Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Guðni Ágústsson. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu „Maður og hestur, þeir eru eitt, fyrir utan hinn skammsýna markaða baug. Þar finnst hvernig æðum alls fjörs er veitt úr farvegi einum, frá sömu taug.“ Hið ódauðlega ljóð Einars Benediktssonar, Fákar, og ást hans á íslenska hestinum fékk nýja vængi á nýafstöðnu Landsmóti hestamanna að Hólum í Hjaltadal. Ekki einungis vegna glæsilegrar frammistöðu hesta og knapa og skal þó ekkert frá þeim þætti tekið. Heldur einnig vegna tímamótamarkandi fyrirheita sem Logi Einarsson, ráðherra háskólamála, gaf fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands í setningarathöfn mótsins. Tignarlegt samspil manns og hests vitnaði á landsmótinu um miklar framfarir í gæðum hestamennskunnar. Þar sannaðist hið fornkveðna að lengi getur gott batnað. Yfir öllu vakir ræktunarstarf bóndans og sú mikla menntun sem landbúnaðarháskólarnir að Hólum og á Hvanneyri miðla til nemenda sinna. Starf hrossabænda og hrossaræktarráðunauta Bændasamtakanna ásamt öflugu starfi Félags tamningamanna og LH skilar svo þekkingunni út í háræðakerfi hestamennskunnar. Margar hendur vinna létt verk. Öflugasta sendiherra þjóðarinnar, íslenska hestinum, þessari einstöku undraskepnu, vex ásmegin með hverju árinu sem líður. Það er mikils virði. Hann eykur ekki einungis hróður lands og þjóðar á erlendum vettvangi heldur fyllir okkur alla daga gleði og stolti. Og þjóðskáldið þekkir töfrana sem knapar um allt land upplifa svo oft í hnakknum: Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með. Betra á dauðlegi heimurinn eigi. Forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, sagði við mig í brekkunni að Landsmót hestamanna væri ekki eingöngu ein af fjölmennustu íþróttahátíðum landsins heldur væri umgjörð hennar ávallt svo glæsileg að hún ætti vart sinn líka. Á milli landsmóta, annað hvert ár, safnast svo þúsundir aðdáenda íslenska hestsins, ræktendur, keppendur, eigendur og aðrir vinir frá um 20 þjóðlöndum, saman einhvers staðar á meginlandi Evrópu til þess að etja kappi á heimsmeistaramótum. Landkynningin er gríðarleg og ómetanleg. Stærstu tíðindi þessa landsmóts marka þáttaskil og gera það ábyggilega eftirminnilegt um langa framtíð. Viljayfirlýsingin sem undirrituð var um stofnun rannsóknaseturs íslenska hestsins á Hólum er gríðarlega mikilvægt framfaraskref. Undir þetta samkomulag rituðu þau Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar. Við það tækifæri sagði ráðherra: „Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferðaþjónustu, íþróttum, sögu og menningu. Hann er líka viðfangsefni sem kallar á vandaðar rannsóknir, þverfaglega nálgun og öfluga miðlun þekkingar. Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknarsetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag. Þannig verður sérstaða svæðisins að uppsprettu nýrrar þekkingar fyrir samfélagið allt og út í heim.“ Ég vil vegna þessarar viljayfirlýsingar og orða ráðherrans færa hestamönnum, vinum Hóla í Hjaltadal, Skagfirðingum og háskólasamfélaginu innilegar hamingjuóskir. Ég er viss um að við hin mörgu sem efuðumst um „yfirtöku“ Háskóla Íslands á Háskólanum á Hólum gerumst nú liðsmenn og baráttumenn þeirra mörgu tækifæra sem liggja í rannsóknarsetri íslenska hestsins. Hann er vel þekktur á meðal hestamanna í tugum landa, elskaður og dáður, enda með aðra og meiri hæfileika en öll önnur hrossakyn. Þar er fimmgangurinn dýrmætasta sérkennið með töltið og skeiðið í öndvegi, en lundarfarið og jafnvel barnelska og blíðlyndi hörðustu keppnishrossanna er ekki síður talið Íslandshestinum til tekna. Ef vel tekst til geta Hólar í Hjaltadal nú orðið uppspretta nýrra tæk ifæra, nýrrar athygli umheimsins og svo öflug miðstöð íslenska hestsins að enn springi ævintýrið út í rannsóknum, ræktunarstarfi, hestaíþróttum, keppni og almennri notkun svo langt sem augað eygir. Þegar ráðherra gefur í nafni ríkisstjórnarinnar svona yfirlýsingu vita bæði fjármálaráðherra og Alþingi hvað til þeirra friðar heyrir; fjármagn er fætur vísindanna. Vísindasjóðir og atvinnulíf og einstaklingar munu koma að verkefninu ef vel tekst til. Reiðkennslan á að fara fram á Hólum árið um kring og sumarið ber að nýta fyrir kennslu og þjálfun knapa alls staðar að úr veröldinni. Þá umgjörð sem reiðleiðir Skagfirðinga bjóða upp á ætti að nýta til hins ítrasta. Hinir glæsilegu vellir í brekkum fjallasalarins eiga hvergi sinn líka. Stjórnvöld eru loksins að koma aftur að hestamennskunni með skýrum hætti og það tækifæri þarf Hólastaður að grípa með öllum tiltækum ráðum. Megi Líkaböng, hinar sögufrægu kirkjuklukkur Hóladómkirkju, klingja sem oftast íslenska hestinum til dýrðar – jafnvel af sjálfsdáðum eins og þegar líkfylgd Jóns Arasonar biskups nálgaðist forðum. Guðni Ágústsson, fv. alþingismaður og ráðherra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir Arsenal Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi Upplýst hver lá látinn í báti í Stavanger Kennir landsliðsþjálfaranum um Aðsend grein: Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Drungi en bjart fram undan Farþegi stakk leigubílstjóra Sumarblíða á Seyðisfirði: „Bara eins og þjóðhátíð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Spara mætti milljarða Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Einn fær 552,5 milljónir Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Mikið áfall fyrir Arsenal Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi Upplýst hver lá látinn í báti í Stavanger Kennir landsliðsþjálfaranum um Aðsend grein: Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi ESA skiptir sér ekki af hvalveiðum Mest lesið Í gær Í vikunni Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Spara mætti milljarða Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Einn fær 552,5 milljónir Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article