting frá sama tímabili í fyrra þegar EBIT var jákvætt um 0,8 milljónir dala. Í greiningunni kemur fram að annar ársfjórðungur sé jafnan jákvæður hjá Icelandair á EBIT-grunni. Að þessu sinni sé hins vegar líklegt að eldsneytisverð hafi þrýst afkomunni niður, þrátt fyrir að Icelandair hafi verið búið að verja um 40% af eldsneytisnotkun fjórðungsins. Akkur horfir sérstaklega til þess hvort Icelandair uppfæri afkomuhorfur sínar í uppgjörinu. Greiningarfyrirtækið bendir á að olíuverð hafi lækkað verulega frá því félagið birti uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung og telur að félagið kunni að uppfæra leiðsögn sína í ljósi þeirrar þróunar. Fyrir árið í heild spáir Akkur því að tekjur Icelandair nemi 1.871 milljón dala og aukist um 7,5% frá fyrra ári. EBITDA er metið 196,7 milljónir dala, sem væri 25,7% aukning milli ára. Rekstrarhagnaður, mældur á EBIT-grunni, er hins vegar aðeins metinn 11 milljónir dala, eða 0,6% af tekjum. Sjá einnig Aukinn eldsneytiskostnaður hleypur á milljörðum Fimm atriði til að fylgjast með Akkur nefnir fimm atriði sem fjárfestar ættu sérstaklega að fylgjast með í uppgjörinu: afkomuhorfur stjórnenda, þróun einingakostnaðar án eldsneytis, bókunarstöðu og eftirspurn, EBIT-framlegð og áhrif árstíðabundinna sveiflna á veltufé og skuldsetningu. Í greiningunni er áfram mælt með kaupum á bréfum Icelandair, en með fyrirvara um að um áhættusama fjárfestingu sé að ræða. Síðasta markverð Akkurs á bréfum félagsins er 1,67 krónur á hlut. Dagslokagengi bréfanna 9. júlí var 0,718 krónur og því er markverðið 133% yfir síðasta gengi samkvæmt afkomuspánni. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku færði Akkur verðmat sitt á Icelandair upp og mat þá hlutabréf félagsins á 1,67 krónur á hlut. Það var um 126% yfir dagslokagengi bréfanna daginn áður, þegar þau lokuðu í 0,74 krónum á hlut. Í verðmatinu kom fram að Akkur teldi markaðinn of svartsýnan á Icelandair og vanmeta mögulegan ávinning af flotaendurnýjun, bættri nýtingu og lægri skuldsetningu. Sjá einnig Meta Icelandair 126% yfir markaðsvirði