Innlent | mbl | 16.7.2026 | 7:32 Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Framkvæmdastjóri umbóta- og stjórnsýslusviðs Barna- og fjölskyldustofu, segir málið eilítið flóknara en svo að börn hafi verið send á alleyfislaus fósturheimili. mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Mál af þessu tagi tekin fyrr til afgreiðslu Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi » Fleiri tengdar fréttir Framkvæmdastjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) segir margt sem fram kom í skýrslu sem Gæða- og eftirlitsstofnun (GEV) gaf út í gær ekki hafa komið sér á óvart, en telur að mikill fjöldi fósturbarna dvelji lengur en æskilegt er hjá fjölskyldum sem hafa einungis bráðabirgðaleyfi til að taka á móti þeim. Í nýrri skýrslu GEV kemur fram að 164 börn, eða 38% þeirra barna sem voru í fóstri þegar athugun var framkvæmd fyrr á árinu, hjá aðilum sem ekki höfðu gild leyfi frá stofnuninni, en alls voru 46% fósturheimilanna án slíks leyfis. Þegar gilt fósturleyfi liggur ekki fyrir skortir lagagrundvöll fyrir fóstursamningi, að því er segir í skýrslunni, og hafa barnaverndarþjónustur verið krafðar svara fyrir vinnubrögðin sem berast þurfa innan hálfs árs. Frétt af mbl.is 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Frétt af mbl.is Athuga eftirlit með börnum í fóstri Myndi vilja trúa því að Bakkakotsmálið gæti ekki endurtekið sig Guðrún Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri umbóta- og stjórnsýslusviðs BOFS, bendir á að skýrslan nái ekki til allra þeirra barna sem eru vistuð hjá sveitarfélögunum. Þá hafi miklar breytingar orðið á umgjörð eftirlits með fósturbörnum frá því að Bakkakotsmálið svokallaða átti sér stað, til dæmis með farsældarlögunum, og vökul augu eigi að vera til staðar alls staðar innan kerfisins. „Þannig að maður myndi vilja trúa því að mál eins og Bakkakotsmálið ættu ekki að geta gerst í dag af því að það eru allir komnir með meiri tilkynningarskyldur á herðar sér,“ segir hún í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Tvenns konar vistleyfi til Guðrún segir tvenns konar leyfi vera í gildi fyrir fólk sem er með börn í vistun á heimilum sínum – annars vega fósturleyfi, sem veita foreldrum rétt til þess að taka börn til sín í fóstur til langs tíma, og svo neyðarvistleyfi. „Það hefur verið svolítill ruglingur með þessi vistleyfi, sem kallast í daglegu tali 84. greinar leyfi, en þá er fólk í rauninni orðið neyðarvistforeldrar í að hámarki þrjá mánuði, sem taka á móti börnum ef það eru einhver bráðatilvik, en hafa ekki leyfi til þess að vera langtímafósturforeldrar,“ segir hún. Umsóknarferlið sem tilvonandi fósturforeldrar þurfa að ganga í gegnum fer fram hjá þremur stofnunum – barnaverndarþjónustu þess sveitarfélags sem viðkomandi tilheyrir, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV), og svo Barna- og fjölskyldustofu (BOFS). Vistforeldrar geta í bráðatilvikum tekið á móti börnum með milligöngu barnaverndarþjónustu sveitarfélagsins án þess að umsókn þeirra um fósturleyfi hafi verið samþykkt af stofnununum tveimur – GEV og BOFS. Ljósmynd/Colourbox Börn sett í bráðabirgðavistun Vistforeldrar geta hins vegar, í bráðatilvikum, tekið á móti börnum með milligöngu barnaverndarþjónustu sveitarfélagsins án þess að umsókn þeirra um fósturleyfi hafi verið samþykkt af stofnununum tveimur – GEV og BOFS. „Það á alltaf að tilkynna slíkar vistanir til okkar og þessir foreldrar þurfa að sækja um fósturleyfi ef barnið á að dvelja hjá til lengri tíma, til dæmis af því að það eru gerðar ríkari kröfur til fósturforeldra en vistunarforeldra, en það hefur ekki alltaf verið gert,“ segir Guðrún. Til að mynda sé enginn innan barnaverndarkerfisins sem hafi það hlutverk að fylgjast með því hversu lengi börn sem sett hafa verið í bráðabirgðavistun hjá vistforeldrum sem ekki hafa tilskilin fósturforeldraleyfi til langtímafósturs hafa dvalið þar. Börn geti því dvalið í slíkum úrræðum allt of lengi, utan hefðbundins eftirlits og jafnvel án vitundar barnaverndaryfirvalda annarra en barnaverndarþjónusta sveitarfélaganna, en heimildir mbl.is herma að börn hafi verið vistuð í slíkum úrræðum í allt að átta ár. Frétt af mbl.is Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Dvalartími í skammtímaúrræðum lengst með breytingunni Guðrún segir lagabreytingar sem urðu til þess að hlutverki Barnaverndarstofu sem var og hét var skipt á milli þriggja eftirlitsaðila – GEV, BOFS og viðeigandi barnaverndarþjónustu hvers sveitarfélags – hafa orðið til þess að yfirsýn yfir þeim börnum sem dvelja í vistunarúrræði hafi minnkað. „Þegar Barnaverndarstofa var bæði með ráðgjöfina sem við sjáum um núna og leyfisveitinguna sem GEV sér um núna var hægt að hafa meiri yfirsýn yfir það hvaða hópur barna var í þessum 84. greinar vistunum og þrýsta á þá vistforeldra að ná sér í fósturleyfi,“ segir hún. „En síðustu lagabreytingar, þar sem þessi hlutverk liggja hjá tveimur mismunandi stofnunum, hafa í rauninni leitt til þess að sá tími sem börn eru að dvelja í þessum vistunum, sem eru ekki fóstur, hefur verið að lengjast.