Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Umferðartafir kosta samfélagið milljarða

Read Full Article →

Hækkun hámarkshraða á tilteknum svæðum, full uppbygging leiðarinnar frá Reykjavík til Borgarness, og tvöföldun vegkaflans Hvalfjörður–Borgarnes, myndi minnka umferðartafir og skila ríkinu milljarða króna á ári. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs, þar sem rýnt er í umferð um stofnvegi út frá höfuðborgarsvæðinu. Til að svara spurningum um kostnað af núverandi samsetningu vegakerfisins og hver ábatinn af tilteknum úrbótum gæti orðið, hefur Viðskiptaráð smíðað umferðarhermi sem öllum er aðgengilegur. Þar geta áhugasamir prófað þær sviðsmyndir sem fjallað er um í úttektinni, fylgst með umferð líða um kortið og breytt vegunum með nokkrum smellum. Viðskiptaráð telur að forgangsröðun samgöngufjárfestinga eigi að ráðast af mældum ábata, og að þau tölulegu gögn sem fram koma í úttekt gefi skýra vísbendingu um hvar hann sé mestur. Meðal tillaga er bent á hækkun hámarkshraða á Reykjanesbraut í 110 km/klst. Slíkt krefjist úrbóta á vettvangi, en bent er á að slíkt sé viðhaldsverkefni fremur en dýr innviðaframkvæmd, sem skilað geti um 2,2 milljörðum króna á ári frá fyrsta degi. Sömuleiðis er lagt til að hámarkshraði verði hækkaður í 110 km/klst á köflum sem þegar eru 2+1 eða 2+2. Í úttektinni er á það bent að á Kjalarnesi og Suðurlandsvegi beri tæpir 50 km af núverandi vegum nú þegar hærri hraða, með skiltum og uppfærðum vegbúnaði. Þess ber að geta að umferðarlög heimila nú þegar allt að 110 km/klst hraða þar sem akstursstefnur eru aðgreindar. Þá myndi breyting þessi skila yfir tveimur milljörðum króna á ári á meðan beðið er eftir fullri uppbyggingu, um 1,6 milljörðum á Suðurlandsvegi og um hálfum milljarði á Kjalarnesi. Heimild: Vegagerðin, umferðarhermir Viðskiptaráðs Viðskiptaráð leggur einnig til tvöföldun vegkaflans Hvalfjörður–Borgarnes. Í úttektinni kemur fram að þar lægi stærsti einstaki ábatinn, um 8,3 milljarðar á ári, mesti ábatinn á hvern kílómetra og kaflinn þar sem bílaraðir eru hvað lengstar í dag. Hönnun ætti að miða við 110 km/klst hraða frá upphafi. Þá er jafnframt lagt til að leiðin Reykjavík–Borgarnes verði kláruð í heild með seinni Hvalfjarðargöngum, 2+2 um Kjalarnes og mislægum gatnamótum. Þar að auki skuli byggja Suðurlandsveg upp í 2+2 með 110 km/klst hámarkshraða í heild fremur en í smábútum. Nálgast má úttekt Viðskiptaráðs í heild hér.

Share this article