Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli

Read Full Article →

Erlent | mbl | 23.2.2026 | 16:25 Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Áslaug Arna fór í göngutúr í gærkvöldi til að upplifa hljóðláta snævi þakta borgina. Samsett mynd/Skjáskot/AFP Urður Egilsdóttir [email protected] Setja bókamerki Snjórinn í New York-borg er verulegur og mjög fáir eru á ferli að sögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem nú er í námsleyfi í New York. Ferðabann ökutækja er í gildi til hádegis á staðartíma svo að framlínustarfsfólk og þeir sem þurfa að komast leiðar sinnar geti gert það. Þá var í fyrsta sinn í níu ár gefin út snjóstormsviðvörun í gær. Kennsla fer fram á netinu í dag svo er blaðamaður mbl.is ræddi við Áslaugu Örnu var hún stödd heima hjá sér. Frétt af mbl.is Ferðabann sett á í New York-borg vegna óveðurs Fallegt og hljóðlátt Hún segir að snjókoman hafi byrjað heldur rólega í gær „en maður sá í hvað stefndi“. Í gærkvöldi fór síðan að kyngja niður snjó að hennar sögn og gekk ferðabannið í gildi klukkan 21. Áslaug Arna segir þó að veðrið hafi verið fallegt og fór hún í göngutúr til þess að upplifa borgina svo hljóðláta og fulla af snjó. Klukkan 7 í morgun á staðartíma höfðu um 38 sentímetrar fallið af snjó í borginni. Þá á að snjóa meira í vikunni. Neyðarboð sem barst þeim sem staddir eru í borginni í gær. Skjáskot Ekki séð eins mikla snjókomu Spurð hvernig veðrið og færðin er í samanburði við það sem Íslendingar þekkja segir Áslaug Arna að vissulega geti Bandaríkjamenn verið heldur dramatískir þegar kemur að snjó. „Það fer margt úr skorðum, en sjórinn er samt verulegur í dag og miklu meiri en ég hef séð áður,“ segir hún og bætir við að íbúar sem hafa búið lengi í borginni hafi ekki séð álíka veður í mörg ár. Akstursaðstæður hafi verið erfiðar í nótt. „Þannig að maður getur alveg skilið þessar ráðstafanir.“ Hún segir að víða í borginni sé snjórinn nú um 60 sentímetrar. Gönguskíðin nýtt í Central Park. AFP Snjómokstur til fyrirmyndar Áslaug Arna segir að snjómokstur borgarinnar sé til fyrirmyndar og eitthvað sem Íslendingar geti tekið til sín. Margir bílar séu að störfum og hægt er að fylgjast vel með mokstrinum á netinu. Þá séu ruslabílar vel útbúnir svo sorphirða fari ekki úr skorðum. Þeir eru einnig notaðir til snjómoksturs. Snjómokstur er til fyrirmyndar í borginni að sögn Áslaugar Örnu. AFP 28 stiga frost Í janúar gekk annar öflugur vetrarstormur yfir Bandaríkin. Að minnsta kosti 23 létu lífið vegna hans. Að sögn Áslaugar Örnu var hann aðeins öðruvísi þar sem þá var kuldinn mun meiri og ekki sami vindur sem fylgdi líkt og nú. New York breyttist þá í einn stóran leikvöll og nutu margir íbúar borgarinnar fallegs púðursnjós. Frétt af mbl.is Minnst 23 látnir eftir storminn Áslaug Arna nefnir að mikil kuldatíð hefur ríkt þennan veturinn. Kuldamet hafi verið slegin og nefnir hún 28 stiga frost einn daginn. „Það er alveg kuldi sem maður hefur ekki upplifað á Íslandi nema þegar ég gekk á Hvannadalshnjúk.“ Frá Brooklyn í morgun. AFP Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Jón Ásgeir verður Valsari Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Vefur Miðflokksins hakkaður BBC biðst afsökunar á kynþáttaníði á BAFTA Fær ekki að spila gegn Real Madríd Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Ekkert liggur fyrir um eldsupptök Fimm prósent landans á Wegovy Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Mest lesið Í gær Í vikunni „Eins og við værum frummenn“ Það eina sem heldur Pútín á lífi Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Lét skattgreiðendur borga fyrir nudd Myndin af Andrew hengd upp í Louvre-safninu Óöld í Mexíkó: Viðbúnaðarstig hækkað Segir Pútin hafi hafið þriðju heimsstyrjöldina Ferðabann sett á í New York-borg vegna óveðurs Myndu bregðast við árás Bandaríkjanna af hörku Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Það eina sem heldur Pútín á lífi Frederiksen bregst við færslu Trumps Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Þurftu að súpa eitur áratugum saman Danskir hermenn fluttu veikan bandarískan skipverja Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Vilja rannsaka hvort Andrew hafi framið landráð Lík níunda skíðamannsins fundið Maðurinn við Mar-a-Lago nafngreindur Andrew laus en enn til rannsóknar Það eina sem heldur Pútín á lífi Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Nýju blokkirnar svo ljótar að lögreglan rannsakar þær „Eins og við værum frummenn“ Skildi kærustuna eftir á fjallinu Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá Breskt par dæmt í 10 ára fangelsi í Íran Nýjast á mbl.is » Jón Ásgeir verður Valsari Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Vefur Miðflokksins hakkaður BBC biðst afsökunar á kynþáttaníði á BAFTA Fær ekki að spila gegn Real Madríd Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hægir á byggingu íbúða næstu árin Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Gullhúðun í nýju frumvarpi Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Eins og við værum frummenn“ Það eina sem heldur Pútín á lífi Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Lét skattgreiðendur borga fyrir nudd Myndin af Andrew hengd upp í Louvre-safninu Óöld í Mexíkó: Viðbúnaðarstig hækkað Segir Pútin hafi hafið þriðju heimsstyrjöldina Ferðabann sett á í New York-borg vegna óveðurs Myndu bregðast við árás Bandaríkjanna af hörku Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Það eina sem heldur Pútín á lífi Frederiksen bregst við færslu Trumps Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Þurftu að súpa eitur áratugum saman Danskir hermenn fluttu veikan bandarískan skipverja Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Vilja rannsaka hvort Andrew hafi framið landráð Lík níunda skíðamannsins fundið Maðurinn við Mar-a-Lago nafngreindur Andrew laus en enn til rannsóknar Það eina sem heldur Pútín á lífi Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Nýju blokkirnar svo ljótar að lögreglan rannsakar þær „Eins og við værum frummenn“ Skildi kærustuna eftir á fjallinu Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá Breskt par dæmt í 10 ára fangelsi í Íran

Share this article