Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maðurinn sem féll í Ölfusá er fundinn Sigrún Björk Hjartardóttir Lögreglu barst um klukkan sjö í kvöld tilkynning um að einstaklingur hefði fallið í Ölfusá. Maðurinn er fundinn og hefur verið fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi. Þetta staðfestir aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi við fréttastofu. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð með nýrri fyrirsögn eftir að maðurinn fannst. RÚV / Arnar Halldórsson Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Ítölsk blaðamannasamtök slegin yfir „hrottalegu morði“ Saksóknarar á Ítalíu rannsaka morð á íþróttafréttamanni á Suður-Ítalíu. Nokkra daga tók að bera kennsl á líkið. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf Axel og Guðrún unnu Hvaleyrarbikarinn Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á einu af sterkustu golfmótum ársins, Hvaleyrarbikarnum, sem lauk í dag. Úrslit í karlaflokki réðust í bráðabana. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Vonin úti fyrir stjórnarandstæðinginn Nadezdin Þingkosningar verða í Rússlandi í september og stjórnarandstæðingar sem hyggja á framboð fá að finna fyrir járnkrumlu Kremlar. Einn þeirra hlaut á dögunum dóm fyrir að sýna mynd af Alexei Navalny og fær ekki að bjóða sig fram. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin List í lýsistönkum á Raufarhöfn Gömlu lýsistankarnir á Raufarhöfn hafa öðlast nýtt líf. Framkvæmdir ganga hægt en örugglega og brátt verða tvö fullbúin rými til listsýninga. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stórsigur KR og sviptingar á botninum Tveir leikir voru í Bestu deild karla í fótbolta í dag og tveir í Bestu deild kvenna. Hjá körlunum vann KR 5-0 sigur á Stjörnunni og hjá konunum lyftu tvö lið sér upp úr fallsæti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Vonar að eldurinn í Drammen veki Íslendinga til vitundar Brunaverkfræðingur segir marga samverkandi þætti hafi valdið því hve mikið brann í Drammen í Noregi um helgina. Hann vonar að eldurinn veki Íslendinga og aðra til vitundar um brunavarnir í skógi vöxnu landi. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Golf Fugl á átjándu holu tryggði fyrsta risamótstitilinn Nýsjálendingurinn Ryan Fox vann í dag Opna meistaramótið í golfi á Royal Birkdale vellinum á Englandi. Fox byrjaði ekki frábærlega í dag en fjórir fuglar á síðustu sex holunum, þar af á lokaholunni, færðu honum hans fyrsta titil á risamóti. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Krúttað yfir sig í Breiðholti Nýjustu íbúar í Breiðholti eru líklega þeir allra krúttlegustu. Þeim þykir langskemmtilegast að svipast um í skóginum og geta snúið höfðinu í hálfhring án vandræða. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Spánverjar komast yfir í framlengingunni HM í fótbolta lýkur í kvöld þegar Spánn og Argentína mætast í úrslitaleiknum um heimsmeistaratitilinn. Ferran Torres kom Spánverjum yfir á 106. mínútu. Spánn er yfir 1-0. Staðan var enn markalaus að loknum venjulegum leiktíma og framlenging stendur yfir. Argentína missti Enzo Fernandez af velli með rautt spjald í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Stjörnum prýdd lokahátíð var fyrir leik þar sem m.a. tróðu upp Robbie Williams, Post Maolone, Nicole Scherzinger og Laura Pausini. Í fyrsta sinn var haldin hálfleikssýning í úrslitaleik HM. Þar tróðu upp m.a. Madonna, Coldplay, Justin Bieber, Shakira og Prúðuleikararnir. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Lokahátíðin og hálfleikssýningin í beinni á rásum RÚV Það verður mikið um dýrðir í kvöld þegar HM í fótbolta lýkur með úrslitaleik Spánar og Argentínu. Stjörnum prýdd lokahátíð mótsins hefst kl. 17:35 í beinni útsendingu á RÚV 2 og hálfleikssýning í úrslitaleiknum á RÚV. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Drykkjarhléin óvinsæl en skila milljarði dollara í auglýsingatekjur FIFA mun fara yfir áhrif drykkjarhléa sem tekin voru upp fyrir HM í fótbolta í sumar og hafa verið gagnrýnd. Áætlað er að sjónvarpsstöðvar um allan heim hafi selt auglýsingar fyrir um milljarð dollara í þessum hléum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mótmæli í Úkraínu þriðja kvöldið í röð Þúsundir komu saman til mótmæla í Úkraínu í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð. Fólkið krefst þess að hætt verði við brottvikningu varnarmálaráðherrans. Zelensky segir málin til skoðunar, mótmælendur hafi náð eyrum sínum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þrefalt fleiri smit af völdum sýklalyfjaónæmra baktería Sýklalyfjaónæmar bakteríur eins og E. coli greinast hér þrefalt oftar en fyrir tíu árum. Íslendingar sem hafa ferðast til útlanda bera þær hingað heim. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Infantino að kenna að samsæriskenningarnar um HM grasseri Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu lýkur í kvöld með úrslitaleik Argentínu og Spánar. Mótið hefur sætt mikilli gagnrýni og pólitískra áhrifa gætir víða. Prófessor í félagsfræði segir vinnubrögð forseta FIFA einkennast af undirlægjuhætti. