Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum

  • What: A 13-year-old boy died and many people were injured in a stampede at a festival in Spain
  • Impact: Local community affected
Read Full Article →

Þrettán ára drengur lést og fjöldi fólks slasaðist í fagnaðarlátum á Spáni eftir að Spánverjar sigruðu í úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöld. Gosbrunnur hrundi í borginni Ciudad Rodrigo í vesturhluta landsins rétt eftir miðnætti, Fjöldi fólks varð undir og drengurinn týndi lífi. „Það sem átti að vera fögnuður vegna spænska liðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu breyttist í harmleik,“ stendur í færslu á Facebook-síðu sveitarfélagsins þar sem bæjarstjórnin í Ciudad Rodrigo vottar samúð sína. Neyðarþjónustu í borginni bárust símtöl vegna gosbrunnsins rétt upp úr klukkan hálfeitt. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést. Gosbrunnurinn hrundi undan þunga fólks sem klifraði upp á hann í fagnaðarlátunum að því er spænskir miðlar greina frá.

Share this article