Innlent | mbl | 17.7.2026 | 23:00 Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Guðjón segir meiri jákvæðni vanta í umræðu um skólamál. Samsett mynd/Eyþór/Aðsend Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Búa yfirleitt ekki yfir áætlaðri þekkingu Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Taka þarf meira tillit til list- og verknáms Viðvarandi vandamál í áratugi Brottfallið litið alvarlegum augum » Fleiri tengdar fréttir Umræðan um íslenskt skólakerfi er alveg vonlaus og komin í öngstræti að mati Guðjóns Ragnars Jónassonar, skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Finna má meira en hundrað ára dæmi um neikvæða umræðu um íslenskt menntakerfi. „Menntakerfið okkar er gott og ég fer ekkert ofan af því. Ég kenni í skóla sem tekur á móti öllum nemendum og það er alveg ofsalega gaman að sjá þann virðisauka sem verður með náminu,“ segir Guðjón í samtali við mbl.is. Í vikunni sýndu niðurstöður könnunar mennta- og barnamálaráðuneytinu að enginn íslenskur framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema í stærðsfræði mjög góða. Frétt af mbl.is Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Verðum að vera eins og Bangsímon Guðjón segir miklar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi á undanförnum árum sem enn sé verið að vinna úr. „Við verðum að taka okkur á í umræðunni og megum ekki vera svona neikvæð. Við verðum að vera eins og Bangsímon sem horfði í spegilinn á hverjum degi og sagði: „Í dag verður góður dagur.“ Við verðum svolítið að vera meira þarna.“ Hann segir að fólk þurfi að horfa meira á það jákvæða, Íslendingar séu oft of tuðgjarnir. „Þessir nemendur okkar eru allt öðruvísi en við vorum, þetta fólk er miklu betra í að tjá sig og segja skoðanir sínar. Mér finnst nemendum líka líða betur almennt og þau kunna þá list, öðrum fremur en ég og mín kynslóð kunnum, að njóta lífsins,“ segir Guðjón. Guðjón Ragnar segist vilja vera riddari kærleikans í umfjöllun um menntamál á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend Frétt af mbl.is Búa yfirleitt ekki yfir áætlaðri þekkingu Menntun er lífslangur ferill Hann segir það afar ánægjulegt að sjá hve auðveldlega fólk getur hafið framhaldsnám að nýju hér á landi eftir að hafa hætt eða fallið úr námi. „Við tökum vel á móti fólki sem vill bæta við sig menntun og menntun er náttúrulega lífslangur ferill. Menntunin á að vera hluti af vilja vanans og við eigum öll að vera í símenntun og bæta við okkur og gera. Við þurfum bara jákvæðni.“ Frétt af mbl.is Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér 112 ára gömul dæmi Neikvæð umræða um íslenskt skólakerfi er þó alls ekki ný af nálinni. Ingvar Sigurgeirsson, prófessor emeritus við Kennaradeild Háskóla Íslands, hefur tekið saman íslenskar fjölmiðlagreinar um skólakerfið frá fyrri árum og það má með sanni segja að þær séu keimlíkar umfjöllun dagsins í dag. „Hefir áður verið vikið að því hér í blaðinu að síðan fræðslulögin gengu í gildi hafi unglingafræðslu í mörgum sveitum farið hrakandi þrátt fyrir hinn mikla kostnað sem þau hafa bakað þjóðinni,“ segir í Lögréttu frá árinu 1914. „Við byrjun þessa skólaárs var sú tilhögun hafin að allir nýsveinar voru látnir ganga undir inntökupróf. Hafði reynsla undanfarinna ára sýnt að margir nemendur komu svo illa undirbúnir í skólann að þeir nutu ekki kennslunnar og fylgdust ekki með,“ segir í Tímariti iðnaðarmanna frá árinu 1927. Í tímaritinu Degi frá árinu 1928 segir: „Kvartað hefur verið yfir því hvað bókleg kennsla reyndist erfið við bændaskólana er nemendur kæmu illa undirbúnir til námsins, eins og við hefur viljað brenna og eru þær kvartanir skiljanlegar.“ Í tímaritum frá árinu 1979 má finna fyrirsagnir á borð við: „Hiklaust hægt að segja að nemendur komi verr undirbúnir“ og „Meðalmennskan er að verða regla dagsins“. Fjölmörg dæmi eru um svipaðar greinar í gegnum Íslandssöguna. Ingvar Sigurgeirsson. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Búa yfirleitt ekki yfir áætlaðri þekkingu Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Taka þarf meira tillit til list- og verknáms Viðvarandi vandamál í áratugi Brottfallið litið alvarlegum augum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Vill ekki sjá þá aftur í ensku treyjunni Fékk tveggja högga víti eftir hringinn Sögulegt hús í nýjum búning Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Mikill verðmunur milli sundlauga Ekki í mínum villtustu draumum Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Vill ekki sjá þá aftur í ensku treyjunni Fékk tveggja högga víti eftir hringinn Sögulegt hús í nýjum búning Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Viðvarandi vandamál í áratugi Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir