Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrjú þyrluútköll það sem af er degi: Tveir fluttir á spítala eftir fjórhjólaslys

Read Full Article →

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo á Landspítalann rétt í þessu eftir fjórhjólaslys norðan Hólmavíkur. Landhelgisgæslan hefur brugðist við þremur þyrluútköllum það sem af er degi, þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Fyrr í dag var þyrlan kölluð í Stykkishólm vegna aflvana fiskbáts. Töluverður viðbúnaður var vegna skipsins en enginn slasaðist. Sex voru um borð í bátnum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi og ásamt þyrlusveit voru sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi kölluð á vettvang. Þá voru bátar í grenndinni beðnir um að fara á vettvang til aðstoðar. Þrír slasaðir fluttir með þyrlu Í fyrstu var talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Í tilkynningu segir að aðstæður hafi verið góðar og akkeri fiskibátsins haldið honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi. Þyrlan var svo kölluð út frá Stykkishólmi vegna fjórhjólaslyssins norðan Hólmavíkur og tók á loft á þriðja tímanum. Þyrlan lenti á Landspítalanum í Fossvogi laust fyrir klukkan fjögur. Fyrr í dag varð slys um borð í rútu á Landmannaleið. Þyrlusveitin flutti einn slasaðan til Reykjavíkur.

Share this article