Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Eftirvagnatjón í vondu veðri mögulega ekki bætt að fullu

  • What: Insurance coverage for trailers in bad weather is limited.
  • Impact: Drivers may face penalties or denied claims.
Read Full Article →

Fólk sem lendir í vandræðum við akstur í erfiðum aðstæðum getur átt von á skertum eða engum bótum frá tryggingafélagi. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá tryggingafélaginu VÍS, segir fólk sem keyri með eftirvagna í vondu veðri eiga í hættu að fá skerðingu bóta eða jafnvel neitun frá tryggingafélagi hafi opinberar viðvaranir verið verið gefnar út fyrir ferðasvæðið eða ef vindstyrkur fer yfir 24,5 metra á sekúndu. Gular viðvaranir hafa verið í gildi á Norðvesturlandi og umferðarteppur mynduðust á Hellisheiði og Holtavörðuheiði um helgina þegar bílar lentu utan vegar með hjólhýsi í eftirdragi sem tóku á sig vind. „Því miður eru allt of mörg dæmi þess á hverju einasta ári að við fáum tilkynningar um tjón sem verður á eftirvögnum sem hafa fokið þegar verið er að fara með vagninn milli staða,“ segir Sigrún. Fólk átti sig oft ekki á því hvað eftirvagnar taki á sig mikinn vind og hvað það sé auðvelt að missa stjórn á ökutæki fjúki eftirvagninn. Hún hvetur fólk til að kynna sé aðstæður áður en það heldur í ferðalag með eftirvagn. Það geti margborgað sig að bíða með ferðalög eða jafnvel skilja vagninn eftir séu aðstæður slæmar.

Share this article