Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Varað við staðbundinni frostrigningu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Varað við stað­bund­inni frost­rign­ingu Brynjólfur Þór Guðmundsson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar biður fólk að hafa varann á sér nú þegar hlánar rólega með úrkomu eftir kuldatíð að undanförnu. Hætt er við staðbundinni frostrigningu við þessar aðstæður. Þetta á sérstaklega við á Vestfjörðum í dag, meðal annars í Djúpinu, vestantil á Norðurlandi í nótt og ekki hvað síst á Héraði í fyrramálið. Svona var útlitið á gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu eftir frostrigningu. Rúv / Haukur Holm Fyrir 1 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepn­ir í árásum Rússa í nótt Árásir Rússa víða um Úkraínu urðu þremur að bana og fleiri særðust. Þetta fylgir umfangsmiklum árásum í gær nærri höfuðborginni Kyiv. Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í sí­brota­gæslu eftir fjölda af­brota um helg­ina Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Suðurnesjum fékk karlmann úrskurðaðan í síbrotagæslu eftir fjölda afbrota um helgina. Lögreglan greinir frá því á vef sínum að hún hafi haft afskipti af manninum tvo daga í röð um helgina. Hann er grunaður um nytjastuld, akstur undir áhrifum og fjölmörg önnur umferðarlagabrot. Lögregla þekkir vel til mannsins enda hefur hann ítrekað komið við sögu hennar. Hún taldi síbrotagæslu því nauðsynlega til að stöðva brotahrinu hans. Lögreglubíll á ferð í Keflavík. Mynd úr safni. RÚV / Bragi Valgeirsson. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Myrti móður sína og dvaldi í íbúð með líkinu næstu mánuði á eftir Maður notaði samkomutakmarkanir í covid til að fela morðið á móður sinni fyrir nágrönnum sínum. Rannsókn leiddi í ljós að hann dvaldi í íbúð móður sinnar í tvo mánuði eftir morðið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þarf lítið til að menga neyslu­vatn höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum segir að huga þurfi betur að forvörnum við vatnsbólin og takmarka umferð um Heiðmörk. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Gripu til stór­felldra hefnd­ar­að­gerða eftir fall glæpa­for­ingja Kveikt var í bílum víða og skemmdir unnar á minnst 20 bankaútibúum þegar félagar í Jalisco-glæpagenginu hefndu drápsins á yfirmanni samtakanna. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ung­verj­ar standa í vegi fyrir refsi­að­gerð­um gegn Rússum Ekkert samkomulag liggur fyrir um nýjan pakka refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússum og vegna andstöðu Ungverja eru taldar litlar líkur á að pakkinn verði samþykktur á fundi utanríkisráðherra ESB ríkjanna í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Svona endaði med­al­íu­tafl­an — Nor­eg­ur sló tvö met Vetrarólympíuleikunum er lokið og því ljóst hvernig medalíutaflan lítur út. Alls fengu 29 þjóðir medalíu og Norðmenn settu tvö ný met á leikunum með 41 medalíu alls og 16 gull. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skúrum og slydd­u­élj­um spáð víða Sunnan- og suðaustanáttir blása um landið í dag og hitastig fer hækkandi. Þó er útlit fyrir slydduél eða skúrir víða. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Minni­hluta­stjórn Jettens tekur við völdum í dag Ný minnihlutastjórn tekur við völdum í Hollandi í dag undir forystu yngsta forsætisráðherrans í sögu landsins og þess fyrsta opinberlega samkynhneigða. Honum tókst ekki að mynda meirihlutastjórn og verður því líklega að sætta sig við málamiðlanir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Ein slökkvi­sveit hugaði að kraum­andi hita í ösku sinu­elds­ins Markús Þ. Þórhallsson Slökkviliðsmenn að berja niður sinueldinn í gær. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Ein sveit á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór aftur að Vatnsendahlíð seint í gærkvöld þar sem mikill sinueldur logaði í gærdag nærri Guðmundarlundi. Varðstjóri slökkviliðsins segir hitamyndavél í dróna lögreglunnar hafa greint að eitthvað kraumaði undir niðri. Það hafi verið kveðið niður og allir slökkviliðsmenn löngu komnir til baka aftur. Varðstjórinn segir að öðru leyti nóttina hafa verið rólega. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky segir Pútín hafa hleypt þriðju heims­styrj­öld­inni af stað með inn­rás­inni fyrir fjórum árum Úkraínuforseti segir að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum. Veita þyrfti honum harða mótspyrnu svo hann reyni ekki frekari landvinninga. Eftirgjöf lands komi ekki til greina. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Vonast eftir fundi um kjarn­orku­samn­ing í skugga hótana um árásir Banda­ríkja­manna Vonir standa til að Íranir og Bandaríkjamenn setjist að samningaborði um kjarnorkusamning á fimmtudag. Utanríkisráðherra Írans segir samningsdrög í smíðum eftir síðustu fundi sendinefndanna í Genf. Bandaríkin spyrja hví Íranir hafi ekki látið undan. