Innlent | mbl | 16.7.2026 | 8:21 Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi Dýraverndarsamband Íslands ásamt fleiri samtökum krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Dýraverndarsamband Íslands ásamt fleiri samtökum krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Dýraverndarsambandi Íslands og Samtökum um dýravelferð á Íslandi ásamt Anima, Animals’ Angels Inc., Animal Justice, Animal Welfare Foundation, Dier&Recht, Ekō, Eurogroup for Animals, Italian Horse Protection og Tierschutzbund Zürich og Welfarm sem hafa sent kvörtun til atvinnuvegaráðuneytisins. Jafnframt er þess krafist að MAST taki umsóknina til meðferðar á ný í fullu samræmi við kröfur reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni sem er Evróputilskipun og Íslandi ber að fylgja sem aðili að EES samningnum. Hormónið hefur neikvæða áhrif á velferð dýranna „Leyfið heimilar blóðtöku úr allt að 4.900 fylfullum hryssum árlega í þeim tilgangi að framleiða PMSG/eCG-hormón til notkunar í dýrafrjósemislyfjum, aðallega fyrir gyltur í verksmiðjubúskap. Hormónið hefur neikvæð áhrif á velferð dýranna þar sem notkun þess getur leitt til stærri og veikbyggðari grísagota, sem eykur hættuna á grísadauða,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir að blóðtaka í blóðmerahaldi fari langt umfram alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna. Einnig sé meðferð hryssnanna við blóðtöku, sem eru að jafnaði lítið tamdar, með öllu óviðunandi. Ekki sé unnt að taka blóð úr hálfvilltum hrossum án þess að valda þeim verulegri streitu og ótta eða án þess að beita þvingunum. „Fagráð um velferð dýra veitti leyfisumsókn fyrir blóðmerahaldi neikvæða umsögn í febrúar síðastliðnum. Þrátt fyrir það fór MAST gegn áliti ráðsins og veitti starfseminni skilyrt leyfi til tveggja ára í maí. Það vekur einnig furðu að leyfi hafi verið veitt á meðan yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) er varðar velferð blóðmera er enn ólokið,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hélt aftur tárunum yfir Messi Lést eftir stunguárás í Stokkhólmi Brottfallið litið alvarlegum augum Mikið áfall fyrir Arsenal Handtekinn í kjölfar dauða ungbarns Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitamet sumarsins fallið 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Spara mætti milljarða Skipverjarnir játa sök Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Einn fær 552,5 milljónir Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Hitamet sumarsins fallið Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hélt aftur tárunum yfir Messi Lést eftir stunguárás í Stokkhólmi Brottfallið litið alvarlegum augum Mikið áfall fyrir Arsenal Handtekinn í kjölfar dauða ungbarns Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi ESA skiptir sér ekki af hvalveiðum „Brotist inn hjá okkur bara eins og flestum öðrum“ Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá „Hell week“ á Seyðisfirði Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Varað við hvössum vindhviðum á morgun Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Einn fær 552,5 milljónir Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Hitamet sumarsins fallið Lengri sunnudagsopnun í Salalaug Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitamet sumarsins fallið Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“