Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gögn frá lögreglu ófullnægjandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.7.2026 | 23:40 Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Rannsóknarnefndinni var ekki tilkynnt um atvikið í Silfru heldur frétti hún af því í fjölmiðlum daginn eftir. Lögregla svaraði beiðni nefndarinnar um upplýsingar ekki fyrr en 16 dögum síðar. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) gat ekki komist að því hvers vegna 65 ára kafari missti meðvitund við köfun í Silfru á Þingvöllum í ágúst 2024. Nefndin segir tafir á upplýsingagjöf lögreglu og skort á mikilvægum gögnum hafa komið í veg fyrir fullnægjandi rannsókn. Þetta kemur fram í lokaskýrslu um alvarlegt köfunartvik frá RNSA. Kafarinn var í skipulagðri ferð ásamt tveimur öðrum ferðamönnum og leiðsögukafara þegar atvikið varð. Annar kafari í hópnum, 74 ára, lenti ítrekað í erfiðleikum og fór tvisvar upp á yfirborðið. Þegar leiðsögukafarinn og einn úr hópnum aðstoðuðu 74 ára kafarann sást sá 65 ára liggja hreyfingarlaus á botni lóns við enda köfunarsvæðisins. Leiðsögukafarinn sótti hann og kom honum upp á yfirborðið. Hann komst til meðvitundar í landi og var síðar fluttur með þyrlu á sjúkrahús. Allir í hópnum höfðu tilskilin köfunarréttindi. Kafararnir tveir sem lentu í erfiðleikum voru jafnframt með læknisvottorð um að þeir væru nægilega heilsuhraustir til köfunarinnar. Búnaður kafarans sem missti meðvitund virkaði eðlilega og nægt loft var í kútnum. Frétt af mbl.is Konan sem missti meðvitund var í köfunarferð Rannsóknarnefndinni var ekki tilkynnt um atvikið Rannsóknarnefndinni var ekki tilkynnt um atvikið heldur frétti hún af því í fjölmiðlum daginn eftir. Lögregla svaraði beiðni nefndarinnar um upplýsingar ekki fyrr en 16 dögum síðar. Þá var kafarinn farinn úr landi. Gögn úr köfunartölvu hans voru ekki lengur tiltæk og köfunarfyrirtækið gat ekki afhent dagbók með tæknilegum upplýsingum um ferðina. Nefndin segir gögn frá lögreglu heldur ekki hafa verið nægilega ítarleg, meðal annars um köfunardýpi og botntíma mannsins. Í skýrslunni er lögð áhersla á að leiðsögukafarar beri ábyrgð á öryggi allra í hópnum og eigi að hafa stöðugt og virkt eftirlit með þeim. Alvarlegt sé ef kafari er skilinn eftir á dýpi án eftirlits eða skýrra fyrirmæla um að fara upp á yfirborðið. Nefndin telur jafnframt vanta skýrt verklag í lög um hvernig tilkynningum og upplýsingagjöf um köfunarslys til hennar skuli háttað. Sá skortur hafi hindrað rannsókn atviksins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Taka þarf meira tillit til list- og verknáms Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Viðartittlingur kallar á nefndarálit Ensku stórstjörnurnar fengu verstu einkunnirnar Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Stúlkan er fundin heil á húfi Mest lesið Í gær Í vikunni Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Taka þarf meira tillit til list- og verknáms Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Viðartittlingur kallar á nefndarálit Ensku stórstjörnurnar fengu verstu einkunnirnar Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki í mínum villtustu draumum Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Staðan verri áður en skýrslan var unnin Sparkvöllurinn rís ekki í bili Mest lesið Í gær Í vikunni Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir

Share this article