- What: A University of Iceland professor is under scrutiny for harsh criticism of a popular podcast during a lecture.
- Impact: The professor's comments have sparked debate about the boundaries of academic freedom and acceptable commentary on public figures.
Innlent | Spursmál | mbl | 22.2.2026 | 22:45 Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Stefán Einar Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Upptaka úr kennslustund í Háskóla Íslands sýnir kennara við Háskóla Íslands spyrja nemendur hvort þeir muni ekki „slátra“ umsjónarmönnum Blökastsins í kynningu á verkefni sem þeir höfðu unnið. Mennirnir sem þar eiga í hlut eru landsþekktir skemmtikraftar og fjölmiðlamenn, Egill Einarsson, Auðunn Blöndal og Steindi jr. Blökastið hefur um árabil verið í hópi allra vinsælustu hlaðvarpa landsins og starfar á markalínum hlaðvarpsheimsins og útvarps. Hvar liggja mörkin? Hefur framganga kennarans, dr. Arnars Eggerts Thoroddsen vakið upp spurningar um hvar þau mörk liggja hvaða dóma háskólamenn mega fella í kennslustundum um menn og málefni. Það var vefritið Nútíminn sem vakti fyrst athygli á framgöngu kennarans en það er Frosti Logason, umsjónarmaður Brotkastsins sem heldur því úti. Hann er gestur Spursmála að þessu sinni þar sem þessi ummæli Arnars eru tekin til umræðu. Spinnst af því mjög lífleg umræða en Halla Gunnarsdóttir, formaður VR er einnig til svara í þættinum og koma þau Frosti úr mjög ólíkum áttum að málinu. Berst talið meðal annars að svokölluðum karlakörlum sem Arnar Eggert gerir að umtalsefni í tengslum við hina fyrrnefndu fjölmiðlamenn. Segir hann að karlakarlar séu menn sem fari í veiði, keyri um á jeppa og tali illa um konur. Hvað ef dæminu yrði snúið við? Spyr Frosti í þættinum hvernig því hefði tekið ef þarna hefði átt í hlut kennari af öðru sauðahúsi. Þar hefði getað verið um karlmann að ræða sem tæki til umfjöllunar hlaðvarp vinstrisinnaðra kvenna. Hvað myndi gerast ef hann myndi spyrja hvort umsjónarmenn slíks hlaðvarps væru nokkuð annað en: „Eru þetta ekki bara einhverjar öfga-femínista kommalufsur?“ Viðtalið við Frosta og Höllu er aðgengilegt í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan: Arnar Eggert Thoroddsen (í rauða bolnum) hefur verið gagnrýndur fyrir háskaleg ummæli í garð Steinda jr. (lengst til vinstri), Auðuns Blöndal (annar frá vinstri) og Egils Einarssonar (lengst til hægri). mbl.is/samsett mynd Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Krefst rannsóknar á flugferðum Andrews Ófremdarástand í Mexíkó: Flugumferð raskast Gífuryrði háskólakennara um Blökastið„“ Höfum öll eitthvað fram að færa Einstakur árangur Norðmannsins Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sinueldurinn hefur verið slökktur Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Líf verður oddviti VG Fólk hvatt til að halda sig fjarri eldinum Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Krefst rannsóknar á flugferðum Andrews Ófremdarástand í Mexíkó: Flugumferð raskast Gífuryrði háskólakennara um Blökastið„“ Höfum öll eitthvað fram að færa Einstakur árangur Norðmannsins Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líf verður oddviti VG Vilja rannsaka hvort Andrew hafi framið landráð Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Telur að Guðmundarlundi hafi verið bjargað Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka