Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Íranar hóta stórfelldum árásum á ný ef Bandaríkjamenn láta ekki af árásum sínum

The article describes an escalating kinetic conflict between Iran and the US, involving retaliatory military strikes on critical infrastructure, including energy and military targets. It does not describe a software vulnerability, so no CVSS score, affected versions, fixed version, or technical workaround are applicable. Iranian authorities have threatened further large-scale attacks if US strikes continue, highlighting a heightened risk to physical assets and regional stability.
Read Full Article →

Íranski herinn gerði árásir á bandaríska sjóherstöð í Barein í nótt. Ekki liggur fyrir hvort mannfall eða tjón hafi orðið í árásunum. Íranski herinn gerði einnig árásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit og á eldsneytistanka á Al Azraq-herstöðina í Jórdaníu. Jórdanski herinn skaut niður tíu írönsk flugskeyti. Bandaríski herinn greindi frá árásum í Íran í færslu á X. Samkvæmt færslunni voru árásirnar á eftirlitskerfi, hernaðarlega innviði og neðanjarðarvopnabirgðageymslur í Íran. Sprengingar heyrðust í Yazd í mið Íran og í suður Íran. Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA segir að þrír hafi verið drepnir og átta séu særðir eftir árásir bandaríska hersins í Hormozgan-héraði í suður Íran. Íranski byltingarvörðurinn sagði í tilkynningu í gærkvöld á íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA að tvö olíutankskip hefðu sprungið þegar skipin sigldu á tundurdufl í Hormússundi. Miðstjórn bandaríska hersins sendi frá sér tilkynningu í nótt þar sem segir að þessi fullyrðing sé ósönn . Hóta stórfelldum árásum á ný Stjórnvöld í Teheran hafa hótað því að hefja stórfelldar árásir á ný ef árásir Bandaríkjanna halda áfram. Íbúar landsins hafa verið hvattir til að draga úr rafmagnsnotkun, þar með talið notkun loftkælingar, því raforkukerfi landsins er undir miklu álagi vegna árása Bandaríkjahers á orkuinnviði undanfarna daga. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, fordæmdi í gær árásir á borgaralega innviði í Íran og víðar í heimshlutanum og segir árásirnar óásættanlegar.

Share this article