Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Staðan verri áður en skýrslan var unnin

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.7.2026 | 13:15 Staðan hafi verið verri áður en skýrslan var unnin Guðlaugur Kristmundsson, formaður félags fósturforeldra, skorar á sveitarstjórnarfólk að taka til hendinni og kanni hvernig ástandið sé hjá eigin barnaverndarþjónustum. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Mál af þessu tagi tekin fyrr til afgreiðslu Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur » Fleiri tengdar fréttir Formaður félags fósturforeldra telur að skýrsla sem Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sýni bjartari mynd af ástandinu en ríkt hafi áður en tilkynnt var að skýrslan yrði gerð, og skorar á sveitarstjórnarfólk að taka til hendinni og kanna hvernig ástandið sé hjá eigin barnaverndarþjónustum. Meginniðurstöður skýrslunnar komi því miður ekki á óvart, þó það sé vissulega sláandi að sjá samantekt á málaflokknum þar sem slík samantekt hafi aldrei verið framkvæmd áður að hans vitund. „Í aðdraganda þessarar skýrsluvinnu og þessarar athugunar sem farið var í 1. apríl þá voru barnaverndirnar náttúrulega heldur betur búnar að slá í hesta sína að fara í þessar heimsóknir, sem svo er bent á í skýrslunni að séu ekki endilega rétt gerðar,“ segir Guðlaugur Kristmundsson, formaður félags fósturforeldra í samtali við mbl.is. „Þannig að skýrslan teiknar upp betri mynd heldur en staðan var í raun og veru.“ Frétt af mbl.is 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Frétt af mbl.is Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Sveitarstjórnarfólkið ekki sýnt ábendingum áhuga Guðlaugur segist hafa trú á því að þar sem eyrum stjórnvalda og ráðuneytis hafi verið náð með gerð skýrslunnar muni yfirstofnanir barnavernarþjónusta verða móttækilegri fyrir ábendingum fósturforeldra, en það sem eftir standi sé vilji sveitarstjórnanna til þess að taka á barnaverndarmálum. Barnaverndarþjónusturnar eru á vegum sveitarfélaganna, og eins og greint var frá í morgun skortir gjarnan upplýsingagjöf á milli einstakra barnaverndarþjónusta, sem hafa oftast nóg á sinni könnu, og tveggja yfirstofnana – Barna- og fjölskyldustofu og GEV. Frétt af mbl.is Athuga eftirlit með börnum í fóstri „Undanfarin ár hefur maður kannski bent sveitarstjórnarfólki, sveitarstjórum eða bæjarstjórum á að kanna stöðuna í sinni barnavernd, en þeim ábendingum okkar eða hvatningu hefur ekki verið sýndur áhugi, og fólk hefur oft ekki viljað fara og skoða hvernig málefni barnaverndar eru í sínu sveitarfélagi,“ segir Guðlaugur. „Ég held að nú sé ríkið og eftirlitsstofnun ríkisins, GEV og BOFS, búin að átta sig á því að það sem við erum að setja er rétt, en ég sé ekki alveg hvernig sveitarfélögin ætla að bregðast við þessu eða séu yfirhöfuð búin að hugsa út í það.“ Frétt af mbl.is Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Frásagnir af áminningum rími við upplifun fósturforeldra Guðlaugur segir frásagnir yfirmanna á Barna- og fjölskyldustofu af því að minna þurfi barnaverndarþjónustur á það hvernig eftirlitsheimsóknum skuli háttað og að þjónusturnar virtust stundum ómeðvitaðar um hlutverk sitt ríma við eigin upplifun. „Það rímar algjörlega, og þegar mál koma til dæmis á borð okkar í félaginu þá erum við oft hreinlega að takast á við barnaverndarstarfsmann eða barnavernd sem veit ekki hver réttur fósturforeldra eða fósturbarna er, eða hvernig á að haga fóstri.“ Frétt af mbl.is Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Félagið hafi því oft lent í því að þurfa að vera leiðbeinandi fyrir barnaverndarþjónustur til þess að tryggja ákveðin réttindi fósturbarna á borð við að fá sálfræðiþjónustu eða forgangsþjónustu, sem barnaverndarstarfsmenn séu ekki meðvitaðir um að þeir eigi að útvega fyrir börn í þessari stöðu. „Ég hef áhyggjur af þessu,“ segir Guðlaugur. „Ég hef áhyggjur af vilja sveitarfélaganna, og því hvort það kvikni nógu snemma í augum sveitarstjórnarfólks, þessara kjörnu fulltrúa, að þeir bera ábyrgð á þessum málaflokki.