Innlent | Morgunblaðið | 15.7.2026 | 23:03 Hundruðum eldri nemenda vísað frá Aðsókn nýnema í vinsælustu greinar Tækniskólans hefur aukist til muna, en fjármagnið hefur ekki aukist í samræmi við hana. mbl.is/Valli Valgerður Birna Magnúsd. [email protected] Setja bókamerki Brotthvarf íslenskra nemenda úr námi á framhaldsskólastigi hefur staðið í stað það sem af er þessum áratug og er nú það hæsta innan Evrópu samkvæmt gögnum Eurostat, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Ástæðuna fyrir því að brotthvarfið hefur staðið í stað á Íslandi frá árinu 2020, í stað þess að lækka eins og þróunin hefur verið annars staðar í Evrópu, má að hluta til rekja til örðugleika nemenda við að snúa aftur til verknáms, að mati prófessors við Háskóla Íslands. Skólameistarar stærstu verknámsskóla landsins hafa vakið athygli á vandanum ítrekað og segja fjármagnsskort til verknáms vera meginorsök þessa vanda. Vísa þurfi hundruðum eldri nemenda frá skólunum á ári hverju þar sem yngri nemendur ganga fyrir, sem endi þá jafnvel á því að þeir hrökklist alfarið frá námi. „Það hefur orðið svo gríðarleg fjölgun á krökkum sem koma úr grunnskóla að við getum ekki boðið nærri því öllum skólavist, vegna þess að til þess að taka á móti fleirum þarf einfaldlega meira fjármagn,“ segir Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans í samtali við Morgunblaðið. Lengi vel hafi skólinn innritað um 250 nemendur beint úr grunnskóla á hverju hausti, en nú hefur þeim fjölgað mjög og í haust verður fjöldinn í kringum 480. Erfitt að snúa aftur í nám Sveigjanleiki innan íslensks skólakerfis hefur almennt verið talinn ein af ástæðum þess að brotthvarf íslenskra nemenda frá námi hefur verið með því mesta í Evrópu um nokkurra ára skeið, enda hefur löngum verið auðvelt að snúa aftur til náms á framhaldsskólastigi. Sá sveigjanleiki hefur þó tekið að minnka á undanförnum árum að sögn Kristjönu Stellu Blöndal, prófessors við Háskóla Íslands, sem rannsakað hefur brotthvarf frá námi um áratugabil. „Það hefur verið bent á það í sambandi við brotthvarfið hvað íslenska skólakerfið er sveigjanlegt, að framhaldsskólakerfið sé opið og auðvelt fyrir nemendur að koma aftur ef þeir hætta í skóla, en það hefur breyst í verknáminu vegna þess að aðsóknin þar hefur aukist svo gríðarlega,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. „Í gegnum tíðina hafa krakkarnir sem eru í mestri brotthvarfshættu verið krakkarnir sem velja að fara í bóknám en hafa meiri áhuga á verknámi, en það er aðeins að breytast núna.“ Aðsókn jókst en fjármagn ekki Fyrir aldamót héldu um 30% drengja og 20% stúlkna í verknám að loknu námi, en frá árinu 2000 hafði umsóknum í verknám fækkað með hverju ári þangað til farið var af stað með átak til þess að fjölga nemendum í verknámi fyrir um áratug, sem borið hefur mikinn árangur og aukið aðsókn mjög án þess þó að nægilegt fjármagn til þess að mennta þá alla hafi fylgt til viðbótar. Við innritun í framhaldsskóla njóta þeir nemendur sem koma beint úr grunnskóla forgangs, og er tryggð skólavist í einhverjum framhaldsskóla fram til 18 ára aldurs. Í Tækniskólanum er aðsókn nýnema úr grunnskóla mest í iðn- og starfsnám, og því komast mun færri eldri nemendur að en vildu í vinsælustu námsleiðirnar, svo sem byggingargreinar, hársnyrtiiðn og rafiðngreinar. „Það er heilmikill fjöldi nemenda, og ég hugsa að það séu aðallega strákar, sem kannski fóru í hefðbundinn framhaldsskóla, hættu, hafa síðan hug á því að komast inn í starfsnám, en skólarnir hafa ekki fjármagn til að taka á móti þeim sökum þessarar miklu aðsóknar,“ segir Stella. „Bæði gott og hræðilegt“ Vegna þessa þarf Tækniskólinn að vísa hundruðum nemenda frá á hverju ári, sem að sögn skólameistara eru bæði eldri nemendur sem hafa lokið námi í framhaldsskóla, nemendur sem vilja skipta yfir í iðnnám úr bóknámi og svo nemendur með brotinn námsferil að baki, sem hafa jafnvel flakkað á milli framhaldsskóla og ekki fundið sig. „Þetta er bæði gott og hræðilegt – það er frábært að það sé svona margt ungt fólk sem hefur kjark til þess að fylgja sínu hjarta og fara beint í iðn- eða starfsnám, en á sama tíma höfum við ekki getað fjölgað plássum hjá okkur í heild síðan 2021, sem kemur eðlilega niður á þeim sem eldri eru,“ segir Hildur. Hún bendir á tvo möguleika í stöðunni: annaðhvort þurfi að auka fjármagn til starfsnámsskólanna eða þá að fleiri skólar þurfi að taka upp starfsnám. „Við myndum sannarlega taka fleiri inn ef við hefðum meira fjármagn og finna leiðir til þess að koma þeim fyrir í húsnæðinu, en þetta er bara ömurleg staða. Það þarf bara að horfa á kerfið í heild og velta því fyrir sér hvernig hægt sé að breyta þessu.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jón Daði: Mesta bull sem ég hef heyrt Hundruðum eldri nemenda vísað frá Meghan fagnar Emmy-tilnefningunni Englendingar æfir út í dómarann ESB gerir drónasamning við Úkraínu Umræðan „Þjóðin sjálf á höfuðvaldið“ Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Komust hjá aflífun hunds Mest lesið Í gær Í vikunni Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta „Sumarið er loksins komið“ Varað við hvössum vindhviðum á morgun Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Skipverjarnir játa sök Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Andlát: Kristófer Þorleifsson Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Nýjast á mbl.is » Jón Daði: Mesta bull sem ég hef heyrt Hundruðum eldri nemenda vísað frá Meghan fagnar Emmy-tilnefningunni Englendingar æfir út í dómarann ESB gerir drónasamning við Úkraínu Umræðan „Þjóðin sjálf á höfuðvaldið“ Íslendingar, hugsið ykkur tvisvar um Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Brotist inn hjá okkur bara eins og flestum öðrum“ Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Drungi en bjart fram undan Mest lesið Í gær Í vikunni Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta „Sumarið er loksins komið“ Varað við hvössum vindhviðum á morgun Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Skipverjarnir játa sök Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Tvær stórfelldar líkamsárásir Andlát: Kristófer Þorleifsson Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina