Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilyrði gefin en ekkert að gerast

Read Full Article →

Guðmundur Fylkisson lögreglumaður hefur um árabil einbeitt sér að því að finna týnd börn og koma þeim í skjól og vakið athygli á málefnum barna með fjölþættan vanda. Í fyrra þurfti að leita fleiri barna en nokkru sinni og mikil og hávær umræða var um skort á úrræðum fyrir þennan hóp. Guðmundur var valinn manneskja ársins 2025 að mati hlustenda Rásar 2 , fréttastofu Sýnar og lesenda Smartlands. Hann segist hafa verið boðaður á fundi hjá stjórnvöldum af því tilefni. „Það voru gefin vilyrði á gamlársdag en ég er ekki farinn að sjá neitt gerast. Hópurinn minn er sá sami. Hann er enn að strjúka úr þessum úrræðum sem eru í boði, sem eru enn þá opin. Börnin sem eru með fjölþættan vanda á erfiðasta staðnum, sem ríkið ætlaði að taka við, ég er ekki farinn að sjá að það sé neitt að gerast þar,“ sagði Guðmundur í þættinum Fram undan á Rás 2. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, sem sérhæfir sig í leit að týndum börnum, segir að stjórnvöld hafi um áramót gefið vilyrði til umbóta fyrir hópinn sem hann aðstoðar. Ekkert hefur gerst og hann veltir fyrir sér hvað þurfi til. Hann segir að börnin séu ekki færri en á síðasta ári. „Þetta er 340-350 leitarbeiðnir á þessu ári og ég verð ekki var við að hlutirnir séu að lagast.“ Hann veltir fyrir sér hvað þurfi til að stjórnvöld bregðist við af fullum krafti. „Bruninn á Stuðlum er 2024. Þar dó drengur. Það er komin skýrsla sem segir að ef allt hefði verið í lagi hefði Geir heitinn ekki dáið. Ári seinna kemur frétt um að sami staður sé keyrður áfram leyfislaus. Hlutirnir eiga að vera í lagi í kringum þessa krakka.“

Share this article