“ Ekki fylgst með barnaverndarþjónustunum Hann segir að með farsældarlögunum og breytingum með því að fella niður barnaverndarnefndir, sem ráðist var í árið 2021 , hafi stemningin verið sú að stjórnmálamenn ættu alls ekki að skipta sér af barnamálum, og lýsir ákveðinni gullhúðun sem hafi átt sér stað í ferlinu. „Það varð svo rosaleg gullhúðun á þeirri framkvæmd að það vill enginn einu sinni fylgjast með tölum eða rekstri eða úrræðum sem við beitum í barnavernd, eins og þetta sé bara komið til einhverra sérfræðinga sem hvorki þurfa stuðning eða eftirlit eða einhvers konar ramma utan um sína vinnu,“ segir hann. Frétt af mbl.is Svört skýrsla: Farsældarlögin fá falleinkunn Fjöldi barna í neyðarvistun alvarleg ábending Þá vill Guðlaugur sérstaklega benda á eina umbótatillögu sem nefnd er í skýrslunni er varðar 84. greinar vistun, eða neyðarvistun. Í morgun greindi mbl.is ítarlega frá því hvernig ákveðið hliðarkerfi myndast þegar barnaverndarþjónustur setja börn í neyðarvistunarúrræði án milligöngu BOFS eða GEV. „Við vitum af börnum sem eru hjá fósturforeldrum í félaginu sem hafa verið vistuð í átta ár samkvæmt þessari grein, sem er hugsuð til neyðarráðstöfunar í hámark þrjá mánuði. Ekkert þessara barna er inni í skýrslunni, og þau lúta engu eftirliti, þannig að aðstæður þeirra hafa ekki verið rannsakaðar og við vitum ekki ennþá hversu mörg börn eru vistuð samkvæmt þeirri grein.“ Frétt af mbl.is Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Þurfi að halda áfram að kanna aðstæður Guðlaugur segir það hafa komið sér gífurlega á óvart að sjá hvað það sé mikill himinn og haf milli þeirrar þjónustu sem barnaverndarþjónusturnar eiga að sinna og þeirrar þjónustu sem tekst að sinna, enda hafi aldrei áður verið gefin út samantekt á þessum málaflokki svo hann viti. „Þetta er rosalegur áfangi fyrir barnaverndarkerfið að hérna komi loksins út samantekt, en svo þurfum við að halda áfram, vegna þess að ef að við gátum ekki sinnt lágmarkseftirliti þá get ég ekki ímyndað mér að við séum að sinna lágmarksþjónustu eða skyldum gagnvart þessum börnum ef eftirlitinu er svona háttað,“ segir hann. „Sú vinna er eftir, og ég myndi vilja sjá að við færum að kanna það af mikilli festu núna.“ Skorar á sveitarstjórnarfólk Því skorar hann á sveitarstjórnarfólk alls staðar að fara til barnaverndarstarfsmanna og grennslast fyrir um það hversu mörg fósturbörn innan sveitarfélagsins séu vistuð samkvæmt þessari 84. grein. „Ríkið getur ekkert fylgst með þeim, þannig að ef það eru börn sem eru vistuð samkvæmt 84. grein þá ætti það að vera mjög alvarleg staða fyrir sveitarfélögin, og það er eitthvað sem fólk ætti að skilja að það þurfi að bregðast við á einhvern hátt,“ segir hann. Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár 164 börn í fóstri án gilds fósturleyfis Mál af þessu tagi tekin fyrr til afgreiðslu Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Niðurstaðan áfellisdómur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Milljón fyrir landsmótsdósir Staðan verri áður en skýrslan var unnin Eina eftirsjá Bjarka Más Lands biggest salmon after 50 years of fishing Iceland „Það var ekkert að hjólinu“ Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottfallið tengist vanda verknáms Farþegi stakk leigubílstjóra Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Almar nýr formaður Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Varað við hvössum vindhviðum á morgun Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Milljón fyrir landsmótsdósir Staðan verri áður en skýrslan var unnin Eina eftirsjá Bjarka Más Lands biggest salmon after 50 years of fishing Iceland „Það var ekkert að hjólinu“ Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottfallið litið alvarlegum augum Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Komust hjá aflífun hunds Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Almar nýr formaður Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Varað við hvössum vindhviðum á morgun Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst

Share this article