- What: A White House employee is under investigation for using insider information to bet on Trump's speech content
- Impact: No direct impact on regular users
Starfsmaður sem sér um textavél (e. teleprompter ) í Hvíta húsinu er til rannsóknar vegna gruns um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar til að veðja á ræður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hagnast um tæplega 100 þúsund dali. Hinn grunaði, Gabriel Perez, sem hefur starfað í Hvíta húsinu frá árinu 2016, er sakaður um að hafa veðjað á það hvaða orð forsetinn myndi nota í mikilvægum opinberum ræðum. Veðmálin voru gerð á Kalshi, sem er spámarkaðsvettvangur þar sem notendur geta veðjað á raunverulega atburði. Samkvæmt frétt BBC frysti Kalshi aðgang Perez áður en hann náði að taka út nokkurn hagnað. Óvenjuleg veðmál vöktu athygli Forsvarsmenn Kalshi sögðu í samtali við BBC að sérfræðingar þeirra hefðu í mars tekið eftir óvenjulegum veðmálum á svokölluðum „orðamörkuðum“ (e. mention markets ), þar sem notendur spá fyrir um hvort ræðumaður muni nota algeng hugtök, eins og nöfn á ákveðnum löndum, efnahagsleg hugtök eða slagorð úr kosningabaráttunni. „Orð stjórnmálaleiðtoga, eins og forseta og seðlabankastjóra, valda milljarða dala hreyfingum á gjaldeyrismörkuðum, olíuviðskiptum og á hlutabréfamarkaði,“ sagði í yfirlýsingu frá Kalshi. Með því að skoða notendagögn komst fyrirtækið að því að notandinn var ríkisstarfsmaður sem stýrði textavél Hvíta hússins sem sýnir textann sem ræðumenn lesa í myndavélar. Kalachi frysti rúmlega 90 þúsund dali, sem nemur rúmum 12 milljónum króna, áður en hægt var að taka upphæðina út.