Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Þyrla aðstoðaði við leit að ferðamanni Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út skömmu fyrir hádegi vegna erlends ferðamanns sem ekki hafði skilað sér úr göngu ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi síðan í nótt. Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var stödd á Höfn þegar útkallið barst, aðstoðaði við leitina. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir manninn hafa komið í leitirnar heill á húfi snemma á þriðja tímanum. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vonbrigði að ekki sé tekið tillit til sjóflutninganna í undanþágunum Forstjóri Eimskips segir vonbrigði að undanþága hafa verið veitt fyrir sjóflutningum til og frá landinu eins og tilkynnt var með flugsamgöngur í gær. Það komi niður á neytendum. Greiðslur Eimskips fyrir losunarheimildir skipta milljörðum króna á ári. Fyrir 54 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Strandabyggð Dagrún Fanný ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Alexander Kristjánsson Dagrún Fanný Liljarsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Heislugæslu höfuðborgarsvæðisins, en áður starfaði hún hjá Barnavernd Reykjavíkur. Í tilkynningu frá Strandabyggð segir að Dagrún hafi lokið meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2016 og BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur jafnframt lokið námi í mannauðsstjórnun og bókhaldi, auk þess að vera menntuð sjúkraliði. Fimmtán umsóknir bárust um starf sveitarstjóra. Ríflega 400 manns búa í Strandabyggð, en fjölmennasti þéttbýlisstaður er Hólmavík. Samsett Fyrir 55 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Eldur í Saurvogi í Færeyjum Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Saurvogi í Færeyjum í dag. Fjölmennt lið lögreglu, sjúkraliða og slökkviliðs er á vettvangi. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mestu eldar í Noregi í seinni tíð Eldarnir í Drammen eru þeir mestu í Noregi í seinni tíð, samkvæmt almannavörnum landsins. Slökkvistarf stóð í alla nótt. Enn logar í skógi við hverfið þar sem eldarnir brutust út í gær. Mikil mildi þykir að engin alvarleg slys hafi orðið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Bókmenntir Gerviumboðsmenn herja á rithöfunda með gylliboðum Gervigreindarumboðsmenn herja á íslenska rithöfunda og vilja kynna bækur þeirra gegn gjaldi. Mörgum íslenskum bókum virðist hafa verið hlaðið inn í gervigreindarforrit í leyfisleysi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Slasaðist alvarlega við heyskap Maður slasaðist alvarlega í vinnuslysi við heyskap í grennd við Kirkjubæjarklaustur í gær. Hann er ekki talinn í lífshættu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Árásarmaðurinn í Álaborg játaði verknaðinn Karlmaður á fimmtugsaldri hefur játað að hafa skotið 62 ára mann til bana í skotárás norðan við Álaborg í Danmörku í gær. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að myrða lögreglumann. Árásarmaðurinn særðist sjálfur alvarlega í árásinni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Laos Geta ekki skorið úr um dánarorsök þrátt fyrir mikið magn metanóls í vodka Yfirvöld í Laos segjast ekki geta skorið úr um orsök dauðsfalla sex ferðamanna í landinu fyrir tveimur árum. Talið er að þeir hafi látist úr metanóleitrun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Meiri úrkoma ekki mælst í Reykjavík fyrri hluta júlí Fyrri hluti júlímánaðar var sá úrkomusamasti í Reykjavík frá upphafi mælinga, en nær úrkomulaus á Akureyri. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Hollendingar segjast engum undanþágum hafa lofað Hollensk stjórnvöld segjast engin fyrirheit hafa gefið um að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB. Þau segja það ekki í sínum verkahring að gefa slík fyrirheit. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Leikurinn sem enginn vill spila Frakkland og England mætast í leiknum um þriðja sætið á heimsmeistaramóti karla í dag. Bronsverðlaun eru í boði en þetta er leikur sem enginn vill í raun spila, enda ekki hægt að komast svona langt án þess að vera hársbreidd frá úrslitaleiknum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta „Þetta er risastórt mál sem þarf að hugsa hratt“ Eigandi Friðheima segir grænu orkuna á Íslandi eftirsótta og telur mikilvægt að stjórnvöld grípi í taumana svo íslensk fyrirtæki verði ekki undir í baráttunni um rafmagnið við erlend gagnaver. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hlaut minniháttar áverka eftir árekstur bíls og mótorhjóls Brynja Dögg Friðriksdóttir Merki RÚV / Birgir Þór Harðarsson Umferðarslys varð í gærkvöld eða nótt þegar bíll og mótorhjól rákust saman. Annar ökumaðurinn hlaut minniháttar áverka, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er tilgreint hvenær eða hvar slysið átti sér stað en það var í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ. Lögregla hafði afskipti af nokkrum vegna ölvunar og ósæmilegrar hegðunar í miðborginni. Málin voru ýmist afgreidd á vettvangi eða viðkomandi gistu fangageymslur lögreglunnar. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna slyss á rafrafhlaupahjóli. Einn hlaut minni háttar áverka eftir slysið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæð dælir til okkar mjög röku og hlýju lofti Búist er við áframhaldandi vestlægum áttum með rigningu vestan til næstu daga en björtu veðri fyrir austan næstu daga. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hóta stórfelldum árásum á ný ef Bandaríkjamenn láta ekki af árásum sínum Árásir héldu áfram á milli herja Írans og Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum í nótt. Íranar segja að þrír hafi verið drepnir og að átta séu særðir eftir árásir bandaríska hersins í suður Íran. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð „Þetta skiptir okkur miklu máli, sem og Frakkana“ Fáskrúðsfirðingar halda upp á 30 ára afmæli bæjarhátíðarinnar franskra daga í blíðviðri um helgina. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Fá lán til uppbyggingar vegna jarðskjálftanna Stjórnvöld í Venesúela fá lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til uppbyggingar í landinu eftir jarðskjálftana. Mikið uppbyggingarstarf er fram undan í landinu en yfir 20.000 manns eru heimilislausir eftir jarðskjálftana. 18. júlí 2026 kl. 4:26ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Drónaárásir á Moskvu og fleiri borgir í Rússlandi Úkraínski herinn gerði miklar drónaárásir á Moskvu og fleiri borgir í Rússlandi í gærkvöld og nótt. Borgarstjóri Moskvu segir að 370 drónum hafi verið stefnt á borgina en flestir hafi verið stöðvaðir. 18. júlí 2026 kl. 3:11ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Hótar því að setja tolla á Kanada vegna loftmengunar af völdum skógarelda Bandaríkjaforseti segir loftmengun af völdum skógarelda í Kanada kosta Bandaríkin milljarða dollara. Hann segir Kanada ekki vera að viðhalda skóglendi sínu nægilega vel og vill að kostnaðinum af völdum mengunarinnar verði bætt við tolla á Kanada. 18. júlí 2026 kl. 1:24INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna vinnuslyss við Kirkjubæjarklaustur Brynja Dögg Friðriksdóttir Þyrla Landhelgisgæslunnar. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út seint í gærkvöld vegna vinnuslyss við Kirkjubæjarklaustur. Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi segir í samtali við fréttastofu að einn hafi verið fluttur með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við spítalann um klukkan hálf eitt í nótt. Ekki er vitað um líðan einstaklingsins sem slasaðist. Fréttin var uppfærð eftir að staðfest fékkst að slysið hafi verið vinnuslys, og fyrirsögn í samræmi við það. 18. júlí 2026 kl. 0:38ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Átök um Hormússund og sannleikann Íranski byltingarvörðurinn segir að tvö olíutankskip hafi sprungið þegar þau sigldu á tundurdufl í Hormússundi en bandaríski herinn segir það ekki rétt. Bandaríkjaher og Íranski byltingarvörðurinn héldu árásum sínum áfram í kvöld. 17. júlí 2026 kl. 22:27ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Enn ekki náðst að slökkva eldinn í Drammen Sigrún Björk Hjartardóttir Slökkvilið hefur enn ekki náð tökum á stórbrunanum í Drammen í Noregi. Eldurinn kviknaði í raðhúsahverfi síðdegis og hefur breiðst út í fleiri hús og nærliggjandi gróður. Yfir hundrað íbúðir eru gjöreyðilagðar og mörg hundruð manns hafa verið flutt frá heimilum sínum. Samkvæmt norska ríkisútvarpinu voru einn íbúi og einn slökkviliðsmaður fluttir á bráðamóttöku með væga reykeitrun en ekki er vitað um aðra slasaða og engra er saknað. Átta lögreglumenn urðu fyrir reykeitrun við rýmingu svæðisins. Enn er hætta á að eldurinn breiðist frekar út og hann blossar reglulega upp á nýjum stöðum. Slökkvistarf mun halda áfram í nótt og fram á morgundaginn. Yfir hundrað íbúðir brunnu til kaldra kola. EPA / Thomas Fure 17. júlí 2026 kl. 21:53INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Rangt að það sé fyrirfram útilokað að semja um undanþágur Það er rangt að ekki sé um neitt að semja í aðildarviðræðum við ESB. Þetta segir prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti og EES-samningnum. Það gildi líka um einstaka málaflokka á borð við sjávarútvegsstefnu sambandsins. 17. júlí 2026 kl. 21:18INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Afhentu heimahjúkrun HSU á Selfossi 6.732.729 krónur að gjöf Þeir Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, leikmaður Árborgar í knattspyrnu færðu heimahjúkrun HSU á Selfossi í morgun ágóðann sem safnaðist í styrktarleiknum í síðustu viku, alls 6.732.729. krónur. 17. júlí 2026 kl. 20:41INNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Stærsta hættan ekki gervigreindin sjálf heldur sofandi stjórnvöld Gervigreindin er samfélagsmiðlabyltingin á þúsundföldum sterum og stærsta umbreytingin sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag. Þetta segir forseti Íslands. Stjórnvöld verði að vakna. 17. júlí 2026 kl. 19:57INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg „Þetta