Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hríseyjarferjan dró vélarvana bát til hafnar Ásrún Aldís Hreinsdóttir Hvalaskoðunarbáturinn Brimir var dreginn vélarvana til hafnar á Árskógssandi síðdegis í dag. Tveir voru um borð í bátnum en engir farþegar. Hríseyjarferjan Sævar dró bátinn inn til hafnar en Brimir varð vélarvana rétt fyrir utan Árskógssand. Engin slys urðu á fólki og björgunin gekk vel. Aðsend Aðsend Fréttin var leiðrétt. Brimir var dreginn til hafnar á Árskógssandi. Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leita að Sæbjörgu Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttur. Síðast sást til hennar á þriðjudagskvöld. Þá var hún klædd í svartar joggingbuxur, bláa hettupeysu með rennilás, svartan Reykjavík Roses-jakka og hvíta og svarta Nike-skó. Sæbjörg er um 153 cm á hæð og með sítt, dökkt hár. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ferðir eða dvalarstað Sæbjargar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í gegnum Neyðarlínuna í síma 112. Sæbjörg er hvött til að hafa samband við fjölskyldu sína eða lögreglu sem allra fyrst. Skjáskot / Facebook Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Íþróttir Alþjóðaólympíunefndin situr föst við sinn keip Alþjóðaólympíunefndin ætlar ekki að endurskoða þá ákvörðun að hleypa rússnesku ólympíunefndinni aftur inn. Níu Evrópusambandsríki höfðu krafist þess að sambandið stöðvaði fjármagn til nefndarinnar af þeim sökum. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið „Chat control“ gæti komið til Íslands í gegnum EES Innan Evrópusambandsins er deilt um nýjar reglur sem eiga að koma í veg fyrir dreifingu barnaníðsefnis á netinu. Tillagan gæti varðað EES-samninginn og gæti því haft bein áhrif á íslenska notendur dulkóðaðra samskiptaforrita. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Árekstur undir Ingólfsfjalli Árekstur tveggja bíla varð á Suðurlandsvegi undir Ingólfsfjalli fyrir skömmu. Fjórir voru fluttir af vettvangi til skoðunar. Búið er að greiða úr töfum á umferð. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Siggi „hakkari“ játar að hafa svikið 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja Sigurður Þórðarson fékk í dag 18 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm og er gert að greiða rúmar tíu milljónir króna í bótakröfur og í sakarkostnað. Hann sveik 28 milljónir frá fyrirtækjum og er dæmdur fyrir fjársvik, skjalafals og vopnalagabrot. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tveir úr samskiptateymi borgarinnar vinna uppsagnarfrestinn Hildur Björnsdóttir borgarstjóri heldur utan um upplýsingamál með aðstoð starfsfólks skrifstofu borgarstjóra. Öllum upplýsingafulltrúum var sagt upp en tveir þeirra vinna út uppsagnarfrest til áramóta. Nýtt fyrirkomulag verður kynnt á næstu vikum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Segir yfirmann úkraínska hersins ala á sundrungu Ríkisstjórnarskipti í Úkraínu, sem Volodymyr Zelensky tilkynnti fyrr í vikunni, hafa valdið úlfúð í úkraínsku þjóðfélagi. Þau hafa svipt hulunni af deilum milli fráfarandi varnarmálaráðherra og yfirmanns úkraínska hersins. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Falklandseyjar og fótbolti – hvað gerir FIFA? Argentína vann góðan endurkomusigur á Englandi í undanúrslitum heimsmeistaramóts karla í gærkvöld. Mikil saga er á milli ríkjanna og leikir liðanna gjarnan verið áhugaverðir. Argentínumenn gerðust pólitískir við leikslok. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Viðvarandi lokun sundlaugar í Öxarfirði bagaleg fyrir ferðaþjónustu Ferðamenn í Ásbyrgi aka yfir 60 kílómetra til að komast í sund því sundlaugin í Lundi í Öxarfirði er lokuð og óvíst hvenær endurbætur verða gerðar á henni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tvennt dæmt fyrir kókaínsmygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Karl og kona frá Póllandi voru í gær dæmd til fangelsisvistar fyrir tilraun til að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins. Smyglið uppgötvaðist þegar fólkið kom til Keflavíkurflugvallar frá Katowice í Póllandi. Bæði voru þau með efnin falin inni á sér. Karlmaðurinn fékk átta mánaða fangelsisdóm og konan sex mánuði. Fólkið átti efnin ekki heldur tók að sér að smygla þeim gegn greiðslu. Fólkið var sakfellt í Héraðsdómi Reykjaness. Ruv.is / Anton Brink Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hálendisvakt Landsbjargar stendur vaktina Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar stendur vaktina á hálendinu í sumar. Vaktin sinnir ýmsum verkefnum og segir verkefnastjóri Landsbjargar vel hafa gengið að manna vaktirnar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga „Eitt sem er alveg hægt að slá föstu er að þessum umbrotum er ekki lokið“ Eitt ár er liðið frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að eldsumbrotunum á Reykjanesskaga sé ekki lokið. Alls hefur gosið 12 sinnum þar frá árinu 2021. