Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Milljarðar undir fyrir íslensk fyrirtæki

Read Full Article →

Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, segir samtökin vita til þess að fyrirtæki hér á landi meti nú stöðuna eftir niðurstöður Hæstaréttar Bandaríkjanna, um lögmæti hinna svokölluðu IEEPA-tolla sem sett hafa verulegan svip á alþjóðaviðskipti á undanförnum misserum. Lilja Björk segir Samtök iðnaðarins hafa fylgst náið með þróun mála eftir að tollarnir voru settir á og unnið markvisst að því að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja. Samtökin hafi komið hagsmunum félagsmanna á framfæri og átt í góðri samvinnu við utanríkisráðuneytið vegna málsins. Tollarnir leggjast ekki á allar vörur sem fluttar eru til Bandaríkjanna, sem hefur hjálpað til að sögn Lilju. Hún bendir þó á að Bandaríkjamarkaður sé meðal annars mikilvægur fyrir tækni- og hugverkaiðnað, sem hefur verið í örum vexti og gæti orðið verðmætasta útflutningsstoð Íslands við lok þessa áratugar. Þá er Bandaríkjamarkaður til að mynda helsti markaðurinn fyrir lyf sem framleidd eru hér á landi. Hún segir íslensk fyrirtæki finna fyrir því að útflutningur til Bandaríkjanna sé orðinn flóknari, ekki eingöngu vegna aukins kostnaðar heldur vegna aukins flækjustigs við tollafgreiðslu sem krefst aukins mannafla og lengri afgreiðslutíma. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.

Share this article