Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Út ólíkum áttum: Breiðu þökin

  • What: Analysis of public housing policies
  • Impact: Discussing government subsidies and housing affordability
Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 18.7.2026 | 8:00 Út ólíkum áttum: Breiðu þökin Árni Helgason Setja bókamerki Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu Á undanförnum árum og áratugum hafa inngrip hins opinbera í húsnæðismarkaðinn verið mikil. Birtingarmyndirnar eru ýmsar. Íbúðalánasjóður veitti árum saman húsnæðislán en sú vegferð endaði með háum reikningi á ríkissjóð. Árlega eru greiddir um tíu milljarðar í húsnæðisbætur og önnur eins fjárhæð hefur farið í hlutdeildarlán á síðustu sex árum. Ríki og sveitarfélög greiða auk þess milljarða árlega til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga. Samkvæmt samantekt Viðskiptaráðs nemur heildarkostnaður hins opinbera við þetta úrræði um 63 milljörðum síðan því var komið á árið 2016. Reykjavíkurborg rekur Félagsbústaði, sem eiga og leigja út um þrjú þúsund íbúðir, og starfsemin er m.a. fjármögnuð með því að borgin hefur skyldað verktaka sem byggja í borginni til þess að selja Félagsbústöðum 5% af nýjum íbúðum á undirverði (um 500 þús. kr. pr. fm). Félagsbústaðir færa þessar eignir aftur á móti á fullu verði inn í sínar bækur. Samkvæmt úttekt Samtaka iðnaðarins þarf verktaki sem byggir 100 fermetra íbúð í Reykjavík að greiða að meðaltali 13,2 milljónir í byggingar- og gatnagerðargjöld fyrir hverja íbúð áður en hann hefur framkvæmdir. Þrátt fyrir augljóst samhengi þarna á milli virðist það koma stjórnvöldum stöðugt á óvart að íbúðaverð á hinum almenna markaði hækki. Staða fyrirtækja á byggingarmarkaði er erfið, vextir eru háir og sala gengur hægt. Þeim bjóðast þó ekki opinber framlög eða stuðningur. Skilaboð ríkisstjórnarinnar til þessara fyrirtækja eru að þau geti bara lækkað verð á sínum íbúðum. Með öðrum orðum – ekki vera svona hagnaðardrifin. Stærsta óhagnaðardrifna félagið er Bjarg, en uppsafnað eigið fé þess í árslok 2025 er 34,7 milljarðar. Félagið á yfir þúsund íbúðir sem það leigir út á um 65-70% af markaðsleigu, sem rímar ágætlega við að opinber framlög til hverrar íbúðar nema um 30-35%. Til að fá íbúð þarf leigjandi að vera undir ákveðnum tekjumörkum við upphaf leigu og félagi í BSRB eða ASÍ. Biðlistinn eftir því að komast að hjá Bjargi og sambærilegum félögum telur nú um sjö þúsund umsækjendur, sem ríkisstjórnin telur til marks um að stórauka þurfi framboð slíkra íbúða. Vandinn er hins vegar sá að allt kostar þetta og til að fjármagna opinberu úrræðin verður gjaldtakan á almenna markaðinn sífellt þyngri, sem gerir íbúðirnar dýrari. Narratívið nærir sjálft sig. Á þessum sviðum eins og öðrum þarf hið opinbera að gæta sín á því að vera ekki upphaf og endir alls. Besta lausnin er skilvirkur markaður þar sem fyrirtæki geta útvegað þá vöru sem þörf er á hvort sem er til sölu eða leigu. Til þess þarf að gefa svigrúm, tryggja að lóðir standi til boða og stilla gjaldtöku og kvöðum í hóf. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sleppingar björguðu stórlaxi í Borgarfirði Vill skoða endurgerð gatnamóta Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt Út ólíkum áttum: Breiðu þökin Aðsend grein: Hlutfallslegur stöðugleiki tryggir ekki yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljótt að feta í sama farveg Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Stúlkan er fundin heil á húfi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Hafnar orðum Þorgerðar Áfram unnið að varanlegri lausn Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Sleppingar björguðu stórlaxi í Borgarfirði Vill skoða endurgerð gatnamóta Úr ólíkum áttum: Að breyta rétt Út ólíkum áttum: Breiðu þökin Aðsend grein: Hlutfallslegur stöðugleiki tryggir ekki yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan verri áður en skýrslan var unnin Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Hafnar orðum Þorgerðar Mest lesið Í gær Í vikunni Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Hafnar orðum Þorgerðar Áfram unnið að varanlegri lausn Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article