Innlent | Sunnudagsblað | 19.7.2026 | 21:35 Ég var kölluð tjaldakonan Haukur og Vaida hafa lent í ýmsum ævintýrum. Þau gerðu upp gamalt fjölskylduhús þar sem langalangamma Hauks er fædd. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir [email protected] Setja bókamerki Í gömlu lágreistu timburhúsi í miðbæ Ísafjarðar búa hjónin Haukur Sigurðsson og Vaida Braži ū nait ė ásamt sonum sínum tveimur, Kára Vakaris og Bjarti Rytas, og kisunni Hosu. Haukur og Vaida eru bæði sjónrænir mannfræðingar og sannkallað ævintýrafólk, en þau hafa búið í jurtu í heilt ár, ferðast um heiminn með börnin og gert upp ævagamalt hús sem tilheyrt hefur fjölskyldu Hauks í yfir hundrað ár. Blaðamaður fékk að koma í heimsókn einn fagran sumardag og hlustaði yfir heitu jurtatei í notalegu eldhúsi á hjónin segja frá lífinu á Ísafirði og ævintýrum sem þau eru dugleg að leita uppi. Aftur heim á Vestfirði „Eftir menntaskóla fór ég suður og út í heim í nám en kom alltaf heim að vinna á sumrin. Ég endaði á að fara í mannfræði í Háskóla Íslands og þaðan til Tromsö í Noregi í meistaranám í sjónrænni mannfræði. Og þar hitti ég Vaidu,“ segir Haukur. „Við lentum í sama bekk og nokkrum vikum síðar féllum við fyrir hvort öðru,“ segir Vaida og brosir. „Já, við vorum byrjuð saman stuttu síðar,“ segir Haukur. „Við kláruðum svo námið og ákváðum að flytja heim á Ísafjörð og prófa það í eitt ár og flytja svo aftur til Noregs. Vaida hafði komið með mér heim eitt sumarið og unnið á hóteli,“ segir hann. „Mér leist vel á Ísafjörð, enda var hér sumar og fallegt veður,“ segir hún. „Það var snjallt að fá hana fyrst hingað um sumar og selja henni Ísland þannig,“ segir Haukur kíminn. „Ég var heilluð af Ísafirði, sem var eins og míníútgáfa af Tromsö. Hér var bæði notalegt og öruggt og mikið í gangi; alls kyns hátíðir og gaman,“ segir hún. Heilt ár í tjaldi í Dýrafirði Blaðamaður hafði frétt að hjónin hefðu búið í eins konar tjaldi í lengri tíma og var forvitinn að heyra meira. „Já, þetta var fyrsta árið okkar saman hér á Íslandi. Það var sumarið 2013 að við fluttum til Íslands og við gistum hér í þessu húsi, sem þá var ansi hrörlegt. Haukur var að leiðsegja ferðamönnum og ég að vinna á hótelinu. Þegar sumarið var á enda fengum við þá hugmynd að í staðinn fyrir að snúa aftur til Noregs og hefja alvöru líf færum við á vit ævintýranna og flyttum í tjald í Dýrafirði,“ segir Vaida og útskýrir að tjaldið hafi verið mongólsk jurta. „Þarna bjuggum við í heilt ár,“ segir hún. Hjónin bjuggu í jurtu í heilt ár, án rafmagns og rennandi vatns. mbl.is/Ásdís „Það var ekkert rafmagn en við vorum með kamínu og gátum lagað okkur kaffi, en við tjaldið var á þar sem við gátum sótt vatn. Rétt hjá var gömul hlaða og þar var nóg timbur til að brenna. Svo vorum við bara með húsbílaklósett. Við áttum bíl og vorum ekki allan tímann allt árið,“ útskýrir Haukur. „Ég var dálítið mikið í burtu að leiðsegja og Vaida vann á leikskóla á Þingeyri,“ segir hann. „Ég var kölluð tjaldakonan,“ segir Vaida og hlær. „Þarna var engin sturta, þannig við fórum daglega í sund. Við fengum marga gesti því allir voru svo forvitnir að koma, þannig það var mikið líf í kringum okkur. Yfir veturinn var gott að vera þarna en þegar voraði varð blautara og það komu inn mýs,“ segir hún. „Kuldinn var fínn en rakinn var svolítið leiðinlegur,“ segir Haukur og útskýrir að tjaldið hafi upphaflega verið hluti af leikmynd úr kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty sem tekin var upp að hluta til hér á landi. „Frændi minn hafði sett upp eitt svona tjald sem ég skoðaði og hugsaði með mér að það gæti verið gaman að prófa að búa í svona.“ Langalangamma fædd í húsinu Vaida er fædd og uppalin í Utena í Litháen, sem þá var í gömlu Sovétríkjunum. Þar býr enn fjölskyldan sem þau heimsækja árlega og Vaida, sem talar afar góða íslensku, talar litháísku við synina. Vaida er með háskólagráðu í íslensku sem öðru máli og lagði því töluvert á sig til að ná tökum á málinu. „Hér fæddust strákarnir okkar og hér er lífið sem við sköpuðum saman,“ segir Vaida, en hjónin hafa gert upp gamalt hús sem við nú sitjum í. Fjölskyldan, Hakur, Bjartur, Kári og Vaida, ferðuðust um Suður Ameríku í þrjá mánuði í vetur. mbl.is/Ásdís „Húsið hefur verið í fjölskyldu minni frá upphafi, en það voru langalangalangaamma og langalangalangafi sem byggðu húsið. Ég átti langalangömmu þar til ég varð þrítugur, en hún var fædd hérna 1908 og bjó hér til 2008, í hundrað ár í þessu húsi. Ég er alinn upp við það allt mitt líf að koma í þetta hús. Þegar ég var í menntaskóla kom ég alltaf til langalang ömmu í hádegismat,“ segir hann. Húsið er fallegt en tók blóð, svita og tár að gera upp. mbl.is/Ásdís „Þegar ég var nýbúin að kynnast Hauki sagði hann eitt sinn að hann væri að hringja í langalangömmu sína og ég hélt hann meinti langamma, bara einu sinni, eða bara amma. Ég hef aldrei hitt neina langömmu, hvað þá langalangömmu!“ segir Vaida og hlær. Ítarlegt viðtal er við Hauk og Vaidu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 150 flúðu heimili sín undan gróðureldi Spánn - Argentína, staðan er 1:0 Will Smith dreginn inn í dómsmál eiginkonunnar Ég var kölluð tjaldakonan McCartney of stjórnsamur Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Viðartittlingur kallar á nefndarálit Hafnar orðum Þorgerðar Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Besti árangur Íslands í 20 ár Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Nýjast á mbl.is » 150 flúðu heimili sín undan gróðureldi Spánn - Argentína, staðan er 1:0 Will Smith dreginn inn í dómsmál eiginkonunnar Ég var kölluð tjaldakonan McCartney of stjórnsamur Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljótt að feta í sama farveg Jetten neitar tali um undanþágur Hafnar orðum Þorgerðar „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Besti árangur Íslands í 20 ár Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“