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Prótein popp innkallað Fréttastofa RÚV Iðnmark hefur innkallað þrjár framleiðslulotur af Stjörnu prótein poppi vegna þess að mjólk var ekki gefin upp í innihaldslista á umbúðum. Loturnar sem eru innkallaðar eru með dagsetningarnar 03.11.26, 20.10.26 og 05.10.26. Matvælastofnun varar fólk með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við poppinu og hvetur það til að henda því eða skila inn gegn endurgreiðslu. Iðnmark innkallaði framleiðsluloturnar þrjár í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía 32 sakfelldir vegna brúar sem hrundi í Genóa Yfirmaður fyrirtækisins sem rak brú í Genóa sem hrundi 2018 var í dag dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. 32 af 57 sakborningum voru sakfelldir. 43 fórust þegar brúin hrundi. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sungið um BDSM, lækna og svín Það er af nógu að taka í Undiröldunni þessa vikuna þar sem Kaktus Einarsson ásamt John Grant, Kristján Saenz ásamt Bríet, 666° Norður og fleiri mæta með nýja tónlist. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Hnútukast á bryggjunni á Ísafirði Það gekk á ýmsu á bryggjunni á Ísafirði í morgun þegar rúmlega sex þúsund farþegar á fjórum skemmtiferðaskipum komu í land. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL List „Mjóddin er tignarleg eins og álfahöll“ Menning er það sem gerir okkur mennsk, segir leikstjóri Götuleikhúss Hins hússins. Götuleikhúsið hefur glatt borgarbúa með ýmis konar furðulegum uppákomum í sumar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ungir bændur andvígir þjóðaratkvæðagreiðslu og ESB Samtök ungra bænda taka skýra og einróma afstöðu gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með gegn frekari aðildarviðræðum og þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ákærður fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli Karlmaður sætir ákæru fyrir að svipta konu frelsi klukkustundum saman, nauðga henni og beita hana miklu ofbeldi. Konan krefst 15 milljóna í bætur. Hann er jafnframt ákærður fyrir hættulega árás á aðra konu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kaldhæðni örlaganna – þegar Messi baðaði Yamal Spánn og Argentína mætast í úrslitum heimsmeistarkeppninnar á sunnudaginn. Lionel Messi og Lamine Yamal mætast þá í fyrsta skipti á vellinum en fyrir 19 árum mættust þeir á öðrum og heldur óvanalegum vettvangi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ólafur Þór verður næsti sveitarstjóri Skagastrandar Brynjólfur Þór Guðmundsson Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að ráða Ólaf Þór Ólafsson í embætti sveitarstjóra. Hann tekur við starfinu 1. ágúst. Ólafur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Hann var sveitarstjóri í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi auk þess að sitja í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar þar sem hann var forseti bæjarstjórnar. 16 sóttu um starfið og varð Ólafur Þór fyrir valinu. Formlega verður gengið frá ráðningunni á fundi sveitarstjórnar í næstu viku. Ólafur Þór Ólafsson. RÚV / Jóhannes Jónsson Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sjúkrahús rýmt vegna árása Bandaríkjanna Íranar saka Bandaríkjamenn um grimmdarlegar árásir eftir að rýma þurfi sjúkrahús með krabbameinssjúklingum vegna árása. Bandaríkin hafa fært árásir sínar norður eftir Íran, nær höfuðborginni Tehran. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Orkuforstjóri nýr forsætisráðherra Úkraínu Úkraínska þingið samþykkti í morgun tilnefningu Sergiys Koretsky í embætti forsætisráðherra. Uppstokkun Volodymyrs Zelensky forseta hefur mætt mikilli gagnrýni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Valgeir Örn ráðinn til Landsnets Brynjólfur Þór Guðmundsson Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti. Hann hefur störf í næsta mánuði. Valgeir Örn hefur starfað í fjölmiðlum í nærri tvo áratugi og var síðustu árin varafréttastjóri RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins. Valgeir sér um samskipti Landsnets við almenning, hagaðila og fjölmiðla auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Valgeir Örn Ragnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Almar tekur við formennsku Brynjólfur Þór Guðmundsson Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti. Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september. Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár. Almar Guðmundsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Slökkviliðsstjórinn látinn fara vegna rannsóknar á fjárreiðum slökkviliðsins Stjórn Brunavarna Árnessýslu komst að samkomulagi við slökkvili