“ Öllum barnaverndarstofnunum sé ljóst að passa þurfi að börn séu ekki að ílengjast í slíkum vistunum, en vegna mikils álags hjá barnaverndarþjónustum geti þær ekki alltaf haft yfirsýn yfir það hversu lengi börnin hafi dvalið hjá vistforeldrum eða hvort vistforeldrarnir hafi sótt um leyfi til að gerast fósturforeldrar. Frétt af mbl.is Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Frétt af mbl.is Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Hliðarkerfi myndist Hún segir það ekki beint koma á óvart að barnaverndarþjónustur innan sveitarfélaga útvegi börnum vistun án þess að Barna- og fjölskyldustofa komi að því ferli, þó það sé ekki endilega æskilegt. „Það hefur verið statt og stöðugt unnið að því að bæta úr því í mörg ár, en það gerist ennþá að vistanir fara ekki í gegnum Barna- og fjölskyldustofu, þó barnaverndarþjónusta eigi alltaf að hafa samband við okkur áður en færa á barn í fóstur til þess að við getum bent á heimili sem hentar fyrir þetta tiltekna barn,“ segir hún. „Ég get ekkert sagt að margt af þessu komi á óvart, sumar barnaverndarþjónusturnar eru kannski komnar í samskipti við fósturforeldra og eru vanar að vinna með þeim, og hafa þá ekki samband við okkur og þá myndast einhvers konar hliðarkerfi.“ Þá fari sá fjöldi sem er vistaður í slíkum úrræðum ekki inn í heildartölu fósturbarna og enginn aðili innan kerfisins hafi í rauninni burði til þess að fylgjast með því hvort foreldrarnir hafi tilskylin leyfi til langtímafósturs. Hún bendir þó á að miklar breytingar hafi orðið á verkferlum frá því að Bakkakotsmálið svokallaða átti sér stað, Frétt af mbl.is Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Frétt af mbl.is Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Skýrar kveðið á um eftirlitsheimsóknir Aðspurð um alvarlegustu athugasemdir sem gerðar voru í skýrslu GEV, sem varða til dæmis að reglubundnu eftirliti barnaverndarþjónusta með fósturbörnum hafi ekki verið sinnt, segir Guðrún að brugðist hafi verið við ýmsum ábendingum í nýju frumvarpi sem nú liggi fyrir á Alþingi. „Þar er sérstaklega fjallað um þessar heimsóknir og ítrekað hvernig þær eiga að vera, að það sé ekki nóg að taka símtal eða líta við í kaffi, heldur verði fyrst og fremst að koma til þess að hitta barnið, fara til dæmis með það í bíltúr eða koma því úr aðstæðunum með öðrum hætti til að það sé alveg örugglega rými fyrir barnið til þess að tjá sig í öruggu umhverfi,“ segir hún. Að lokum segist hún ekki geta svarað sérstaklega fyrir það hvers vegna eftirlit barnaverndarþjónusta með fósturbörnum virðist ekki hafa verið framkvæmt með eins reglubundnum hætti og lög kveða á um, en bendir þó aftur á að barnaverndarþjónustur séu oftar en ekki undir verulegu álagi. Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Mál af þessu tagi tekin fyrr til afgreiðslu Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 11 látnir eftir bruna á munaðarleysingjahæli Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Kennir landsliðsþjálfaranum um Aðsend grein: Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Samskipti bræðranna við frostmark Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Drungi en bjart fram undan Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Hell week“ á Seyðisfirði Hundruðum eldri nemenda vísað frá Spara mætti milljarða Varað við hvössum vindhviðum á morgun Einn fær 552,5 milljónir Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Lærði „method-leik“ í sama skóla og Adam Sandler Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Mótmæla brottrekstri varnarmálaráðherrans 11 látnir eftir bruna á munaðarleysingjahæli Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Kennir landsliðsþjálfaranum um Aðsend grein: Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti