Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt

  • What: Commentary on EU's relationship with Israel
  • Impact: Discussing human rights and international relations
Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 18.7.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt Sólveig Anna Jónsdóttir. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Pistill Sólveigar Önnu Jónsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Áhugaleysi já-sinna á yfirgengilegri hollustu Evrópusambandsins við Ísrael, þrátt fyrir að ríkið fremji glæpi gegn mannkyni og framkvæmi þjóðernishreinsanir á almenningi á Gaza, ásamt landráni á Vesturbakkanum, hlýtur að vekja athygli. Þegar bent er á að mikilvægasti viðskiptaaðili Ísrael sé ESB eru viðbrögðin iðulega að segja Ísland einnig eiga í umtalsverðum utanríkisviðskiptum við landið og því sé málið engrar athygli vert. Við sem styðjum baráttu fólksins í Palestínu fyrir frelsi frá kúgun og ofbeldi eigum ekki að láta þetta slá okkur út af laginu; okkur ber skylda til að benda á umfang vandamálsins. Mannréttindasamtök á borð við Amnesty International og HRW hafa fjallað um stöðuna af sívaxandi þunga; um leið og ESB talar fyrir mannréttindum og alþjóðalögum, og talsmenn sambandsins láta sem augljós forysta í málaflokkunum sé þar til staðar, er ekkert gert til að knýja á um að Ísrael láti af morðunum. Þjóðverjar eru á eftir Bandaríkjunum helstu vopnasalar Ísraelsríkis og þýsk vopn eru samkvæmt Amnesty notuð í morðum á almennum borgurum á Gaza. Efnahagslegir hagsmunir Þýskalands ráða för hjá ESB og fulltrúar landsins, ásamt öðrum, koma í veg fyrir að hægt sé að grípa til efnahagslegra þvingunaraðgerða á vettvangi sambandsins. Upp í hugann koma orð Jesú, færð til bókar í Matteusarguðspjalli, þar sem hann segir um fræðimennina og faríseana: „Allt sem þeir segja yður, það skuluð þér gjöra og halda; en eftir breytni þeirra skuluð þér ekki fara, því þeir breyta ekki sem þeir bjóða.“ Í málefnum Palestínu á lýsing Krists við ESB um að öllu leyti; sambandið boðar frelsi, jafnrétti og bræðralag í samskiptum fólks og ríkja en gerir ekkert til að útbúa friðsælli og betri veröld. Efnahagslegir hagsmunir vega þyngra en líf barna og kvenna í Palestínu; dyggðaflöggun er ástunduð á meðan vopnabúrin eru opnuð fyrir gerandanum. Margir já-sinnar halda því fram að aðild Íslands að ESB myndi styrkja siðferðilega stöðu okkar í heiminum. En þegar við skoðum utanríkismálastefnu sambandsins sjáum við að svo er ekki. Með því að standa utan sambandsins höfum við Íslendingar raunverulega möguleika á því að taka sjálfstæðar ákvarðanir um alþjóðaviðskipti og utanríkismál. Innan ESB yrðum við háð ríkjum eins og Þýskalandi sem tala fjálglega um mannréttindi en nota hiklaust völdin til að verja Ísrael frekar en konur og börn á Gaza. Við skulum ekki taka þátt í að leggja þungar byrðar á herðar fólksins í Palestínu með því að ganga til liðs við ESB – við eigum að setja markið hærra og breyta rétt. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sleppingar björguðu stórlaxi í Borgarfirði Vill skoða endurgerð gatnamóta Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt Út ólíkum áttum: Breiðu þökin Aðsend grein: Hlutfallslegur stöðugleiki tryggir ekki yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Ljótt að feta í sama farveg Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Áfram unnið að varanlegri lausn Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hafnar orðum Þorgerðar Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Sleppingar björguðu stórlaxi í Borgarfirði Vill skoða endurgerð gatnamóta Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt Út ólíkum áttum: Breiðu þökin Aðsend grein: Hlutfallslegur stöðugleiki tryggir ekki yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki í mínum villtustu draumum Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Ekki hægt að breyta skráningunni Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Áfram unnið að varanlegri lausn Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hafnar orðum Þorgerðar Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article