Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News Viðskiptablaðið

Vilja flytja olíu fram hjá Hormússundi

  • What: Chevron explores new oil routes to bypass the Persian Gulf
  • Impact: No direct impact on regular users
Read Full Article →

Bandaríski olíurisinn Chevron hyggst undirrita bráðabirgðasamninga í dag um fjárfestingu í tveimur olíusvæðum í Írak og taka þátt í hópi fjárfesta sem kanna möguleika á lagningu leiðslu frá írösku olíusvæðunum að strönd Sýrlands. Írak og önnur olíuríki í Mið-Austurlöndum leita nú leiða til að draga úr háði sínu á Hormússundi, sem Íranir hafa reynt að loka og ná stjórn á. Um 20% af olíu heimsins fóru um sundið áður en stríðið við Íran hófst. Ríki við Persaflóa verja nú milljörðum dala í nýjar olíuleiðslur, járnbrautartengingar og geymslusvæði til að komast hjá sundinu. Fyrr í vikunni var til að mynda greint frá áformum um byggingu nýrrar hafnar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum til að komast hjá flutningum um Hormússund. Sjá einnig Byggja nýja höfn til að komast hjá Hormússundi Samningarnir við Chevron eru hluti af víðtækari tilraun nýs forsætisráðherra Íraks, Ali Al-Zaidi, til að laða að bandarískar fjárfestingar. Bandaríska viðskiptaráðið heldur viðskiptafund Bandaríkjanna og Íraks í Washington í dag, þar sem Zaidi, Chris Wright orkumálaráðherra og fleiri verða viðstaddir. Þar eiga að verða undirritaðir samningar að andvirði 60 milljarða dala. Einn kosturinn sem fjárfestahópur Chevron skoðar er að endurbyggja leiðsluna frá Kirkuk í norðurhluta Íraks til hafnarinnar Baniyas við Miðjarðarhaf í Sýrlandi, að sögn háttsetts starfsmanns Chevron. Leiðslan hefur verið lokuð í meira en tvo áratugi en hún skemmdist í innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003. Chevron ræðir einnig fjárfestingu í olíusvæðunum West Qurna 2 og Nasiriyah í suðurhluta Íraks. West Qurna 2 er eitt stærsta olíusvæði heims á landi og framleiðir um 460.000 tunnur á dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti Zaidi í Hvíta húsinu á þriðjudag og sagði að Bandaríkin og Írak myndu gera „marga samninga“, skapa störf í báðum löndum og auka olíuvinnslu með þátttöku bandarískra fyrirtækja. Írak er næststærsti olíuframleiðandi Mið-Austurlanda á eftir Sádi-Arabíu. Við eðlilegar aðstæður framleiðir landið um 4,5 milljónir tunna á dag, eða 5% af olíu heimsins, en útflutningur hefur dregist verulega saman í stríðinu. Stóru olíusvæðin í suðri reiða sig nær alfarið á útflutning um Hormuzsund og valkostir, þar á meðal leiðslur til tyrknesku hafnarinnar Ceyhan, eru takmarkaðir.

Share this article