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú Fimm létust í jarðskjálfta í Perú Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Fimm létust í jarðskjálfta í Andes-fjöllum í Perú í gærkvöld. Skjálftinn var 5,1 að stærð og hafði mest áhrif í bænum Chongos Bajo sem liggur 300 kílómetra austur af höfuðborginni Lima. Í bænum slösuðust 21 til viðbótar við þá sem létust. Viðbragðsaðilar í Perú. Myndin er úr safni. EPA / Mikhail Huacan Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Bílvelta í Skötufirði Alexander Kristjánsson Bíll valt utan vegar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í dag. Þrír voru um borð í bílnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús á Ísafirði til aðhlynningar. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir að ekki sé vitað hversu alvarlegt slysið er. Aðstæður á veginum voru góðar. RUV / Loftmyndir Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Þéttsetin tjaldsvæði og fólk greinilega þreytt á rigningunni suðvestanlands Fjöldi fólks hefur flúið rigninguna á suðvesturhorni landsins og í betra veður á tjaldsvæðum á Suður- og Austurlandi. Á tjaldsvæðinu á Kirkjubæjarklaustri hefur verið uppbókað frá því á fimmtudag. 19. júlí 2026 kl. 11:32ERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Björgólfur Thor flytur frá Bretlandi til Ítalíu Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga á bresku skattkerfi. Hann segir bresku ríkisstjórnina hafa gert mistök. 19. júlí 2026 kl. 10:40INNLENDAR FRÉTTIR Norðurþing Stórbæta Ráðhúsið á Raufarhöfn Miklar endurbætur hafa staðið yfir á ráðhúsinu á Raufarhöfn. Gamli bankinn á Raufarhöfn er orðinn ráðhús bæjarins. Þar er suðupottur alls konar starfsemi, segir starfsmaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. 19. júlí 2026 kl. 9:43ERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Tónleikum Bad Bunny á Ítalíu aflýst vegna hagléls Rýma þurfti tónleikastað söngvarans Bad Bunny í Mílanó í gærkvöld vegna hagléls. Um 80 þúsund gestir voru á tónleikunum. 19. júlí 2026 kl. 9:21ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Úrslitaleikur HM - endurheimtir Messi markakóngstitilinn? Úrslitaleikur HM er í dag en þar mætast Spánn og Argentína. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og er á RÚV. Í fyrsta skipti verður hálfleikssýning í úrslitaleiknum. 19. júlí 2026 kl. 8:46ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Facebook lá niðri Fréttastofa RÚV Vefsíða Facebook lá niðri um tíma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector hafa þúsundir tilkynninga borist um tæknivandamál frá því um klukkan hálfátta í morgun. Önnur þjónusta á vegum Meta-fyrirtækisins virtist þó virka sem skyldi meðan á biluninni stóð. EPA / LUKAS COCH Fréttin var uppfærð eftir að síðan var komin í lag. 19. júlí 2026 kl. 7:59INNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæð sem stjórnar veðri haggast ekki næstu daga Það verður áfram vestlæg átt með vætu vestantil en björtu veðri á Austurlandi fram í miðja viku. 19. júlí 2026 kl. 7:54ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Búið er að slökkva eldinn í byggðinni í Drammen Ekkert slökkvistarf var í Drammen í nótt og búið er að ráða niðurlögum eldsins í byggðinni. Enn loga þó eldar í skóginum og verður slökkvistarfi fram haldið þar í dag. 19. júlí 2026 kl. 7:11ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Ein stærsta flugskeytaárásin á Kyiv fram til þessa Rússar gerðu mikla flugskeytaárás á Kyiv í nótt. Einn var drepinn og 13 særðust í árásunum. 19. júlí 2026 kl. 5:37ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tate-bræðurnir handteknir í Miami Bresk yfirvöld hafa óskað eftir að bræðurnir verði framseldir. Þeir eru grunaðir um kynferðisbrot, nauðganir og mansal í Bretlandi yfir sjö ára tímabil. Bræðurnir voru fyrst ákærðir í Rúmeníu árið 2022 en flúðu landið áður dæmt var í málinu. 19. júlí 2026 kl. 3:39ERLENDAR FRÉTTIR Kúba Fór í útlegð frá Kúbu til Miami Kúbanskur listamaður og andófsmaður fór í útlegð til Miami á Flórída í gær. Hann sat fimm ár í fangelsi á Kúbu fyrir mótmæli gegn stjórnvöldum. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna krefst þess að stjórnvöld á Kúbu láti yfir 700 pólitíska fanga lausa. 19. júlí 2026 kl. 2:08ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Forseti Ungverjalands lætur af embætti Tamas Sulyok undirritaði viðauka við stjórnarskrá landsins sem mun binda enda á forsetatíð hans. Hann er sagður hliðhollur fyrrum forsætisráðherra landsins, Viktor Orban. 19. júlí 2026 kl. 0:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: England – Frakkland England vann 4-6 gegn Frökkum í bronsleik HM karla í fótbolta í kvöld. Þetta er markahæsti bronsleikur sögunnar og einn af markahæstu lokaleikjum heimsmeistaramótsins. 19. júlí 2026 kl. 0:07ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Utanríkisráðherra Norður-Kóreu í opinberri heimsókn í Rússlandi Norður-Kórea hefur sent Rússum flugskeyti, hergögn og þúsundir hermanna til að be