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Pútín segir end­ur­nýj­un kjarn­orku­vopna­bún­að­ar algert for­gangs­at­riði Rússlandsforseti boðar eflingu allra herja landsins og segir uppbyggingu og endurnýjun kjarnorkuvopnabúnaðar algert forgangsverkefni. Þannig væri öryggi tryggt með fælingu eftir að samningur um fækkun kjarnavopna rann sitt skeið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Veitur: Heppni að gróð­ur­eld­ar sköð­uðu ekki vatns­ból­in Forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum segir að heppni hafi ráðið því að vatnsból höfuðborgarbúa hlutu ekki skaða af sinueldunum við Elliðavatn í gær. Ekki þurfi mikið að gerast til að mengunarefni skolist niður í drykkjarvatn. Öll umgengni skapi hættu. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ic­elandair hefur aflýst ferðum til og frá aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna Markús Þ. Þórhallsson Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna. RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst tveimur komum frá New York klukkan sex í fyrramálið og ferðum þangað og til Boston síðdegis vegna stórhríðar á austurströnd Bandaríkjanna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur í færslu á Facebook eftir bandarískum veðurfræðingum að á JFK-flugvelli við New York megi búast við yfir fimmtíu sentímetrum af snjó. Veðrið mun að sögn Veðurstofu Bandaríkjanna færast hratt í aukana allt frá Maryland suðaustur til Nýja Englands og getur valdið usla í samgöngum. Líklegt þykir að snjókoma og hvassviðri valdi rafmagnstruflunum eða straumrofi á svæði þar sem næstum 54 milljónir manna búa. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Borg­ar­stjóri New York boðar ferða­bann vegna stór­hríð­ar og storms Stórhríð og stormur gengur yfir Bandaríkin norðaustanverð og borgarstjórinn í New York hefur boðað ferðabann. Helstu stofnæðum verður lokað í hið minnsta hálfan sólarhring. Mikið snjóar og rafmagn getur farið af stórum svæðum. 22. febrúar 2026 kl. 23:40ERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Höf­uð­paur stærsta eit­ur­lyfja­hrings Mexíkó drep­inn í hern­að­ar­að­gerð­um Höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings Mexikó var drepinn í öryggisaðgerðum hersins í Mexíkó í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti landsins. 22. febrúar 2026 kl. 23:03MENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir One Battle After An­oth­er heldur áfram að sópa til sín verð­laun­um One Battle After Another heldur áfram að raða inn verðlaunum en hún var valin besta kvikmyndin á BAFTA-verðlaunahátíðinni í kvöld og leikstjórinn hlaut einnig verðlaun. Myndin hreppti alls sex. Norsk mynd var í fyrsta sinn valin sú besta erlenda. 22. febrúar 2026 kl. 22:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Veg­ur­inn yfir Reyn­is­fjall opn­að­ur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Umferð um veginn yfir Reynisfjall við Vík var opnaður aftur fyrr í kvöld eftir að flutningabíll sat þar fastur vegna bilunar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er enn mikil vetrarfærð á veginum. Vegurinn var þjónustaður til klukkan tíu sem er um klukkustund lengur en vanalegt er. Vegna veðurs má búast við að færð spillist og geti orðið ófær. Víða eru hálkublettir á Suðurströndinni, krapi og skafrenningur er á Reynisfjalli. Mynd aðsend. 22. febrúar 2026 kl. 21:29INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Þetta er hlýtt í hjart­að“ Konudagurinn markar upphaf Góu og vaxandi birtu. Hefð hefur skapast fyrir því að menn gleðji konurnar í lífi sínu í tilefni dagsins til dæmis með blómum eða sætindum og á því var engin undantekning í dag. 22. febrúar 2026 kl. 20:05INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Fjög­urra tíma bar­átta við sinu­eld Sinueldur sem kviknaði við Elliðavatn breiddist hratt út og barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. 22. febrúar 2026 kl. 19:58INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Leggja fram van­traust­s­til­lögu á hendur rektor Meðlimir Vöku, sem skipa meirihluta í Stúdentaráði Háskóla Íslands, hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor háskólans. Tillagan tengist meðal annars meintu ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda skólans. 22. febrúar 2026 kl. 19:30INNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Vonast til að koma ál­ver­inu í full afköst í lok júlí Forstjóri Norðuráls segist vonast til þess að nýir spennar í álverinu á Grundartanga komist í gang í apríl. Umfang tjónsins vegna bilunarinnar í haust er enn óljóst. 22. febrúar 2026 kl. 18:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Flutn­inga­bíll fastur á Reyn­is­fjalli: Veg­ur­inn lok­að­ur á meðan trukk­ur­inn er los­að­ur Veginum yfir Reynisfjall hefur verið lokað vegna flutningabíls sem er fastur á veginum. Verið er að vinna við að losa hann. Veginum hefur verið lokað af og til í dag á meðan bílar eru losaðir. 22. febrúar 2026 kl. 18:39ÍÞRÓTTIR Fótbolti Ars­en­al vann granna­slag­inn og heldur fimm stiga for­ystu Jóhann Páll Ástvaldsson Eze fagnar einu af mörkum sínum í kvöld. AP / Frank Augstein Arsenal vann Tottenham Hotspur 1-3 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið er sem fyrr í efsta sæti og með fimm stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Eberechi Eze kom Arsenal

Share this article