Tveir brasilískir kafarar eru á meðal þeirra níu sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um smygl á 106 kílóum af kókaíni til landsins með súrálsskipi til Straumsvíkur, samkvæmt heimildum fréttastofu. Fram hefur komið að níu séu í haldi vegna málsins, þrír Íslendingar og sex útlendingar, meðal annars frá Brasilíu og Rúmeníu. Fíkniefnin voru falin í sjókistu súrálsskipsins Koznitza sem sigldi hingað úr höfn í Norður-Brasilíu, nærri borginni Belém. Afar flókið verk að sækja fíkniefnin Kunnáttumenn segja ljóst að það hafi verið mikið verk að sækja efnin í sjókistuna, sem er á skipsskrokknum undir sjávarmáli, og að það hafi nær örugglega bæði útheimt mikla lagni og búnað. Sérstaklega er nefnt í því samhengi að Koznitza hafi komið til landsins 22. júní, daginn eftir sumarsólstöður, og mennirnir því ekki haft neitt skjól af myrkri þegar þeir athöfnuðu sig í eða við Straumsvík. Brasilísku kafararnir tveir sem eru í gæsluvarðhaldi höfðu verið hér á landi í nokkra daga. Vísir fjallaði nýverið um skýrslu sem brasilíska fyrirtækið Proinde, sem þjónustar skipafélög, vann um sjósmygl . Í skýrslunni kemur meðal annars fram að glæpasamtök hafi gjarnan í sinni þjónustu sérhæfða fíkniefnakafara, sem hafi þekkingu á skipasmíði og kafi af næstu strönd eða úr nærliggjandi báti niður að holrúmum til að koma efnunum fyrir — og þar sé sjókistan vinsælasti felustaðurinn. Hvað er sjókista? Sjókista er sjóinntak sem er byggt inn í skrokkinn á skipum. Hún safnar sjó og sér um að dreifa honum til þeirra kerfa um borð sem þurfa á honum að halda, til dæmis kælikerfa fyrir vélar og loftkælingu, slökkvikerfa og kjölfestukerfa (ballastkerfa). Þessi hólf geta verið mjög misjöfn að stærð eftir stærð skipa, allt frá því að vera á stærð við lítinn ísskáp eða kommóðu og upp í heilt herbergi sem hægt er að ganga um. Að utanverðu er sjókistunum jafnan lokað með rist eða sigti til að koma í veg fyrir að inn í þau safnist rusl eða sjávarfang sem getur stíflað dreifileiðirnar. Annað teymi kafara bíði svo á hinum endanum og sæki efnin — eða jafnvel að sama teymið ferðist alla leið á áfangastaðinn. Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði við fréttastofu þegar fyrst var greint frá smyglinu að virði efnanna væri á þriðja milljarð króna — og jafnvel enn meira þegar búið væri að drýgja það fyrir sölu á götunni. Vegna þess hversu ábatasamt smygl af þessu tagi getur verið eru kafararnir jafnan mjög vel búnir. Í skýrslunni segir að þeir noti gjarnan tæki sem á ensku kallast „scooter“ og „rebreather“, sem gera þeim annars vegar kleift að ferðast hratt í kafi og hins vegar að endurnýta súrefnið úr súrefniskútnum og koma þannig í veg fyrir að loftbólur sjáist á yfirborði vatnsins. Fékk afhent mikið magn fíkniefna í umdeildu sakamáli Fréttastofa hefur greint frá því að tveir Íslendinganna sem eru í haldi séu Lárus Freyr Einarsson og Lúther Ólason . Samkvæmt heimildum fréttastofu er sá þriðji Atli Freyr Fjölnisson. Atli Freyr var handtekinn síðastur Íslendinganna þriggja — mánudaginn 29. júní, daginn fyrir 37 ára afmælið sitt. Hann hefur áður hlotið dóm í fíkniefnamáli. Árið 2016 dæmdi Hæstiréttur hann í fjögurra ára fangelsi fyrir aðild sína að smygli á níu kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af MDMA. Héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fimm ára fangelsi. Málið vakti mjög mikla athygli, annars vegar vegna þess hversu þungan dóm hollensk kona fékk sem smyglaði efnunum til landsins og lét Atla Frey fá þau. Hún fékk 11 ára dóm í héraði, en Hæstiréttur mildaði dóminn í átta ár. Hitt sem þótti sérstakt við málið var að konan samþykkti að taka þátt í tálbeituaðgerð lögreglu, sem átti að verða til þess að höfuðpaurinn eða höfuðpaurarnir yrðu handsamaðir, en tálbeituaðgerðin fór út um þúfur . Það þótti grunsamlegt og leiddi til rannsóknar á yfirmanni aðgerðarinnar, en hann var að lokum hreinsaður af sök . Tóku við kókaíninu í iðnaðarhverfi í Kópavogi Samkvæmt heimildum fréttastofu fóru Lárus og Lúther saman í iðnaðarhverfi í Kópavogi til að taka við hluta kókaínsins af mönnum sem þangað komu á stórum, hvítum sendiferðabíl. Heimildir fréttastofu herma jafnframt að lögregla telji að það hafi verið Atli sem sendi þá þangað og var milliliðurinn á milli þeirra tveggja og þeirra sem afhentu efnin. Þeir hafi átt samskipti sín á milli með samskiptaforritinu Signal. Níumenningarnir voru allir úrskurðaðir í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald um miðja síðustu viku. Fyrir lögreglu liggur meðal annars að rannsaka samskipti sakborninganna, upplýsingar úr símum sem lagt var hald á, bankagögn og fleira. Lögregla hefur sagt að fleiri verði hugsanlega handteknir vegna málsins, en enn sem komið er hefur ekkert frést af frekari aðgerðum.