- What: Discussion about online alcohol sales in Iceland
- Impact: Regulatory changes may affect how alcohol is sold online
Innlent | mbl | 16.7.2026 | 21:20 Áfengisnetverslanir komnar til að vera Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, vill sjá gagngerar breytingar á áfengislöggjöfinni. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Heiddi Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Santé opnar vínbúð á Fáskrúðsfirði » Fleiri tengdar fréttir Áfengisnetverslanir hér á landi eru komnar til að vera og einkennilegt er að löggjafinn horfist ekki í augu við þá staðreynd. Þetta er mat Benedikts S. Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Áfengisnetverslanir hér á landi eru nú á þriðja tug talsins. Sölufyrirkomulagið er samkvæmt áfrýjuðum héraðsdómi ólögmætt en samkvæmt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra liggja lagabreytingar ekki í loftinu. Frétt af mbl.is Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Lögin eigi að endurspegla raunveruleikann Telur Benedikt löngu tímabært að breytingar verði gerðar á áfengislöggjöf hér á landi. „Við höfum verið þeirrar afstöðu að það þurfi að sjálfsögðu að gera breytingar á lögunum og koma þeim í það stand að þau endurspegli raunveruleikann í dag en ekki raunveruleikann fyrir 30 árum síðan.“ Segir Benedikt að fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi sé barn síns tíma. Leyfa ætti einkaaðilum að halda utan um sölu innan skýrs regluverks. Frétt af mbl.is Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi „Það er bara mjög einkennilegt“ Áfengislöggjöfin hefur ekki verið tekin sérstaklega til umræðu af hálfu ríkisstjórnarinnar en ekki er útlit fyrir að breytingar verði gerðar að svo stöddu þrátt fyrir að töluverð óvissa ríki um lögin sér í lagi í ljósi fyrrnefnds héraðsdóms. „Það er bara mjög einkennilegt, sérstaklega þegar haft er í huga að þessar netverslanir eru starfandi hér. Þessi starfsemi er komin til að vera og það þarf að reglusetja hana þannig að það sé sátt um hvernig þetta lítur út,“ segir Benedikt. Sante reið á vaðið hérlendis í netsölu á áfengi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Lengi hefur erlendum netverslunum verið heimilt að senda áfengi hingað til lands og því yrði sérstakt að mati Benedikts að leyfa ekki íslenskum aðilum að starfa á sama grundvelli. Þá yrði erfitt að setja takmarkanir á erlenda netverslun ef ætlunin væri að stemma stigu við sölufyrirkomulaginu. „EES-samningurinn á að tryggja frjálst flæði vöru við landamæri og frjálsan vöruflutning. Það setur aðildarríkjum samningsins í raun stólinn fyrir dyrnar þegar kemur að því að loka fyrir erlendar verslanir inn í landið. Auðvitað er löngu tímabært að löggjafinn hysji upp um sig buxurnar og reyni að taka samtalið um hvernig menn vilja að þetta líti út,“ segir framkvæmdastjórinn. Einkaleyfi ÁTVR tímaskekkja Á síðasta kjörtímabili lögðu nokkrir þingmenn Viðreisnar fram frumvarp sem fól það í sér að netverslun með áfengi yrði heimiluð. Frumvarpið náði þó ekki fram að ganga. Benedikt er þeirrar skoðunar að ganga ætti mun lengra en bara að leyfa netverslun með áfengi. Einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis samkvæmt áfengislögum segir hann vera tímaskekkju. Það væri þó gott fyrsta skref að greiða götu netverslunar með áfengi. „Það væri allavega einhvers konar fyrsta skref ef það þyrfti að taka þetta í hægari skrefum til að fá einhverja reynslu á þetta og draga úr ótta og eitthvað þess háttar.“ Tengdar fréttir Vín í verslanir Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Santé opnar vínbúð á Fáskrúðsfirði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sara Björk sá Hauka tapa 7:0 Áfengisnetverslanir komnar til að vera Afturelding styrkti stöðuna á toppnum Vestri - Qarabag, staðan er 0:3 FH skoraði sex og fór á toppinn Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill verðmunur milli sundlauga Staðan verri áður en skýrslan var unnin Stúlkan er fundin heil á húfi Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Mest lesið Í gær Í vikunni Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Stúlkan er fundin heil á húfi Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Sara Björk sá Hauka tapa 7:0 Áfengisnetverslanir komnar til að vera Afturelding styrkti stöðuna á toppnum Vestri - Qarabag, staðan er 0:3 FH skoraði sex og fór á toppinn Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stúlkan er fundin heil á húfi Sparkvöllurinn rís ekki í bili Viðvarandi vandamál í áratugi Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Mest lesið Í gær Í vikunni Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Stúlkan er fundin heil á húfi Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir