Innlent | Morgunblaðið | 18.7.2026 | 11:50 Úrkomumet fallið í höfuðborginni Júlí Ferðamenn og heimamenn á höfuðborgarsvæðinu hafa notast við regnhlífar og -föt nær daglega í júlí. Morgunblaðið/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Hiti áfram yfir 20 stig Léttir til vestanlands eftir hádegi Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Varað við hvössum vindhviðum á morgun Hitamet sumarsins fallið » Fleiri tengdar fréttir Úrkoma í Reykjavík hefur verið óvenjumikil fyrstu 15 daga júlímánaðar, 65,5 millimetrar. Er þetta meira en tvöföld meðalúrkoma sömu daga 1991 til 2020. Þetta er úrkomusamasti fyrri hluti júlí frá upphafi mælinga í Reykjavík, að því er fram kemur í bloggi Trausta Jónssonar veðurfræðings. Litlu munar þó á úrkomu á sama tíma 1971, 1997 og 1998, segir Trausti. Frétt af mbl.is Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Úrkoma fyrst mæld 1885 Úrkoma var fyrst mæld í Reykjavík 1885 en mælingar féllu niður í nokkur ár. Á Akureyri hefur verið nærri úrkomulaust. Aðeins 1,3 millimetrar (mm) hafa mælst, sem er þó ekki met. Á Dalatanga hafa aðeins mælst 0,3 mm, en árið 1975 mældist engin úrkoma þar í fyrri hluta júlímánaðar. Í Stykkishólmi hefur úrkoma heldur aldrei mælst meiri í fyrri hluta júlí en nú, 66,6 mm, en litlu munar þó á stöðunni nú og í júlí 1977. Frétt af mbl.is Gæti sést til sólar vestanlands á morgun 27 færri sólskinsstundir en í meðalári Sólskinsstundir mældust 58,4 í Reykjavík fyrri hluta júlí og er það 27 stundum minna en í meðalári. Sólskinsstundir hafa oft verið færri í Reykjavík í fyrri hluta júlí, t.d. 2021 þegar þær voru aðeins 18 allan fyrri hluta mánaðarins. Á Akureyri hafa nú mælst 83,3 sólskinsstundir, um 8 fleiri en í meðalári – og hafa oft mælst fleiri sömu daga, segir Trausti. Þá kemur fram á bloggi Trausta að veðurlag í fyrri hluta júlí hefur verið mjög skipt eftir landshlutum. Austanlands hefur verið sérlega hlýtt, en svalt og úrkomusamt um landið suðvestanvert. Á Austfjörðum hefur enginn fyrri hluti júlí á öldinni verið hlýrri en nú. Veðurvefur mbl.is Tengdar fréttir Veður Hiti áfram yfir 20 stig Léttir til vestanlands eftir hádegi Gæti sést til sólar vestanlands á morgun Varað við hvössum vindhviðum á morgun Hitamet sumarsins fallið » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Úrkomumet fallið í höfuðborginni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga "There's simply no better place to be than the Westman Islands" Messi orðlaus: Þessi mynd er ótrúleg Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Viðartittlingur kallar á nefndarálit Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Hafnar orðum Þorgerðar Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búningi Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Netverslun með áfengi í boði ráðherra Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hiti áfram yfir 20 stig Áfram unnið að varanlegri lausn Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Úrkomumet fallið í höfuðborginni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga "There's simply no better place to be than the Westman Islands" Messi orðlaus: Þessi mynd er ótrúleg Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki hægt að breyta skráningunni Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Viðartittlingur kallar á nefndarálit Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búningi Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Netverslun með áfengi í boði ráðherra Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hiti áfram yfir 20 stig Áfram unnið að varanlegri lausn Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“